Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Blaðsíða 27
DV. MÁNUDAGUR10. DESEMBER1984.
27
íþróttir
íþróttir
Kristján Arason virtist geta skorað þegar hann vildi í s.h. gegn Svíum. Hér gnæfir hann yfir hina hávöxnu Svía og
skorar. DV-mynd Brynjar.
FYRSTIHEIMA-
SIGUR Á SVÍUM
„íslenska liðið vann verðskuldaðan
sigur og ég tel að ísland eigi nú besta
handknattleikslandslið á Norðurlönd-
um,” sagði Roger Carlsson, þjálfari
sænska landsliðsins, eftir að ísland
hafði unnið sinn fyrsta sigur í landsleik
við Svia á islandi á föstudagskvöld,
25—21. Það fór aldrei á milli mála
hvort liðið var betra. Þriðji sigur is-
lands á Svíum frá upphafi, hinn fyrsti
á HM í Bratislava 1964, 12—10, og nú
tveir sigrar í röð. Hinn fyrri á NM á
dögunum.
Mjög
góð
nýting í
sókninni
1 fyrsta leik Islands og Svíþjóð-
ar var sóknarnýting liösins mjög
góð. Liöið átti 43 sóknir til að gera
inark og mörkin urðu 25. Það ger-
ir 58,1% nýtingu. Sænsku mark-
verðirnir vörðu 12 skot, þrisvar
sinnum skutu íslensku leikmenn-
irnir fram hjá, þrisvar var bolta
tapaö og mörkin uröu 25, samtals
43 sóknir.
• Sænska liöiö átti einnig 43
sóknir, skoraöi 21 mark sem ger-
ir 48,8% nýtingu.
• Kristján Arason skoraði 6
' mörk, 2 skot voru varin (1 víti),
| eitt fór fram hjá og hann tapaði
■ boltanum einu sinni og vann jafn-
| oft. Kristján gaf tvær linusend-
| ingar,önnurgaf mark.
I • Siguröur Gunnarsson skoraði
6 mörk (2 víti), 2 skot varin (1
víti), eitt skot fram hjá, einum
bolta stolið. Eitt víti fiskað.
• Guömundur Guömundsson
skoraði þrjú mörk, fiskaði tvö
víti og tapaöi boltanum einu
sinni.
• Þorbergur Aöalsteinsson
skoraði 3 mörk, þrjú skot varin.
Ein línusending.
• Páll Olafsson skoraði 2 mörk,
3 skot varin, eitt fram hjá og ein-
um bolta tapaö. Eitt víti fiskað.
• Steinar Birgisson skoraði 2
mörk, eitt skot varið. Ein línu-
sending.
• Þorgils Ottar skoraði 2 mörk,
eitt skot var varið.
• Þorbjörn Jensson skoraði eitt
mark.
• Þeir Jakob Sigurðsson og
Pálmi Jónsson léku ekkert með.
• Islenska liðið var einum leik-
marmi færra í sex mínútur en þaö
sænska í 10 mínútur.
Einar Þorvarösson varði 10
skot, 8 þegar bolti vannst.
Jens Einarsson varði 4 skot.
-SK
Það var frábær síðari hálfleikur ísl.
liðsins sem lagði grunninn að sigrin-
um. Hver einasta sóknarlota langan
kafla gekk þá upp. Kristján Arason
stórkostlegur og allir aðrir leikmenn
liðsins léku þá mjög vel. Svíar áttu
ekkert svar, ekki einu sinni Björn
Jilsen, stórskytta Svía, gat hamlað á
móti. Það hafði hins vegar komiö tals-
vert á óvart að hann lék ekkert í fyrri
hálfleik.
Fyrri hálfleikurinn var hins vegar
langt frá því að vera viðunandi hjá ísl.
liðinu, einkum fyrstu mínúturnar.
Þrátt fyrir fjölmörg opin færi, dauða-
færi, skoraði ísl. liðið ekki nema f jögur
mörk á þessum 15 mín. Þorgils Ottar
tvö fyrstu, síðan Sigurður Gunnarsson
og Guðmundur Guðmundsson. Það
voru einkum þessir þrír leikmenn sem
héldu tslandi á floti í fyrri hálfleiknum
meöan Kristján og einkum þó Páll
Olafsson náðu sér ekki á strik. Einkum
var gaman að sjá til hornamannsins
snjalla, Guðmundar, sem skoraði þrjú
mörk af miklu harðfylgi. Staðan 11—10
fyrir Island.
En í síðari hálfleiknum small allt
saman og margar fléttur liðsins, eink-
um lokakaflinn, snjallar. Islenska liöið
lék þá eins og það sem valdið hefur
gegn hinum hávöxnu, oft þungu Svíum
en þeir höfðu komið á óvart í f.h. með
að leika vörnina mjög framarlega,
eiginlega 3/3. Sóknarmenn okkar nýttu
ekki framan af þá möguleika sem
þetta gaf eins og misnotuö opin færi
bera með sér. Á það bættist líka að
Lugi-markvörðurinn, Mats Olsen,
varðifrábærlega velframanaf. hsím.
BESTA
ELDHÚSHJÁLPIN
KENWOOD
K
„GOURMET
! i
k NYJA UNDRATÆRIÐ
K
Hrærir deig, sker niöur grænmeti, hakkar
kjöt, saxar grænmeti, þeytir rjóma og
ótal m.fl.
K Mjög auðvelt og fljótlegt er aö hreinsa tækiö
eftir notkun.
BC „GOURMET" undratækið er knúiö af jafn-
öruggum mótor eins og notaöur er í stóra
bróðurnum „Kenwood Chef" og hefur hann
þrjár hraðastillingar. Mótorinn er þeim eigin-
leikum búinn að hann slær út ef tækið er
yfirfyllt.
Komið og kynnist nýja undratækinu
frá Kenwood.
■C HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
k[h1HEKIAHF
Bar LAUGAVEGI 170-172 SÍMAR 11687 ■ 21240
K
Það var sama þótt þeir væru 2—3 Svíarnir á Guðmund Guðmundsson í f.h. Hann
komstígegn. DV-mynd Brynjar.
staögreiösluafsláttur
STENDUR FYRIR SÍNU
Í^Sgíngarvörur
verfcfserl
HreíníastfstæJtí
fePp adcild
Harðviðarsala
BYGGINGAVORUR
r HRINGBRAUT 120: Simar: Harðviðarsala... . 28-604 A
Bvaainqavörur 28-600 Málningarvörur og verkfæri 28-605
Gólfteppadeild 28-603 Flisar og hreinlætistæki ..28-430 u
renndu við eða hafðu samband