Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1986, Side 20
20
DV. MÁNUDAGUR10. FEBRUAR1986
Hin árlega árshátíð Stangaveiði-
félags Reykjavíkur var haldin í 42.
sinn á föstudagskvöldið á Hótel
Sögu og var húsfyllir. Margt var
til ekemmtunar; Kristinn Sig-
mundsson söng, skemmtidagskrá
Ladda (Þórhalls Sigurðssonar),
vísnakeppni og happdrætti, af-
hending heiðursmerkja og svo
hápunkturinn, afhending bikara
fyrir stærstu laxana í ámfélagsins.
Sportstyttan var veitt Þórhöllu
Haraldsdóttur fyrir stærsta laxinn
sem kona veiddi á vatnasvæði
SVFR, en hún veiddi 30. júní 15
punda hrygnu á Landaklöpp í Sogi
fyrir Syðra-Brúarlandi á Black
Sheep túpu.
Kvennabikarinn Grímu fékk
Dóra Georgsdóttir fyrir þyngsta
laxinn sem kona veiddi í Grímsá.
Hún veiddi 2. september hrygnu í
Oddsstaðafljóti í Grímsá á maðk.
Hlíðagrillsbikarinn fékk Jónas
Jónasson fyrir stærsta flugulaxinn
í Norðurár, veiddan 14. júlí á Berg-
hylsbroti á svarta Francis nr.,8,,
fiskurinn var 18 punda hængur.
Útilífsbikarinn var veittur fyrir
stærsta flugulaxinn í Elliðaánum
og voru tveir með jafnþunga laxa.
Pétur R. Guðmundsson veiddi 12.
júlí 13 punda hæng í Höfuðhyl á
Crossfield nr. 8 og Héðinn Péturs-
son veiddi 5. september 13 punda
hæng á Hrauninu á rauðan Francis
nr. 8.
Laxinn, sem Friðleifur Stefáns-
son veiddi í opnunarhollinu í
Stóru-Laxá í Hreppum, veitti hon-
um þrenn verðlaun á árshátíðinni
um helgina og var laxinn 24 punda
VEIÐIVON
GunnarBender
hængur, 110 cm. Friðleifur Stefáns-
son fékk fyrir laxinn Sportvals-
bikarinn fyrir stærsta flugulaxinn,
Vesturrastarstyttuna fyrir stærsta
laxinn á leyfilegt agn og Gull og
silfur-fluguna fyrir stærstá flugu-
laxinn. Laxinn tók Jónínu Strea-
mer 2/0, en henni svipar til Þingey-
ings-túpunnar.
Eftir þetta var stiginn dans fram
eftir nóttu og nokkrar veiðisögur
heyrðust fljúga manna á meðal.
Sumir höfðu fengið laxa en aðrir
misst og sumir ætluðu að fá þann
stóra í sumar.
G. Bender.
Sigurður Steinþórsson segir Friðleifi Stefánssyni eina veiðisögu um leið
og Gull og silfur-flugan er afhent. DV-mynd G. Bender.
Árshátíð Stangaf eiðifélags
Reykjavíkur:
ÞRENN VERÐ-
LAUN Á „JÓN-
ÍNU STREAMER”
Verðlaunahafarnir Þórhalla Haraldsdóttir með Sportstyttuna, Dóra
Georgsdóttir með kvennabikarinn Grímu, Jónas Jónasson með Hliðagills-
bikarinn, Pétur R. Guðmundsson með Útilifsbikarinn og Friðleifur Stef-
ánsson með Sportvalsbikarinn og Vesturrastarstyttuna.
DV-mynd G. Bender.
Sprengisandur - veitingahúsið við Elliðaárnar.
Hænsnakappflug
við Sprengisand
ogspurningakeppni
Tveggja milljón kr. bíll verður aðalvinningur
„Ég er með ýmislegt á prjónunum.
íslandsmeistaramót í hænsnakapp-
flugi verður haldið hér við Sprengi-
sand á sumardaginn fyrsta. Hænsna-
kappflug er mjög vinsælt í Banda-
ríkjunum. Sá sem á sigurvegarann í
kappfluginu hér fær ferð fyrir tvo til
Ohio í Bandaríkjunum í vinning. Þar
fer firam bandaríska meistaramótið í
hænsnakappflugi," sagði Tómas
Tómasson, eigandi veitingastaðarins
Sprengisands.
„Það verður öllum velkomið að
koma með hænur sínar og láta þær
taka þátt í kappfluginu. Það verða
ýmsar uppákomur þegar keppnin fer
fram,“ sagði Tómas.
Tómas sagði að þá væri fyrirhuguð
spurningakeppni í sumar á Sprengis-
andi. Aðalvinningurinn í þeirri
keppni verður hinn glæsilegi bíll
Tómasar, hvíti Bentleyinn, sem er
tveggja milljóna króna virði. Bíllinn
er ekinn aðeins þrjú þús. km. „Þetta
verður einföld spumingakeppni, sem
allir geta tekið þátt í. Keppnin mun
standa yfir í átta til tíu vikur. Það
verður ný spuming í hverri viku og
'vikulega verður dregið um auka-
vinninga," sagði Tómas.
Viðskiptavinir Sprengisands fá
sérstakt tilboð nú í febrúar. Þeir sem
koma á milli kl. 17 og 18 fá hamborg-
ara, franskar kartöflur og kók fyrir
aðeins 99 krónur. í mars varður sér-
stakur Fílakaramellumánuður. Þá fá
viðskiptavinir stórar karamellur í
kaupbæti.
Á þessu sést að það verður ýmislegt
um að vera á Sprengisandi á næs-
tunni. Tómas sagði að búið væri að
vinna á byrjunarerfiðleikum. „Nú
koma hingað um 700 matargestir á
dag. Við getum tekið 120 gesti í
sæti,“sagðiTömas. -SOS
Bíllinn sem verður í verðlaun í spurningakeppni Sprengisands.
Ur Seðlabankanum
í fjármálaráðuneytið
Að tillögu fjármálaráðherra hefur
forseti íslands skipað Sigurgeir
Jónsson ráðuneytisstjóra fjármála-
ráðuneytisins frá 1. apríl næstkom-
andi. Sigurgeir Jónsson starfar nú
sem aðstoðarbankastjóri Seðlabank-
ans. „Ég hlakka til að takast á við
ný verkefni. Ég hef starfað við Seðla-
maður til með að sakna starfsins og
Vinnufélaga en það er alltaf gaman
að breyta til,“ sagði Sigurgeir Jóns-
son í samtali við DV
Þrír aðrir umsækjendur voru um
stöðuna, þeir Indriði H. Þorláksson,
skrifstofustjóri tekjusviðs fjármála-
ráðuneytisins, Magnús Pétursson
son, skrifstofustjóri fjármálaráðu-
neytisins.
„Ég tel alla þessa menn hæfa til
starfsins, en einn varð að velja. Sig-
urgeir Jónsson hefur mikla reynslu
af störfum á sviði fjármála, það réði
úrsíitum", sagði Þorsteinn Pálsson
ok ó„ r,p auðvitað kemur
l-í^fTc\rQliicfíni'ri nrr ^' v