Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1986, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986.
Spumingin
Hefurðu horft á Stöð 2?
Guðrún Baldursdóttir sjúkraliði:
Nei, það hef ég ekki gert og ætla
ekki að kaupa mér afruglara, stöð 1
nægir mér alveg
Eva Kristinsdóttir sjúkraliði: Eg
hef nú ekki haft tækifæri til þess
hingað til og einnig finnst mér stöð
eitt algjörlega fullnægja mínurn þörf-
um
Hörður Guðmundsson: Nei, Stöð
1 hefur nægt mér hingað til og býst
ég fastlega við því að hún muni haída
því áfram. Nóg er um sjónvarps-
glápið nú þegar
WÍSmm
Sigurður Þorvaldsson bifvéla-
virki: Mér fínnst fullnóg að horfa á
stöð 1 og hef því ekki gefið mér tíma
til að horfa á Stöð 2.
Erna Jónsdóttir framkvæmda-
stjóri: Mér líst vel á Stöð 2 og held
hún lofi góðu, annars finnst mér per-
sónulega alveg nóg að hafa stöð 1
því maður hefur ekki meiri tíma fyr-
ir sjónvarpið
Sigrún Sigurgeirsdóttir nemi: Ég
hef ekki horft á hana og býst ekki
við að gera það. Samt líst mér mun
betur á dagskrárefnið á Stöð 2 heldur
en á 1.
Lesendur
Vígbúnaðarkapphlaupið
á að stóðva
Konráð Friðfmnsson skrifar:
Maraþonfundi leiðtoga austurs og
vesturs er lokið. Þvi miður án árang-
urs eftir því sem best verður séð. Þar
kom enn einn skellurinn fyrir þá sem
vilja afvopnun í heiminum og að
friður á jörð sé í heiðri hafður.
Draugamir sem gist hafa Höfða í
áratugi höfðu ekki þau jákvæðu
áhrif á stórmennin sem vonir mínar
vom bundnar við. Þrátt fyrir það er
mikil sárabót í því að Islendingar
em búnir að eignast frægustu hurð-
arhúna í heimi. Regnboginn fagri,
sem yfir fundarstaðnum birtist, gerði
ekki frekar en draugamir nokkurt
gagn þótt hann hafi verið talinn
merki um frið hér áður fyrr. Allir
vita nú hvemig fór. Er máttur álfa
og annarra vætta að engu að verða
í okkar gamla og góða landi? Það
er af sem áður var eins og kerlingin
sagði þegar karlinn kom edrú úr
réttunum.
Ræða Gorbatsjovs í Háskólabíói á
sunnudagskvöldið er ein sú merki-
legasta sem ég hef lengi heyrt og
sannfærði mig að minnsta kosti um
að æðsti maður Rússaveldis hefði
komið til íslands til að ná árangri í
þeirri vítisvitleysu sem vígbúnaðar-
kapphlaupið er og sem allir viti
bomir menn hljóta að viðurkenna.
Gorbatsjov taldi einnig að breytt
viðhorf almennings til vígbúnaðar-
bröltsins þyrfti að koma til svo
samningar stórveldanna gætu orðið
að veruleika, hann taldi einnig að
Reagan hefði ekki meirihluta sinna
kjósenda bak við sig varðandi
stjömustríðsáætlunina, sem ég vona
að rétt sé, en hver hefði getað ímyn-
dað sér fyrir fáeinum árum að leið-
togi Sovétríkjanna færi að leita á
náðir almennings sem að áliti vest-
urálfumanna virðir einstaklinginn
að vettugi og skoðanir hans að engu.
Ég hefði haldið að slík yfirlýsing,
sem gefin var frammi fyrir milljónum
jarðarbúa, væri umhugsunareíni
fyrir þá sem hafa áhuga á batnandi
samskiptum þjóðanna.
Spámaður er ég lítill en samt er
ég viss um að hinn nýi viðfelldni
leiðtogi Sovétmanna mun lyfta
Rússum á hærra plan meðal okkar
og er það að mínu mati orðið tíma-
bært að menn myndi sér sjálfstæða
skoðun á þeirri merku þjóð. Islend-
ingar ættu að einbeita sér að því að
eiga sem best samskipti við alla að-
ila, einnig eru hér góð skilyrði fyrir
boðbera friðar og mannréttinda. Við
ættum alltaf að hafa það að leiðar-
ljósi.
Stöð 2
Sjónvarpsáhorfandi skrifar:
Ég vil byrja á að þakka sjónvarpinu
(stöð 1) fyrir mjög góða dagskrá en
að mínu mati hefur hún batnað mjög
eftir breytingamar á dagskránni.
Ástæðan fyrir skrifrim mínum er
Stöð 2 og finnst mér hún ekki eins
jákvæð. Hvað eru þessir menn eigin-
lega að hugsa? Dagskráin á þessari
stöð er nógu góð, ekki vantar það, en
svo virðist sem Reykvíkingar og ná-
grannar eigi bara að njóta hennar. Svo
þarf fólk utan þess svæðis greinilega
að eiga einhver spes lofnet því það
næst ekki svo mikið sem stillimynd
Stöðvar 2 á Selfossi. Er þessi stöð of
góð fyrir fólk úti á landi? Svo eru það
þessir fjandans afruglarar. Mikið er
það nú stórkostlega fáránlegt að fólk
sem vill sjá þessa stöð þurfi að kaupa
sér afruglara á litlar 11.200 kr. Hvaða
hag sjá stöðvarmenn sér í þvi? Auk
þess er ég alls ekki viss um að allir
hafi efni á því. Ég er ekki í vafa um
að nú eru seljendur afruglaranna í
sjöunda himni yfir viðskiptunum.
Það hlýtur að vera hægt að koma
upp einhvers konar sendum svo allir
nái stöðinni, eða er það ekki það sem
þeir vilja? Þó svo að það kosti eitt-
hvað þá hlýtur það að borga sig þegar
fram í sækir því þá borga augljóslega
fieiri afnotagjöld til stöðvarinnar.
Ég er viss um að það eru margir
sammála mér og ég vona bara að að-
standendur stöðvarinnar sjái að sér
og sendi dagskrána út ótruflaða. Að
lokum hvet ég fólk til að skrifa og
láta í ljós skoðun sína á þessu máli.
„Vonast til að Stöð 2 sendi ótruflaða dagskrá út.“
„Atómvopnaframleiðsla ætti að fara til fjandans og leggjast með öllu niður.“
Sovét-
leiðtoginn
í æstu skapi
Ólafur Einar skrifar:
Ég fylgdist vel með leiðtogafund-
inum sem hér var haldinn og þó ekki
síður fundum þeirra hvors um sig með
blaðamönnum að loknum sjálfum
fundinum. Blaðamannafundur Gor-
batsjovs í Háskólabíói var fjölsóttur.
Leiðtoginn virtist í æstu skapi og tal-
aði að mestu leyti í kosningastil. Mér
skilst að leiðtogamir hafi orðið sam-
mála um fækkun langdrægra kjam-
orkuvopna um helming og verður það
að teljast nokkur árangur.
Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að öll
atómvopn og í raun öll atómvopna-
framleiðsla ætti nú þegar að fara til
fjandans og leggjast með öllu niður.
Áð öðru leyti vil ég bera fram eftirfar-
andi fyrirspum: Var lítið eða kannski
ekkert minnst á mannréttindi á þess-
um langa og stóra fundi?