Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Page 14
14
DV. MÁNUDAGUR12. ÁGÚST1985.
KENNARAR
Kennara vantaraðgrunnskóla Hólmavíkur.
Æskilegar kennslugreinar: Almenn kennsla á barnastigi
og raungreinar og fleira á unglingastigi. Frítt húsnæði.
Nánari upplýsingar gefa formaður skólanefndar í síma
95-3155 og sveitastjóri í síma 95-3193.
Skólanefnd.
TILBOÐ
Tiloboð óskast í eignir Arnarbakarís, nnr. 0454-6954,
Dalshrauni 13, Hafnarfirði,eign þrotabús Sigurðar Jóns-
sonar, nnr. 7878-1106, Ástúni 14, Kópavogi.
Frekari upplýsingar veitir Rúnar Mogensen héraðs-
dómslögmaður, Hamraborg 12, Kópavogi, s. 43900.
Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 21. ágúst 1985.
Rúnar Mogensen hdl.
# 1 lúsnæöisstofnun rikisins
SÍMI 2Pr)00 • LAUGAVECI 77 101 REYKJAVÍK
ÚtboÓ
BÚLANDSHREPPUR
(DJÚPIVOGUR)
Stjórn verkamannabústaða, Búiandshreppi, óskar eftir
tilboðum í byggingu einnar hæðar parhúss, 191 m2 og
670 m3.
Húsið verður byggt við ónefnda götu á Djúpavogi, og
skal skila fullfrágengnu 31. okt. 1986.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrifstofu
Búlandshrepps og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar
ríkisinsfrá þriðjudaginum 13. ágúst nk. gegn kr. 10.000,-
skilatryggingu.
Tilþoðum skal skila á sömu staði, eigi síðar en
þriðjudaginn 27. ágúst nk. kl. 13.30, og verða þau opnuð
að viðstöddum þjóðendum.
f.h. Stjórnarverkamannabústaða
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
IIIIAUSAR STÖÐUR HJÁ
'lr REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Forstöðumaður við dagh./leiksk. Iðuborg, Iðufelli
16.
• Forstöðumaður við Barónsborg, Njálsgötu 70.
• Matráðskonaviðskóladagh. Hálsakot v/Hálsasel.
• Matráðskona við dagh. Sunnuborg, Sólheimum 19,
1/2 starf.
• Starfsmenn og fóstrur við eftirtalin heimili:
Bakkaborg v/Blöndubakka.
Laufásborg, Laufásvegi 53—55.
Múlaborg v/Ármúla.
Stakkaborg, Bólstaðarhlíð 38.
Sunnuborg, Sólheimum 19.
Hraunborg v/Hraunberg.
Iðuborg, Iðufelli 16.
Álfaborg, Safamýri 32.
Kvistaborg v/Kvistaland.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónar-
fóstrur á skrifstofu dagvistar í síma 27277 og for-
stöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 19. ágúst 1985.
ATHUGASEMD VIÐ
FIMMTUDAGSPISTIL
MAGNÚSAR
BJARNFREÐSSONAR
Löngum hefir sá þótt mikiö færast
í fang sem sækir einn síns liðs móti
ofureflinu einn og óstuddur. Slíkt
kapp kann aö vekja aðdáun en
minnir stundum á orrustur
Donkíkóta viö vindmyllur foröum tíö
sem frægt er á bókum. Og stundum
sækjast nútíma riddarar viöskipta
og verslunar eftir aö koma lagi á
tiltölulega saklausan félagsskap,
gera hann tortryggilegan og jafnvel
ræna æru. Þannig birtist vikulegur
fimmtudagspistill Magnúsar Bjarn-
freðssonar 25.7.1985 sem allharka-
leg árás á þann alþjóölega félags-
skap sem „Greenpeace” nefnist.
Sem áhugamaður um náttúruvernd
hlýt ég undirskrifaður aö snúa hug
mínum til andmæla nefndum
Magnúsi og benda á sitthvað sem
vart getur talist ábyggilegur né lofs-
veröur málflutningur af hans hálfu.
Hvar ber okkur
að standa?
Flestum sem telja sig vera
upplýsta og sæmilega vel aö sér er
ljóst aö auðlindir jarðar eru ekki ó-
þrjótandi. Víöa er sóunin slík aö nátt-
úru er stefnt í voöa á ýmsar lundir.
Þaö kemur fram í rányrkju, eyöingu
dýrategunda sem annarra auölinda,
mengun og umhverfisspjöllum af
ýmsu tagi. Eitt mesta hitamál, sem
hlotnast hefir sá heiður aö fylla síður
dagblaöanna á Islandi undanfariö, er
deilan um bann viö veiði hvala. Talið
er fullvíst að dýrategund þessi eigi í
vök aö verjast og sporna veröi viö
frekari veiöum aö svo stöddu. Margt
bendir til að svo geti fariö aö hvalir
veröi útdauðir áður en langt um líður
ef ekkert er aö gert til aö stuðla aö
viögangi þeirra. Ýmsar tegundir eru
þegar í mikilli útrýmingarhættu.
Fimmtudagspistill Magnúsar
nefnist „Ofbeldi skæruliöa auö-
magnsins”! Oröið skæruliöi tengist
hernaöi og þykir skæruhernaður
vænleg aðferö gegn ofurefli liös. Ef
auöur er nægur þarf þá nauðsynlega
aö beita skæruhernaöi? Hvernig
Magnús tengir aögerðir
grænfriöunga viö hernaö verður að
teljast nokkuö langsótt. Svo sem
kunnugt er af fréttum beita græn-
friöungar m.a. áþekkum aöferðum
og Islendingar í síðustu landhelgis-
deilum. Aögeröir miöuöust við aö
trufla veiöar og er ástæöa þótti til
voru atburðir kvikmyndaðir gjör-
völlum heiminum til frekari
fróöleiks og fræðslu. Ofbeldi var ekki
tíökaö af neinu tagi. Svo er einnig hjá
„Greenpeace”.
Hagsmunir hverra
Magnúsi bregst illa bogalistin í
gagnrýni sinni aö tengja
grænfriöunga við auðmagnið sem
ráöist „á garöinn, þar sem hann er
lægstur”. Ekki er minnst aukateknu
oröi á hagsmuni Islendinga ööruvísi
en þá sameiginlega sem h/f Hvalur
hefir aö gæta. Einhvern tíma heyrði
ég aö þaö fyrirtæki væri á snærum
GUÐJÓN
JENSSON
PÓSTAFGREIÐSLUMAÐUR
enska auðhringsins „Unilever” sem
mun vera í hópi stærstu auðhringa
heims. Afurðir hvalvinnslu skipta
sáralitlu fyrir Islendinga. Þær hafa
veriö um og stundum rétt yfir 1% af
heildarútflutningi undanfarin ár.
Hins vegar eru hagsmunir
„Unilever” meiri. Hraöfrystiafuröir
skipta meiru máli fyrir Islendinga
því þær nema ríflega þriöjungi af
heildarútflutningi landsmanna. Illt
er til þess aö vita aö stofna á mun
meiri hagsmunum í hættu en þörf er
á. Þaö ber fremur aö leysa þetta mál
á skynsamlegan hátt sem væri
Islendingum sómi aö.
Orðaval Magnúsar í nefndum
pistli er skoðunum hans ekki til
framdráttar. Orð eins og
„auömannapakk”, „frekja”,
„glæpamenn”, „kjaftasamkunda
Noröurlandaráös”, „valdhroki” og
„þingkelling”, sem öll koma fyrir í
þessum pistli eru Magnúsi til vansa.
Skýtur þaö skökku viö þar sem hann
er ágætlega ritfær og virtur vel á
sínu sviði.
Gegn rányrkju-
sjónarmiðinu
Rányrkjusjónarmiöin eru víöa
með djúpar rætur og þeir sem
aðhyllast þau eiga á stundum all-
erfitt meö aö átta sig á breytingum
og nýjum viðhorfum. Islendingar
eiga marga mikilsveröa hagsmuni
sameiginlega markmiöum tengdum
frænfriöungum. Magnús bendir
réttilega á baráttu „Greenpeace”
manna gegn losun hættulegra úr-
gangsefna í hafiö, og er sú barátta
miklum erfiöleikum bundin. Þaö
væri betur aö Islendingar styddu viö
bakiö á slíkum samtökum og efldu í
staö þess aö níöa skóinn niður af
þeim. Það má ekki veröa hlutskipti
Islendinga aö vera í hlutverki
gamals draugs sem dagaö hefir uppi
á upplýsingaöld hinni síðari.
Islendinga veröur aö öðrum kosti
minnst um ókomna framtíð fyrir aö
þaö voru þeir sem áttu hlut að út-
rýmingu einnar stærstu og stór-
kostlegustu dýrategundar sem Móöir
jörðhefiralið.
Guöjón Jensson.
„Sem áhugamaður um náttúruvernd hlýt ég undirskrifaður að snúa
hug mínum til andmæla nefndum Magnúsi og benda á sitthvað sem
vart getur talist ábyggilegur né lofsverður málflutningur af hans hálfu."
® „Rányrkjusjónarmiðin eru víða
með djúpar rætur og þeir sem
aðhyllast þau eiga á stundum allerfitt
með að átta sig á breytingum og nýjum
viðhorfum.”