Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Qupperneq 4
4
„VEGUR”
YFIR
BREIÐA-
FJÖRD
— framkvæmdir vegna
ekjuskips hefjast
ívetur
Undirbúningur aö smíöi Breiöa-
fjaröarferju er kominn á fullt skrið
eftir tveggja ára Mé. Framkvæmdir
hefjast í vetur, en auk ferjusmíöinnar
þarf aö gera aöstöðu hennar vegna í
Stykkishólmi og á Brjánslæk. Sam-
gönguráðherra og fjármálaráðherra
hafa tekið höndum saman um aö
þannig verði að málum staöið.
Aö sögn Guðmundar Lárussonar,
framkvæinilastjóra flóabátsins
Baldurs, sem nú er í förum á þessari
leið, er báturinn orðinn tuttugu og
tveggja ára og þarfnast von bráöar
meiriháttar viögeröa. Ferjan mun
leysa Baldur af hólmi og meö
eðlilegum gangi gæti þaö orðið á árinu
1988.
Baldur getur tekiö um borð 12
venjulega fólksbíla en ræður viö aö
hífa um borö allt aö fimm tonna þunga.
Þá má flytja í bátnum 80 farþega með
góöu móti, en björgunartæki eru fyrir
um 100. Ferjan mun aftur á móti geta
flutt 17 fiinm metra langa bíla og um
borö munu geta ekið stærstu vöru- og
fólksflutningabílar. 138 sæti verða
fyrirfarþega ísal.
Raunar gæti ferjan tekiö meira, því
einmitt nú er íhugaö aö hafa hana 35
metra langa í staö 30, eins og
upphaflega var ætlaö. Hún veröur 9
metra breiö.
Flóabáturinn Baldur flutti í fyrra
um 1.200 bíla og um 5.000 farþega, en
það var var lægö í flutr.ingum. Gífur-
leg aukning hefur oröiö í ár þaö sem af
er, enda hefur veður verið frábært
lengst af í sumar viö Breiöafjörö. Nú
eru farnar sex feröir í viku og eru bíla-
pláss yfirleitt full löngu fyrirfram um
helgar.
Guömundur Lárusson sagöi þaö
efalaust að með ekjuskipi, ferjunni,
stórykjust flutningar yfir Breiðafjörð.
Þá kæmi ferjan nánast í vegar staö
eins og Akraborgin og Herjólfur gera
nú.
-HERB.
DV. MÁNUDÁGUR12. ÁGUST1985.
Brottrekstrarmálið á Vellinum:
Skiptum okkur ekki afþessu
— segir varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins
Varnarmálaskrifstofa utanríkis-
ráöuneytisins hefur ákveöiö aö
skipta sér ekki af máli Jónasar Guö-
mundssonar sem var vikið úr starfi
skrifstofustjóra hjá Fjármálastofn-
un varnarliösins 2. júli síðastliðinn.
Eins og greint hefur verið frá í DV
var ástæðan fyrir uppsögn Jónasar
sögö sú aö hann heföi boðið starfs-
stúlku hjá sér launahækkun gegn því
aö hún veitti honum blíöu sina. Jónas
hefur vísaö þessum ásökunum á bug
og telur þær runnar undan rifjum
fyrrum yfirmanns síns, Mallones aö
nafni.
„Viö höfum kynnt okkur öll gögn
þessa máls og sjáum enga ástæöu til
„Þetta eru mjög óeðlileg og vægast
sagt ótrúleg viðbrögö,” sagöi Jónas
Guömundsson, fyrrum skrifstofu-
stjóri Fjármálastofnunar varnar-
íiðsins í gær, þegar DV bar undir
hann þau ummæli Sverris Hauks
Gunnlaugssonar að varnarmála-
skrifstofa utanríkisráöuneytisins sæi
enga ástæðu til aö skipta sér af brott-
rekstri Jónasar úr starfi.
„Ég veit ekki á hvaöa upplýsing-
um hann byggir þessa ákvöröun
sína,” sagöi Jónas. „Þaö hljóta að
vera einhverjar einhliöa upplýsingar
frá varnarliðinu. Hann hefur aö
minnsta kosti ekki f engiö neinar upp-
lýsingarfrámér.”
Stúlkan komin í
betur launað starf
„Þær sögur ganga að ég sé borinn
þeim sökum aö hafa brotið banda-
rísk lög um kynferðisáreitni. Þessi
lög hafa ekkert gildi gagnvart Is-
lendingum en eru samt notuð gegn
mér án þess aö sannanir séu bornar
fram. Ég lagði fram kæru fyrir hálf-
um mánuöi á hendur bandarískum
yfirmanni mínum fyrir brot á sömu
að skipta okkur af því,” sagöi Sverr-
ir Haukur Gunnlaugsson hjá varnar-
málaskrifstofu utanríkisráöu-
neytisins í samtali viö DV aö loknum
fundi með tveimur stjórnarmönnum
í Félagi íslenskra stjómunarmanna
þar sem mál þetta bar á góma.
Fundurinn var haldinn síöast-
liöinn þriöjudag, daginn eftir að fyrr-
nefndur Mallone lauk störfum á
Islandi og fór úr landi. Sverrir
Haukur sagöi að þaö væri rangt aö
varnarmálaskrifstofan heföi viljandi
dregið á langinn aö halda þennan
fund, eins og látiö var í skína í mót-
mælabréfi sem um 120 íslenskir
lögum vegna orðbragös sem hann
.hefur haft í frammi. Þar hefur ekk-
ert verið gert viö þá kæru. Hann
fellur þó undir bandarísk lög.
Þá var stúlkan, sem sögö er hafa
kært mig, send í frí strax eftir að
kæran á aö hafa verið lögö fram. Það
gafst því ekkert ráörúm til aö tala
við hana. Og ekki nóg með það. Strax
aö loknu fríinu var hún komin í
annaö og betur launað starf hjá
varnarliöinu. Skrýtin tilviljun þaö.”
„Samhliöa því aö FISK hefur veriö
aö reyna aö fá svör við aöför varnar-
Stúlkan, sem sögð er hafa kært
Jónas Guömundsson, hefur nú tekið
til starfa hjá viðskiptastofnun
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Aö sögn blaöafulltrúa varnarliösins
starfsmenn varnarliðsins sendu
skrifstof unni fyrir skömmu og greint
var frá í DV. Sagöi Sverrir aö FISK
heföi boðað til fundarins með of
skömmum fyrirvara, auk þess sem
hann heföi sjálfur verið í sumarfríi í
lok síöasta mánaðar. Þaö heföi því
ekki veriö hægt aö halda fundinn
fyrr, og tímasetning hans stæði ekki í
neinu sambandi við brottför
Mallones.
Áð loknum fundinum á þriöjudag
sendi stjórn FISK frá sér eftirfar-
andi tilkynningu:
„Stjórn Félags íslenskra
stjórnunarmanna á Keflavíkurflug-
velli hefur kynnt sér málavexti þá er
liðsins aö mér, hefur landskunnur
þingmaöur verið aö reyna að fá
viðhlítandi skýringar. Báöir þessir
aðilar hafa hins vegar fengið þau
svör frá Sverri Hauki Gunnlaugssyni
að þeim komi málið ekkert viö. Því
sé lokiö og að varnarmálanefnd
muni ekki aðhafast neitt í því.
Varnarmálanefnd á að sjá um
samskipti milli vaniarliösins og
íslenskra aðila. Þegar hún ákveöur
aö fylgja einum aöila aö málum án
þess aö tala viö hinn eöa talsmenn
hans er hún að brjóta starfsreglur
var staðan auglýst laus til umsóknar
í júní. Stúlkan sótti um eftir
venjulegum leiöum og hóf störf 20.
júlí síðastliðinn. Staðan er einum
launaflokki hærri en sú sem stúlkan
leiddu til uppsagnar Jónasar Guð-
mundssonar, skrifstofustjóra Fjár-
máladeildar varnarliðsins. Stjórn
FISK hefur einnig átt fund meö
varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins. I framhaldi af áöur-
sögöu sér stjórn FISK sér ekki fært
aö hafa frekari afskipti af þessu
máli.”
Theodór Magnússon, stjórnar-
maður í FISK, og annar þeirra sem
sat fundinn síðastliðinn þriðjudag,
sagði í samtali við DV að félagiö
hefði nú gert allt sem í valdi þess
stæði til aö leysa þetta mál og aö
boltinn væri nú hjá Jónasi.
-EA.
nefndarinnar. Varnarmálanefnd er
því aö gefa vamarliðinu frjálsar
hendur til aö gera það sem því sýnist
við íslenska starfsmenn sína.”
„IMærveru þinnar
er ekkióskað"
„Uppsagnarbréf mitt segir
orðrétt: „Nærveru þinnar er ekki
óskað eftir 2. júlí 1985.” Þetta
orðalag gefur til kynna aö um stór-
felldan glæp sé aö ræða. Samt eru
ekki gefnar neinar skýringar. Ef
varnarmálanefnd finnst þetta eðlileg
vinnubrögö þá er hún ekki starfi sínu
vaxin.
Eg hef talað við annan þingmann í
dag sem ég ber fullt traust til aö geta
fengið svör viö því hverjar á-
sakanirnar eru sem á mig eru
bornar. Fái hann heldur ekki svör
veröur líklega þrautalendingin sú aö
fara fram á lögreglurannsókn.
Það getur ekki staðist að hægt sé
að ræna mann ærunni án þess aö
svara til saka,” sagði Jónas
Guðmundsson. -ea.
hafði hjá Fjármálastofnun varnar-
liösins. Blaðafulltrúinn sagöi aö
starfsaldur stúlkunnar væri ástæöan
fyrir því aö hún heföi fengið betur
launaöa stöðu en áöur. -EA.
Jónas Guömundsson, fyrrum skrrfstofustjóri:
Lögreglurannsókn er
þrautalendingin
Stúlkan fékk betur launaða stöðu:
STARFSALOUR ER ÁSTÆÐAN
—segir blaðaf ulltrúi vamarliðsins
I dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Prívat tollgæsla yfirtollarans
Nú um nokkurra ára skeiö hafa
íslendingar haft leyfi til þess sam-
kvæmt ráöherraúrskuröi og reglu-
gerð fjármálaráðuneytis að kaupa
sér tólf bjórdósir i fríhöfninni þegar
þeir koma heim frá útlöndum. Sama
regla hefur gilt um starfsfólk í flugi
og farmenn á íslenskum skipum.
Aðrir þjóðfélagsþegnar hafa ekki
leyfi til að drekka bjór nema i út-
löndum og svo auðvitað bjórlfkiö sem
bindindismaðurlnn í dómsmála-
ráðuneytinu býður upp á.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
hefur það verkefni með höndum að
telja dósirnar sem ferðalangarnir
hafa með sér og þykir það með á-
byrgðarmeiri störfum. Að minnsta
kosti er það tekið alvarlega af yfir-
maani tollgæslunnar suður þar enda
skaðlegt fyrir þjóðina og hræðilegt
fyrir tollgæsluna ef einhver skyldi
sleppa í gegn með stærri skammt en
honum ber. Eru þar iðulega gerðar
itarlegar atlögur að venjulegum
ferðamönnum ef ske kynni að ein-
hverjum dytti í hug að fela svo sem
eina bjórdós innanklæða.
Nú hefur hins vegar komiö í ljós
að áðurnefndur yfirmaður í tollgæsl-
unni hefur aldrei verið sáttur við
þennan tólf bjóra skammt. Hann
hefur í rauninni ætið Iitið á
ferðalangana með bjórdósirnar
undir hendinni sem hverja aðra lög-
brjóta og smyglara. Hann álitur að
reglugerðin úr fjármálaráðuneytinu
sé brot á lögum og þar sem hann er
löghlýðinn maður og vandur að virð-
ingu sinni og tekur starf sitt
alvarlega hefur þessum yfirtollara
runnið það til rifja að geta ekkert
aðhafst gagnvart bjórdósunum tólf.
Og nú fyrir helgina tók hann til
sinna eigin ráða. Valdi sér fómar-
lamb, sjáifan verslunarstjórann í fri-
höfninni, tók bjórinn af blásaklaus-
um manninum og kærði hann fyrir
brot á tollalögum.
Nú er það yfirleitt venja hjá em-
bættismönnum rikisins að fara eftir
fyrirmælum og reglugerðum sem
æðra sett stjórnvald hefur falið þeim
aö fara eftir. TU þess ero þeir ráðnir
og það er þeirra starf.
En yfirtoUarinn á Vellinum er
ekki í þeim hópi. Hann hefur sínar
privat lögskýringar á því hvað sé
rétt og hvað sé rangt. Væri reyndar
æði spennandi og tUbreytingarrík
stjórnsýsla ef aðrir opinberir em-
bættismenn færu að fordæmi hans og
hefðu sína eigin lögfræði i gangi i
stað þess að hlýða þeim reglugerðum
sem þeim er ætlað að framfylgja.
Privatlöggæsla yfirtoUstjórans
hefur valdið stlrðu samstarf i viö lög-
reglustjórann á Keflavíkurflugvelli
sem ekki er nema von þegar yfir-
mennirnir hafa sina skoöunina hvor
á þvi hvað séu lög.
Yfirtollarinn lætur þess þó getiö í
blaðaviðtali að hann bjóði lögreglu-
stjóranum góðan daginn á
morgnana, sem ber vott um um-
burðarlyndi, sem ekki nær þó tU
ferðalanganna með bjórdósiroar.
Við þá er hvorki hægt að segja góðan
daginn né góða nótt enda eru þeir að
taka með sér bjór inn i landið sem
yfirtoUaranum er verr við en
lögreglustjóranum.
Þetta framtak yfirtollarans hefur
nú verið tekið fyrir af lögreglustjór-
anum og utanríkisráðuncytinu sem
hafa veitt honum opinbera á-
minningu fyrir óhlýðni í starfi. Kær-
an hefur ekki verið tekin tU greina.
Má því búast við að yfirtollarinn
bætti að bjóða lögreglustjóranum
góðan daginn og reyndar óUklegt að
sá siðaraefndi taki kveðju manns
sem hefur verið áminntur opinber-
lega fyrir að vUja taka lögin í sínar
eigin hendur. Á meðan er
ferðalöngum óhætt með bjórinn sinn.
Dagfari.