Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Side 37
DV. MANUDAGUR10. DESEMBER1984. 37 Útlönd Útlönd Útlönd Færeyjar: Andstæður skerpast Eðvarð Jónsson, fréttaritari DV íFæreyjum, skrifar Frá Eövarð Jónssynl, Færeyjum: Tvennar kosningar hafa verið haldn- ar í Færeyjum á undanförnum mánuöi og hafa úrslit þeirra beggja orðið til þess að skerpa þær sterku andstæður sem eru í færeyskri pólitík. I lögþings- kosningunum, sem haldnar voru 8. nóvember sl., sótti Jafnaðarflokkurinn á og vann eitt þingsæti. Sambands- flokkurinn, sem átt hefur lögmann Færeyinga í stjórnarsamstarfi við Fólkaflokkinn og Sjálfstýrisflokkinn, tapaði hins vegar fylgi. Fólkaflokkurinn, sem er náinn ætt- ingi Sjálfstæðisflokksins á Islandi, tap- aði einnig lítils háttar fylgi en á hinn bóginn bætti formaður hans, Jogvan Sundstein, mjög við sig í persónufylgi. Kosningum í Færeyjum er þannig hátt- að að kjósendur geta ýmist valið flokkslista eða krossað við einstakling á listanum. Langflestir taka síðar- nefnda kostinn. Persónulegt fylgi stjórnmálamanna kemur því skýrt fram og hefur úrslitaáhrif til dæmis við myndun stjómar og skipun í nefnd- ir. Atkvæðahæstu menn í lögþings- kosningunum voru formenn flokkanna, Sundstein, sem fyrr er nefndur, Atli Dam, formaður Jafnaðarflokksins, og Pauli Ellefsen, fyrrverandi lögmaöur Sambandsflokksins. Nýir menn komu fram sem juku mjög atkvæðafylgi einstakra flokka og ber þar hæstan að þessu sinni Tummas Arabo sem vann stórsigur fyrir Jafn- aðarflokkinn í Norður-Straumey. Fram til þess tima var Arabo nánast óþekkt pólitísk stærð í Færeyjum. Þannig má segja að kosningarnar í Færeyjum snúist allt eins mikiö um persónur og um flokka. Breckmann umdeildur Umdeildasti stjórnmálamaður Fær- eyinga, Oli Breckmann, ritstjóri Dag- blaðsins og annar af tveimur fulltrúum Færeyinga á danska þinginu, jók einn- ig iítillega persónufylgi sitt en þó ekki eins mikið og hann og fleiri fólka- flokksmenn höfðu vænst. Má þar e.t.v. greina áhrif mjög óvæginnar herferðar á hendur honum í blöðum þjóðveldis- manna og jafnaðarmanna, auk þess sem margir Færeyingar eru orðnir þreyttir á stöðugum meiðyrðamálum í kringum ritstjórann og Dagblaðið. Ærumeiðingar eru nánast orðnar fast- ur þáttur í færeyskri blaðamennsku og opinberri umræðu. Þjóðveldishugsjónin veik Þjóðveldismenn töpuöu lítilsháttar fylgi og sýnir það betur en margt ann- að hve lítils fylgis þjóðveldishugsjónin, eins og henni er haldiö fram í stefnu- skrá flokksins, nýtur meðal Færeyinga um þessar mundir. Þjóðveldismenn vilja fullan og tafariausan aðskilnað við danska móðurríkið þar sem aftur á móti hinir flokkarnir, allir nema Sam- bandsflokkurinn, vilja sambandsslit i áföngum. Málgagn Sambandsflokks- Óli Breckman, Fólkaflokki: Svarti- dauði eða kólera? Jafnaðarflokkur Atla Dam bætti við sig sætií kosningunum. ins, Dimmalætting, þreyttist ekki á aö hampa þeirri staðreynd að Færeying- ar fá árlega um 600 milljónir danskra króna í fjárhagsstuðning frá Dönum. Pauli Ellefsen hefur látið svo ummælt að þriðja hver króna, sem velt er í Fær- eyjum, komi frá Danmörku. Svonefndur „blokkstuðningur” hef- ur verið mikið til umræðu hér að und- anförnu og hefur Fólkaflokkurinn eink- um gerst málsvari hans. Hann er í því fólginn að Færeyingar fái fasta upp- hæð árlega sem síðan sé skipt innan- lands til sjúkrahúsmála, skóiamála, o.s.frv., en upphæðin breytist ekki frá ári til árs eins og nú er. Þessi fasti f jár- stuöningur á svo að rýrna smám sam- an og hugmyndin er að hann hverfi að fullu og öllu og Færeyingar verði sjálf- bjarga þjóö í eigin landi. Sambands- flokkurinn leggst eindregið gegn öllum hugmyndum um „blokkstuðning” og vill engu breyta í núverandi skipan mála. Landgrunnsmálið Annað mál, sem væntanlega verður ofarlega á baugi næstu árin, er land- grunnsmáiið. Jafnaðarflokkurinn vill að landgrunnið og um leið öll náttúru- auöæfi sem þar kunni að finnast verði færeysk séreign. Danir hafa margsinn- is lýst því yfir að Færeyingar verði reknir úr ríkissambandinu ef þeir halda fast við þetta. Af þessum sökum leggst Sambandsflokkurinn eindregið gegn yfirtöku. Nú hefur olía og gas fundist á landgrunninu. Búast má við að hart verði deilt um landgrunnsmál- iöánæstunni. Svartidauði og kólera Nú eru hafnar stjómarmyndunar- viðræður milii Jafnaðarflokksins ann- ars vegar og Sambandsflokksins og Sjálfstýrisflokksins hins vegar. Sjálf- stýrisflokkurinn er miðflokkur sem nýtur fylgis meðal embættismanna, kennara og annarra. Hann átti menntamálaráöherrann i síðustu stjóm. Bæði Atii Dam og Pauli Ellef- sen hafa útilokað samvinnu við Fólka- flokkinn og hefur Ellefsen einkum bor- iö sig illa undan samstarfinu við hann siðustu fjögur ár. Virðist þeim einkum standa stuggur af samstarfinu við Ola Breckmann. Atli Dam sagði skömmu eftir að kosningaúrslit lágu fyrir að valkostirnir, sem þá lágu fyrir, þ.e.a .s. að velja milli Fólkaflokksins og Sam- bandsflokksins, væru eins og að eiga að velja á milli svartadauða og kóleru. Nú er ljóst að Atli hefur valið síöari kostinn og hafa margir Færeyingar á vinstri væng stjórnmálanna orðið ókvæða við, einkum þjóðveldismenn sem telja sig eiga meira erindi í stjóm meö Jafnaðarflokknum en höfuöand- stæðingurinn, sambandsmenn. SÍÐUMÚLA 31 Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Breiðvangi 14, 3.h.t.v., Hafnarfirði, tal. eign Elinborgar Jóhannesdóttur, fer fram á eigninni sjálfri fimmtu- daginn 13. desember 1984 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 51., 55. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Breiðvangi 10, 3.h.t.v., merkt A, Hafnarfirði, tal. eign Guð- laugs Karlssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. desember 1984 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Hafnarf irði. Aðalfundur Fraihfarafélags Seláss- og Arbæjarhverfis veröur haldinn í kvöld kl. 20.30 í safnaðarheimili Arbæjarsókn- ar. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Umræðurumskólaogumferðarmál. Gestir fundarins verða borgarfulltrúarnir Markús Örn Antonsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Fundarstjóri Þórir Einarsson prófessor. Nýir íbúar í Selási og Artúnsholti eru sérstaklega hvattir til að mæta. Stjórnin. |j|=|FERDA.. IH!!I MIÐSTODIN AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.