Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Blaðsíða 20
20
DV. MANUDAGUR10. DESEMBER1984.
Skólavörðustíg 42
Sími: 11506
L5 15 VIKW
KÖKUBLAÐ VIKUNNAR — LEIÐRÉTTING
I kökublaðinu er ein einasta villa.
I ömmutertu eiga að vera 5 — fimm grömm af hjartarsalti, en
ekki 50.
Vinsamlega leiðréttið þetta í kökublaði Vikunnar 1984.
Við biðjumst velvirðingar vegna þessa feilspors.
NÝTT LAKK OG LYKTARLAUST
KÓPAL FLOS og KÓPAL JAPANLAKK
Nýja KÓPAL-lakkið frá Málningu hf. hefur heldur betur
slegið í gegn, enda má segja að það hafi ákveðna kosti,
sem ekki sé hægt að líta framhjá í vali á áferðafallegu
lakki: KÓPAL lakkið fæst bæði gljáandi, (KÓPAL
JAPANLAKK) og perlumatt (KÓPAL FLOS).
KÓPAL-lakkið gerir þér kleift að lakka án þess að
menga andrúmsloftið og valda heimilisfólkinu berjandi
höfuðverki. Kópal lakkið er lyktarlaust. Þú lakkcir svo
að segja hvað sem er - og skolar síðan úr áhöldunum
með vatni.
Betra getur það varla verið.
Á Alþingi
Kjarnorku-
vopn og
vígbúnaður
Nýtt fnunvarp til útvarpslaga
hefur verið lagt fyrir Alþingl.
Flutningsmaður er Sigríöur Dúna
Kristmundsdóttlr, Samtökum um
Kvennalista.
Tillögur um endurreisn
Viðeyjarstofu hafa tiu þingmenn úr
öllum flokkum lagt fyrir sameinað
alþingi. Fyrstl flutningsmaður er
Jón Baldvin Hanníbalsson. Þar er
lagt til að fela rikisstjórninni að
láta gera áætlun um endurrelsn
Vlðeyjarstofu og lendingarbætur á
eynni, i samráði við borgarstjóm
Reykjavíkur. Og að byggingin
verði færð I upprunalegt horf og
stefnt að því að stunda megi veit-
ingarekstur og ráðstefnuhald í
Vlðeyjarstofu. Stefnt skuli að því
að verkinu verði lokið fyrir tvö
hundrað ára afmæli Reykjavikur-
borgar 18. ágúst 1986. Tillagan
hefur ekkl hlotið afgreiðslu.
Sala Landssmiðjunnar hefur verið
tU umræðu i efri deild Alþlngis. En
stjóraarfrumvarp um heimild fyrir
rfkisstjórnina til að selja fyrirtækið
hefur verið lagt fram. Eftir þriðju
umræðu fór mállð til neðri deildar.
I september sl. var undirrltaður
lelgusamningur á milli rikis-
stjómarinnar og Landssmiðjunnar
hf. Leigutíminn er 15 ár frá 1.
janúar 1985 að telja.
Eftir umfjöllun iðnaðaraefndar
efri deildar skilaði Skúli Alex-
andersson, Alþýðubandalagi, sér-
álitl þar sem hann leggur til að
frumvarpið um sölu Lands-
smiðjunnar verði fellt. Telur hann
að engin rök séu að finna, hvorki í
frumvarpinu né fylgiskjölum, fyrir
sölu Landssmiðjunnar. Leggur
hann fram umsögn Félags Jára-
iðnaöarmanna sem leggst gegn
söiu fyrirtækisins.
TOlaga um kjaraorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum hefur verið
lögð fram í sameinuðu þingi.
Fyrsti flutningsmaður er Páll
Pétursson, Framsóknarflokki.
Meðflutningsmenn eru úr öllum
flokkum. 1 tillögunnl segir: Alþingi
áréttar þá stefnu tslendinga að á
tslandi verði ekki staðsett kjara-
orkuvopn, eða eldflaugar sem slik
vopn geta borið, og ályktar að
kjósa sjö manna nefnd er kanni
hugsanlega þátttöku íslands í nm-
ræðu um kjaraorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum. Nefndin
skili állti til Alþingis fyrlr 15.
október 1985.
Tíu alþýðubandalagsmenn hafa
lagt fram breytingartillögu vlð til-
lögu um frystingu kjaraorkuvopna.
Þar segir m.a. „Norðurlönd geri
formlegan samning um kjaraorku-
vopnalaust svæðl sem banni algjör-
lega flutninga á kjarnorkuvopnum
tn Norðurlanda. tsland lýsir sig
relðubúið að gefa út sjálfstæða yfir-
lýsingu um slikt bann við flutn-
lngum á kjaraorkuvopnum til
landsins.”____________________
Þá hafa sautján sjálfstæðismenn
lagt fram tillögu tU þingsályktunar
um afvopnun og takmörkun vig-
búnaðar. Fyrsti flutningsmaður er
Birglr tsleifur Gunnarsson. —
Alþingi ályktar að brýna nauðsyn
beri tU að þjóðir helms, og ekki sist
kjaraorkuveldin, sameinist um
raunhæfa stefnu í afvopnunar-
málum sem leitt geti tU samnlnga
um gagnkvæma og alhUða afvopn-
un þar sem framkvæmd verði
tryggð með alþjóðlegu efttrUti —
segir í þeirri tUlögu. Þar er einnlg
lagt ttt að utánrfkisráðherra verði
faUð að gera úttekt á þeim hug-
myndum sem nú eru uppl um
afvopnun og takmörkun vig-
búnaðar, með sérstöku tiUlti ttt
legu tslands og aðUdar að alþjóða-
samstarfi. A grundveUl slikra
upplýsinga verðl samstöðu leltað á
meðal stjórnmálaflokkanna um
sameiglnlega stefnu í þessum
málum. -ÞG