Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Side 56
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frótt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháö dagblað
MANUDAGUR 10. DESEMBER 1984.
Kóf-
drukkinn
á f lutn-
ingabfl
— áfengi enn á
„gamla” verðinu
Vegfarendur um þjóðveginn í
Rangárvallasýslu veittu á föstudags-
kvöldiö athygli undarlegu aksturslagi
á stóruin flutningabíl. Ok hann um
veginn án þess aö skeyta nokkuð um
aöra uinferð. M.a. inyndaðist löng lest
bíia fyrir aftan hann. Oeinkennis-
klæddur lögreglumaöur stöðvaði bílinn
og handtók ökumanninn sem reyndist
vera kófdrukkinn. Var maöurinn
fluttur á lögreglustöðina á Selfossi.
-GK.
„Ríkið” er
opið í dag
Reykjavíkur-
meistarar
íbridge
Bjöm Eysteinsson og Guðmundur S.
Hermannsson urðu Reykjavíkur-
meistarar í tvímenningskeppni í
bridge sem fram fór um helgina.
Skutust þeir upp í efsta sætið i síðustu
umferðinni eftir tvísýna keppni við Jón
Hjaltason og Hörð Arnþórsson og
Þórarin Sigþórsson og Guðmund P.
Amarson sem höfnuðu í öðru og þriðja
sæti.
-GP
Mikiðlyrirlítið
jy\
/HIKLIG4RDUR
LOKI
Hann varö ber að smygli
— eöa hvaö?
Tveir menn teknir með hass á Keflavíkurflugvelli:
Hljóp allsber úr tollher-
berginu í f lugstöðinni
Farþegum sem komu til Kefla-
vikurflugvallar á föstudaginn brá
heldur í brún er allsber maöur kom
hlaupandi úr tolliierberginu og inn í
flugstöðina. Þar var um að ræða
mann scin tekinn hafði verið, ásamt
öðrum, inn i herbergið til likams-
leitar vegna gruns um fikniefna-
sinygl.
Að sögn Kristjáns Péturssonar,
yfirmanns í tollgæslunni á Kefla-
víkurflugvelli, mun maðurinn hafa
reynt að kasta frá sér hassi sem
hann hafði haft innan klæða er hann
hljóp út úr herberginu en hann og
efniö náðust strax aftur.
Fíkniefnið, sem maöurinn reyndi
aö smygla til landsins, reyndist vera
255 grömm af Líbanonhassi.
Frágangur á læsingum á herbergi
því sem notað er til líkamsleitar er
ófullkominn og erfitt um vik að
stööva menn ef þeir ásetja sér aö
sleppa út eins og þessi geröi. Sagöi
Kristján að menn þyrftu að vera vel
á verði i tilfellum sem þessum.
Töluverður fjöldi fólks var i flug-
stöðinni er atburður þessi átti sér
stað, eða farþegar úr tveimur flug-
vélum, en mennirnir, sem teknir
voru, komu frá Kaupinannahöfn.
-FRI.
I
Otsölur Áfengis- og tóbaksverslunar
, ríkisins eru opnar í dag. Hvorki áfengi
né tóbak hefur verið hækkað í verði,
samkvæmt upplýsingum sem DV fékk
frá Jóni Kjartanssyni, forstjóra
ÁTVR, í morgun.
Orðrómur var á kreiki f)rir helgi
þess efnis að áfengi yrði hækkað í verði
um allt að 20 prósent i dag. Eitt dag-
blaöanna kvaðst meira að segja í frétt
hafa heimildir fyrir því. -KMU.
Selur jörð
sína vegna
„pólitískra
ástæðna”
— stjórnarliðar mega
ekki kaupa
íslandsdeild Amnesty International er 10 ára um þessar mundir og var
þess minnst á fundi samtakanna sem haldinn var i gær. Hlutverk
Amnesty International er að berjast fyrir mannráttindum og frelsi sam-
viskufanga hvarvetna i heiminum. Formaður islandsdeildar samtakanna
er Hjördis Hákonardóttir lögfræðingur sem er á innfelldu myndinni.
DV-mynd S
Bjami Hannesson á Undirfelli í
Vatnsdal hefur auglýst jörð sina til
sölu „vegna pólitískra ástæðna.”
Undirfell í Vatnsdal er mikil jörð og
vafalaust eftirsótt. Sá böggull fylgir þó
skammrifi í boði Bjama að ekki fá allir
að bjóða í jörðina sem vilja.
Bjami tekur það nefnilega sérstak-
lega fram að „ekki þýðir fyrir Sjálf-
stæðisflokksmenn að gera tilboð eða
Framsóknarmenn sem kosiö hafa
þann flokk eftir 1978”. Þar með era
nær allir heimamenn útilokaðir frá
kaupunum. Hitt kann þó að reynast
erfitt fyrir Bjarna að greina hafrana
frá sauðunum því ekki er enn farið að
brennimerkja stjómarliðið.
-GK
•••
Eldur í
Eldvík
Vöruflutningaskipið Eldvík sigldi
á bryggju á Vopnafirði í gærmorgun.
Rifa og dæld komu á bakborðskinn-
ung skipsins en bryggjan skemmdist
ekkL
Er skipverjar voru að rafsjóða fyr-
ir rifuna í hádeginu vildi svo illa til
að eldur komst í einangrun. Slökkvi-
lið Vopnafjarðar aðstoðaði skipverja
við að bæla niður eldinn.
Nokkur sjór komst í lestina af völd-
um slökkvistarfsins og einnig mynd-
aðist þar töluverður reykur. Þó er
talið að saltfiskfarmur um borö hafi
ekki skemmst. Sjópróf vegna máls-
ins fara hugsanlega fram í Nes-
kaupstaðídag. -KMU
Ms. Akranes
teppt í
Kanada
Eitt skipa Nesskips hf., ms. Akra-
nes, er teppt á vötnunum miklu milli
Kanada og Bandaríkjanna vegna
bilunar á Valleyfield brúnni við
Montreal en áætlað er að viðgerð á
brúnni ljúki í dag.
Akranes hefur veriö teppt þarna í
tæpar þrjár vikur en alls eru um 120
skip í sömu vandræðum á þessum slóð-
Akranes er með stálfarm til losunar
á Ashtabula og Chicago og átti síðan aö
taka kolafarm til járnblendiverksmiöj-
unnar í Toledo við Erie-vatn.
-FRI
Vegirnir voru eins og skautasvell
Lögreglan á Akureyri haföi nóg að
gera aðfaranótt sunnudagsins og á
sunnudaginn við að bjarga fólki og
bílum, bæði af vegum og utan vega,
vegna mikillar hálku í nágrenni
Akureyrar.
Snemma á sunnudagsmorguninn
fór lögreglan af stað á tveim bílum
til aö bjarga fólki úr nokkrum bílum
sem ekkert komust áfram vegna
hálku. Var fólkið að koma af dans-
leik en lagði ekki í brekku á veginum
á bílunum því brekkan var eins og
skautasveli yfir að líta.
A Svalbarðsstrandarvegi fóru fjór-
ir bíiar út af í hálkunni í gær. Tveir
þeirra fcru út af í gærmorgun og tveir
í gærkvöldi. Var annar þeirra hálfur
utan vegar þegar hinn kom sigl-
andi stjórnlaus í hálkunni og lenti á
honum. Kastaöist annar bíllinn út af
veginum en hinn valt tvær veltur nið-
ur af honum. Farþegi í þeim bíl var
fluttur á sjúkrahús vegna höfuð-
meiösla en annars urðu ekki teljandi
slys á fólki í þessum óhöppum.
-klp
4
14
4
f
4
4
4
4
4
4
4
4