Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Qupperneq 27
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985.
27
íþróttir
íþróttir
Laudrup að verða
nýi kóngurinn
- hjá Juventus. Skoraði sigurmark liðsins gegn meisturum Verona um helgina
og átti frábæran ieik. Rummenigge vann sér inn bflútvarpstæki
Holland:
PSVog
Feyenoord
átoppnum
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DV:
PSV Eindhoven vann öruggan sigur
á AZ ’67 í hollensku 1. deUdinni um
helgina og heldur því toppsæti sínu á
betra markahlutfalli en Feyenoord
sem vann Fortuna Sittard, 3—1. Bæði
Uðin hafa hlotið fimmtán stig eftir níu
leiki.
Norski landsliðsmaðurinn Hallvar
Thorensen kom PSV á sporið og Rene
Van de Gijp bætti ööru marki við fyrir
hlé. Van der Gijp var síðan aftur á
ferðinni í seinni hálfleiknum með sitt
annaö mark og Frans Van Rooy skor-
aði þaö f jórða.
Henk Duut skoraði fyrir Feyenoord á
27. mínútu en Arthur Hoyer náði að
jafna fyrir Sittard rétt fyrir hlé. Simon
Tahamata og John Eriksson sökktu
Sittard liðinu í seinni hálfleiknum.
Meistarar Ajax eru nú óöum að ná
sér eftir slæma byrjun. Um helgina
vann liðið Eagles, 2—1. Eagles náði
forystunni en tvö mörk Marco Van
Basten tryggðu Ajax sigurinn.
-fros
Daninn Michael Laudrup er nú óðum
að vinna sér inn álit sem skærasta
stjarna Juventus. Hann skoraði sigur-
mark liðsins um helgina gegn meistur-
um Verona og Juventus skaust þar
með upp í efsta sæti ítölsku deildarinn-
ar. Franski landsliðsfyrirliðinn
Michael Platini, sem verið hefur
ókrýndur kóngur hjá Juventus, hefur
því eignast skæðan keppinaut um þann
titil. Mark Laudrup kom eftir einleik
hans frá vítateigshomi og Juventus hef-
ur því unnið fjóra sigra í jafnmörgum
leikjum. Þess má geta að Verona hafði
ekki tapað í fimm síðustu leikjum sín-
um á heimavelli við Juventus.
Það voru fleiri en Laudrup sem
skyggðu á Platini um helgina. V-þýski
landsliðsmaöurinn hjá Inter Milano,
Karl-Heinz Rummenigge, skoraöi
strax á annarri minútu gegn Udinese
og vann sér þar með inn bílaútvarps-
tæki sem boðið er þeim leikmanni sem
skorar fyrsta mark hverrar umferðar.
Rummenigge hefur því skorað fimm
mörk og er nú markahæstur í deildinni
en þess má geta að Platini hefur verið
markahæstur þau þrjú ár er hann hef-
ur leikið með Juventus.
Paul Rideout, sem Bar keypti frá
Aston Villa fyrir keppnistímabilið,
skoraöi eina mark liðs síns en Svíinn
Dan Corneliusson jafnaði fyrir Como.
Mark Hateley skoraöi sín tvö fyrstu
mörk á keppnistímabilinu fyrir AC
Milano gegn Avellino.
Úrslit leikja: Atalanta—Pisa 1-2
Bari—Como 1-1
Fiorentina—Lecce 3—1
Milan—Avellino 3-6
Napoli—Roma 1—1
Torino—Sampdoria 1—0
Udinese—Inter Milano 1-1
Verona—Juventus 0—1
Staðan:
Juventus
Fiorentina
Milan
Napoli
Torino
Inter Milano
Roma
4 4 0 0 6—1 8
4 3 0 1 7—3 6
4 3 0 1 5—2 6
4 2 2 0 5—3 6
4 2 2 0 3—1 6
4 2 118—55
4 2 11 4—4 5
-fros
íþróttir fþróttir íþróttir
Styrkið og fegrið iíkamann
Vetrarstarfið hefst að fullu með 5
vikna námskeiði 7. október.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértimar fyrir
konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem
eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu-
böð — kaffi — og hinir vinsælu sólaríum-lampar.
Leikfimi fyrir konur á ölium aldri.
Júdódeild Ármanns
Á 'I 99 Innritun og upplýsingar alla virka daga
Mrmuia sz. k|. 13-22 í síma 83295.
Verð/aunagrípir
og verð/aunapeningar
í miklu úrva/i
FRAMLEIÐI OG ÚTVEGA
FÉLAGSMERKI
PÓSTSENDUM
Magnús E.Baldvinsson sf.
^Langholtsvegi 111 sími31199L/
Canoti
LJÓSRITUNARVÉLAR
Canon Ijósritunarvélarnar bjóða upp ó möguleika
sem henta öllum, þœr eru litlar og meðfœrilegar,
gefa hreinar og fallegar kópfur ó hvaða pappfr
sem er í 5 mismunandi litum.
Ein þeirra er Canon PC 20. Hún hefur pappírshleðslu
fyrir i 00 blöð og Ijósritar 8 blöð ó mfnútu.
Kynntu þér kosti Canon.
Ijóslifandi orkusparnaður
80% laegri lýsingarkostnaður
og sexföld ending