Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1985, Blaðsíða 23
ÐV. MANUDAGUR12. ÁGOST1985.
23
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Nágrannaslagurinn
varð að vináttuleik
— þegar Kef lavík vann Víði, 4:0, í 1. deild
Nágrannaslagurimi, sem auglýstur var svo
rækáega á milli tBK og VBis, var mikiu frem-
ur vináttuleikur á milli þessara aöila en harður
bardagi eins og menn áttu von á. Keflvíkingar
sigruðu nokkuð auðveldlega, enda gekk þeim
flest í haginn, með fjórum mörkum gegn
engu, þar af voru þrjá skoruð í fyrri hálfleik
sem höfðu yfir sér nokkurn heppnisbiæ. Kefl-
vikingar hafa þar með hlotið 19 stig og von um
Evrópusæti ef þeir halda áfram að spjara sig.
Staða Víðis er slæm í deildinni svo að næstu
leikir verða þeim erfiðir eu möguleikarnir á
að halda sér í deildinni eru fyrir hendi svo
engin ástæða er til að gefast upp þótt á móti
blási.
Allhvasst var af norðri meðan á leiknum
stóð og Keflvíkingar kusu að hafa vindinn í
bakið í fyrri hálfleik. Heimamenn reyndu að
notfæra sér það en Víðismenn vörðust vel og
gáfu þeim sjaldan tíma til að skipuleggja
sóknaraðgeröir sínar, þó komst Oli Þór
Magnússon í gott færi á 8. mín. en skaut
framhjá marki.
Þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn
af leiknum börðust Einar Ásbjörn Olafsson og
Ragnar Margeirsson um knöttinn. Hrösuöu
báðir en dómarinn, Sveinn Sveinsson, dæmdi
umsvifalaust vítaspyrau, taldi að Einar hefði
sparkað viljandi í fót Ragnars. Víðis-
mönnum þótti þetta rangur dómur en Ragnar
skoraði eigi að síður úr vítaspyrnunni, 1—0.
Við markið var eins og létti yfir IBK-liðinu,
þaö lék yfirvegaö og á 27. min. skoraði Helgi
Bentsson annað mark heimamanna. Víðis-
vörnin gleymdi honum hreinlega, taldi hann
vera rangstæðan en línuvörðurinn var ekki
sammáia og Helgi átti ekki í neinum örðug-
leikum með að renna knettinum í markið.
Skömmu áður átti Vilhjálmur Einarsson góða
möguleika á að jafna þegar hann skaut hörku-
Maður leiksins: Helgi Bentsson, IBK.
skoti á lBK-markið af stuttu færi.Þorsteinn
Bjarnason sýndi snilld sína og varði með hár-
réttu úthlaupi.
Þriðja markið setti Víðismenn mjög úr
jafnvægi og vonleysi kom upp í liðinu og það
kannski ekki aö ástæöulausu. Fjórum mín.
fyrir hlé átti Sigurður Björgvinsson fast skot
að marki Víðis en knötturinn stefndi framhjá.
Hins vegar varð Gunnar Oddsson fyrir honum
og af höfði hans fór knötturinn í markið, 3—0.
Víðismenn sóttu undan vindinum í seinni
hálfleik en þeim virtist fyrirmunað að geta
skotið þótt sæmileg tækifæri sköpuðust, þá
vantar greinilega skyttur. Skyndisóknir IBK
voru jafnan hættulegar þótt svo Ragnar Mar-
geirsson væri farinn af velli en hann er ekki
orðinn heill eftir tognun fyrir tveimur
vikum. Á 37. min. braust Helgi Bentsson í
gegnum Víðisvöraina og skoraði sitt annað
mark, en fjórða í leiknum, með föstu skáskoti,
óverjandi fyrir Gísla Heiðarsson sem annars
stóð sig vel í leiknum, 4—0.
Leikurinn var fremur leiðinlegur á að horfa
enda hvasst og kalt. Keflvíkingar höfðu þó
öllu meira vald yfir gjörðum sínum. Nokkuð
bar á samhlaupum manna og lágu þá á stund-
Everton sigraði Manchester
United i keppninni um góðgerðar-
skjöldinn á laugardaginn. Þegar upp
var staðið htífðu Evertonmenn skorað
tvö gegn engu hjá Man. Utd. Trevor
Steven og Adrian Heath gerðu mörk
liðsins sem einnig vann skjöldinn í
fyrra.
82.000 áhorfendur mættu á Wembley-
völlinn til að horfa á fyrsta stórleik
ensku knattspyrnunnar síðan harm-
leikurinn í Brussel átti sér stað.
Andrúmsloftið var mjög magnþrungið
í þessum fyrsta leik sem leikinn er án
áfengis. Það er, ekkert áfengi var selt
á vellinum eins og nú hefur verið lög-
boðið.
Liðin fóru hægt af stað, þreifandi
fyrir sér og reyndu að finna veikleika í
um margir í vainum eins og um hópslys væri
að ræða. Engin alvarleg meiðsl urðu á leik-
mönnum. Gísli Eyjólfsson var sá eini sem vék
af velli þess vegna á 41. min.
vörnum andstæðinga. Everton
uppskar árangur á 27. mínútu. Paul
McGrath mistókst þá að hreinsa frá
marki Man. Utd. og Kevin Sheedy náði
boltanum af honum. Sheedy sendi bolt-
ann til enska landsliðsmannsins
Trevor Steven sem afgreiddi hann í
netið af stuttu færi. 1—0 og hefnd
Everton á ósigrinum í UEFA
bikarnum var á leiðinni.
Liðin skiptust á að sækja á mark
andstæðinganna án mikils árangurs. I
síðari hálfleik æstust leikar
allverulega og liðin heföu hvort um sig
getað gert mark.
Átta mínútum fyrir leikslok tryggði
Everton sér svo sigurinn. Það var
Adrian Heath sem gerði markið en
hann kom inn á sem varamaður fyrir
Ðómari: Sveinn Sveinsson. Honum urðu á
þau mistök að dæma mark hjá ÍBK áður en
knötturinn fór inn fyrir marklínu. Leikmenn
hættu og Viðispiltarnir misstu af góðu tæki-
færi.
Áhorfendur: 930.
Lið IBK: Þorsteinn Bjarnason, Sigurjón
Sveinsson, Valþór Sigþórsson, Freyr Sverris-
son, Ingvar Guðmundsson, Sigurður Björg-
vinsson, Helgi Bentsson, Ragnar Margeirsson
(Björgvin Björgvinsson 62. mín.), Gunnar
Oddsson, Öli Þór Magnússon, Sigurjón Kristj-
ánsson (Jóhann Magnússon, 79. min.).
Lið Víðis: Gísli Heiðarsson, Oiafur Róberts-
son, Gísli Eyjóifsson (Hjörtur Davíðsson 41.
min.), Klemenz Sæmundsson, Einar Ásbjörn
Oiafsson, Vilhjáimur Einarsson, Grétar Ein-
arsson, Guðmundur Jens Knútsson, Vílberg
Þorvaldsson, Guðjón Guðmundsson, Daníei
Einarsson.
Gul spjöid: Helgi Bentsson, Sigurður Björg-
vinsson, Óli Þór Magnússon, Jóhann Magnús-
son, aliir í IBK, Viihjálmur Einarsson, Víði.
emm
8.000 punda leikmanninn Gary Liniker.
Gary Stevens sendi boltann fyrir
markið, Gary Bailey hljóp út en mis-
tókst að ná í boltann, sem barst til
Adrian Heath. Hann var ekki í vand-
ræðum og gerði mark, 2—0.
Tvö varnarmistök komu þarna í veg
fyrir að Man. Utd. tækist að krækja
sér í skjöld góðgerðanna. Everton-liðiö
lætur ekkert hægja á sér, þetta eru
þeirra fimmtu verðlaun á 15 mánuöum.
Engin læti voru á vellinum en áhorf-
endur voru talsvert færri en búist
hafði verið við. Leiknum var ekki
sjónvarpað beint í Bretlandi en BBC
fékk að sýna valda kafla úr leiknum
um kvöldið.
-SigA.
Fimmtu verðlaun Everton
á fimmtán mánuðum
— sigruðu Man.Utd., 2:0, á Wembley