Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1985, Blaðsíða 7
DV. MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Af hveriu er verið að selja óleyfi- legar perur? „Eg hef aldrei heyrt um aö þessar perur væru ekki leyfðar. Eg veit aö þær eru á mörgum stofum. Af hverju er þá verið aö selja þetta ef þaö er ekki leyfilegt,” sagði Þórunn Anna Björns- dóttir hjá sólbaösstofu sem auglýst hefur Belarium S perur í sínum lömp- um. Hún sagðist hafa tekið viö rekstri sólbaðsstofunnar fyrir þrem vikum og kæmi þetta sér algerlega á óvart. Þór- unn Anna var greinilega slegin yfir þessum upplýsingum. Hún kannaðist ekki við að hafa nokkru sinni heyrt um skaðsemi Belarium S peranna. A.Bj. HEILBRIGDISEFT- IRLITIÐ EKKI ATHl „Heilbrigðiseftirlitið kom hingað og skoðaöi allt og skrifaði niður hvaða perur voru hér í notkun. Þeir geröu engar athugasemdir,” sagði Þrúöur Guönadóttir á sólbaðsstofu, sem auglýst hefur sérstaklega Belar- GERDI JGASEMD ium S perur. Perurnar eru frá Benco, aö sögn Þrúðar, og sagðist hún aldrei hafa heyrt um annað en að Belarium S perurnar væru viðurkenndar perur. A.Bj. UPPLÝSINGAR UM ÚTFJÓLUBLÁA GEISLUN: Dreifing útfjólublárrar geislunar frá sólarlampa, er hlotið hefur samþykki geislavarna Hollustuverndar rikisins, er mjög lik dreifingu útfjólublárrar geislunar frá sólinni. Þó getur útfjólubláa geislunin frá sólarlampanum verið mun meiri, oft um fjórum (4) sinnum meiri, en útfjólubláa geislunin frá sólinni. Skaðleg áhrif á augu og húð: Skaðleg áhrif of mikillar útfjólublárrar geislunar frá sól og sólarlömpum eru vel þekkt. Hun getur valdið skaða á augum (snjóblindu) og á húð (roða-bruna). Hversu mikil skaðlegu áhrifín verða, ræðst af því hversu næmur einstaklingurinn er fyrir útfjólublárri geislun, svo og af því hversu mikil geislunin er. Því meiri, sem geislunin er, þess alvarlegri verða áhrifin. Húð, sem ekki er sólbrún fyrir, er mun næmari fyrir útfjólublárri geislun, en húð sem þegar er sólbrún. Ofnæmi: Ýmis efni, sem eru í sumum lyfjum og fegrunarlyfjum, geta aukið mjög næmi fyrir útfjólubláum geislum. í sérstökum tilfellum geta þessi efni valdið ofnæmi fyrir útfjólublárri geislun. Húðkrabbamein: Útfjólublá geislun getur, á löngum tíma, valdið varanlegum breytingum á húðinni. Húðin eldist um aldur fram, verður hrukkótt og hrjúf. Þessar breytingar geta verið undanfari húðkrabbameins. Vitað er, að samband er á milli útfjólublárrar geislunar og húðkrabba- meins. Varahlutir: Mikilvægt er, að aðeins séu notaðir viðurkenndir varahlutir, svo sem siur, perur og annað í sólarlampa. Notkun annarra varahluta getur aukið útfjólubláa geislun með stutta bylgjulengd. Eykur það hættuna á skaðlegum áhrifum. Geislavarnarreglur: 1. Notið ávallt gleraugu. 2. Fylgið leiðbeiningum um lengd og tiðni sólbaða. Farið ekki oftar en einu sinni á dag í sólbað. 3. Vmis efni í sumum fegrunarlyfjum geta valdið ofnæmi. Hreinsiö þvi húðina vandlega fyrir sólbað. 4. Viss lyf geta valdið ofnæmi. Hafið þvi samráð við lækni, áður en þér farið í sólbað, ef þér eruð í lyfjameðferð. 5. Leitið læknis, og þá helst húðsjúkdómafræöings, ef þér takið eftir varanlegum breytingum á húð yðar. Dragið það ekki, ef um er að ræða myndun fæðingarbletta, sem stækka. 6. Notið aðeins viðurkennda varahluti og sams konar perur og gert er ráð fyrir, að notaðar séu. HOLLUSTUVERND RÍKISINS - GEISLAVARNIR - Það er sniðugt ráð að ryksuga óværuna af stofublómunum en sennilega er gott að nota eitur jafnhliða. DV-mynd GVA Oværan ryksug uð af plöntum „Við urðum fyrir þeirri óskemmti- legu reynslu, hjónin, að við fengum lús á stofublómin okkar. Við vorum búin að eitra en allt kom fyrir ekki,“ sagði heimilisfaðir einn í samtali við ney tendasíðu D V. „Við urðum að henda tveimur plöntum sem okkur þótti mjög mið- ur. Svo áttum við mjög fallega rós úti í garði sem búin var að blómstra. Okkur datt í hug að taka hana inn og þá kom þessi spunamaur einnig áhana. Við keyptum meira eitur í blóma- búð, aðra tegund en fyrr, en allt kom fyrir ekki. Enn voru óþrifin áblóm- unum. Nú var þetta komið á þrjár plöntur, einn ficus benjaminicus, fíngert aspas-blóm og rósina. Enn fengum við okkur eitur, það var þá þriðja tegundin. Og allt kom fyrir ekki. Þá var það sem mér datt í hug að gera eitthvað alveg rót- tækt. Ég ryksugaði blómin! Ég er með kraftmikla ryksugu með víðum stút og hreinlega ryk- sugaði blómin. Laufin soguðust inn í stútinn en þó ekki svo að þau færu af, nemaþau sem voru ljót og ónýt. Ég fylgdist mjög vel með plöntun- um eftir þetta og það sást ekki ein einasta padda. Nú eru liðnir tveir mánuðir síðan og það hefur ekki borið á neinum óþrifum. Með því að nota ryksuguna, eftir að búið var að eitra kröftuglega, fjarlægði ég alla nitina og það virðist alveg hafa dugað! Mér datt í hug að koma þessu á framfæri ef einhverjir aðrir ættu í svipuðum erfiðleikum og við,“ sagði heimilisfaðirinn sem nýtur þess nú að virða fyrir sér heilbrigðar stofu- plöntur. A.Bj. Hannyrðaverslunin Erla er 15 ára J ^ í dag §ann\)ri>aber$íunin %vla í tilefni dagcsins veitumvið JQ% afmaslisafslétt Snorrabraut 44 Sími 14290

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.