Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Blaðsíða 22
■ 22 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987. Erlendir fréttaritarar Starfsmenn Linjegods í ólöglegu verkfalli Björg Eva Eriendsdótlir, DV, Osló: Fyrstu verkföll ársins hér í Noregi eru að he§ast. Fyrstir út í ár voru starfsmenn stærsta flutningafyrir- tækis landsins, Linjegods, sem fóru í ólöglegt verkfall á fimmtudaginn. Mörg verkföll og löng hafa verið árviss viðburður í Noregi síðustu árin. Þetta fyrsta verkfall mun marka stefhu annarra verkalýðsfélaga í launauppgjörinu í vor. Stjómvöld Noregs vilja engar launahækkanir í ár en ólíklegt er að stéttarfélög sætti sig við þá tillögu. Reyndar hefur stærsta verkalýðsfélag landsins, LO, lýst ákveðnum stuðningi við þessa spamaðaráætlun ríkisstjómarinnar. Félag atvinnurekenda er einnig mjög hlynnt áætluninni en það sem ekki er tekið með í reikninginn er að mestu launahækkanimar verða utan við stéttarfélögin í einstökum fyrirtækjum. Þetta skapar launamis- mun og grefur undan spamaðará- ætlun ríkisstjómarinnar. Fyrirtæki eins og Linjegods, sem eru í örum vexti og græða vel, vilja gjaman hækka launin hjá starfs- Verkföll hafa verið árviss viðburður í Noregi að undanförnu og árið í ár er engin undantekning. mönnum sínum. En þessi fyrirtæki em milli tveggja elda. Félag at- vinnurekenda og ríkisstjómin vilja halda laununum niðri en launþegar vilja fá sinn hluta af gróðanum. Linjegods vildi gjaman gera báðum til hæfis og brenndi sig þar með á báðum endum. Þeir þuðu starfs- mönnum sínum allháa launahækk- un og fengu þess vegna skammir hjá félagi atvinnurekenda fyrir að bjóða of hátt og grafa undan samkomulag- inu við ríkisstjómina um að halda niðri launum í ár. Starfsmönrium Linjegods þótti aft- ur á móti tilboð fyrirtækisins ekki nógu hátt og fóm því í verkfall. Ef starfsmenn Linjegods fá framfylgt kröfum sínum ryðja þeir brautina fyrir aðra launþega í Noregi. Þrátt fyrir stór orð ríkisstjómar- innar og sumra stéttarfélaga um að axla byrðamar saman og sleppa kauphækkunum í ár er hætt við að laun margra hópa eigi eftir að hækka mikið. Gunnar Berge fjár- málaráðherra segist vongóður um að geta haldið launahækkunum í skefjum í ár en víst er að fyrsta verk- fallið lofar ekki góðu um það. Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Kostnaður við Evrópusöngva- keppnina mun fara fram úr öllum áætlunum samkvæmt útreikning- um frönskumælandi sjónvarps- stöðvarinnar sem heldur keppnina. Tvö hundmð þrjátíu og sex millj- ónir íslenskra króna er nú áætlað- ur kostnaður en í upphafi var rætt um litlar hundrað og sextíu millj- ónir. Talið er að samanlagður kostn- aður geti verið orðinn fjögur hundruð milljónir þegar keppnin er afstaðin. Norðmenn eru taldir hafa eytt himdrað níutíu og sex milljónum í söngvakeppnina á síð- asta ári. Og nú eru Belgar að velta því fyrir sér hvort ekki sé betra að þeirra eigið lag heiti „Hver á að borga?“ Viktor Lazlo mun hljóta þann heiður að kynna söngvakeppnina. Sjálf byrjaði hún söngferil sinn 1983 og þó hún sé með franskan ríkisborgararétt varð hún fyrir valinu. Móðir hennar er frönsk en faðir hennar er Belgi. Fluttu þau til Belgíu er hún var ung að árum. Hóf hún nám í Evrópuskólanum í Brússell fimmtán ára og fór síðan í háskóla. Lazlo heíúr lært klass- ískan dans og hefiir hún unnið sem sýningarstúlka. Hún talar ensku, frönsku, flæmsku, þýsku og ít- ölsku. Stjómandi hljómsveitarinnar mun vera Jo Carlier en hann fór með Söndru Kim til Noregs í fyrra. Sandra Kim hefur gefið út hverja plötima á fætur annarri í sumar við mjög góðar undirtektir. Sandra Kim, er vann Evrópusöngvakeppnina I fyrra, hefur gefið út margar plötur við góðar undirtektir. Kostnaður við söngvakeppnina langt fram úr áætlun Noregur tekur f___■ ÍÆM.____ rærri Tiotianienn PáH ViDpnissan, DV, Qsló: Norsk yfirvöld ætla að gera flótta- mönnum erfiðara fyrir með að fa landvistarleyfi í Noregi. Vegna þess hve auðvelt heftir verið að fá land- vistarleyfi í Noregi hefur flótta- mannastraumurinn þangað aukist stórlega á síðustu mánuðum. Yfirvöld ætla að gera skarpan greinarmun á þeim sem sækja um hæli vegna pólitáskra ofsókna í heimalandi þeirra og hinum sem koma af öðrum ástæðum. Hingað til hafá 80% af flóttamönnunum fengið leyfi til að setjast að í Noregi. Fjórð- ungur þeirra fékk pólitískt hæli en yfir helmingur fékk aðsetursleyfi af mannúðarástæðum. Norski dómsmálaráðherrann He- len Börsterut ásakar óprúttna fjár- plógsmenn um að notfæra sér gestrisni Norðmanna og efria til hóp- ferða fyrir fólk sem vill sækja um aðsetur í Noregi sem flóttaraenn án þess að vera í rauninni flóttafólk. 300 þusund fara aldrei Jóhaima Rútadóttir, DV, Víru Hreinlæti Austurríkismanna er ekkert til að hrópa húrra fyrir. Við rannsókn opinbers vinnuhóps um hreinlæti og umhverfismál kom í ljós að hreinlætiskennd þjóðarinnar hefur ekkert breyst miðað við tölur fyrri rannsókna þrátt fyrir að afstaða þjóð- arinnar til umhverfismála verði stöðugt betri. Gerð var athugun á hinum ýmsu þáttum hreinlætis við heimili og ein- staklingsins sjálfs. Meðal annars kom fram að fjögur prósent Austum'kis- manna eða þrjú hundruð þúsund manns fara aldrei í bað eða sturtu. Níu prósent bursta ekki tennumar daglega og fjögur prósent skipta í mesta lagi einu sinni í viku um nær- fatnað. i bað Tíu prósent húsmæðra (spumingin náði ekki til karla) skiptir aðeins einu sinni í viku um diskaþurrku og tutt- ugu prósent sama hóps skiptir jafrioft um handklæði. Tuttugu og fimm pró- sent austurrískra karla bursta reglu- lega skóna sína en um það bil fimmtíu prósent kvenna. Einnig kom fram að mestu hreinlætiskröfumar væm gerð- ar í heilbrigðiskerfinu en þær minnstu gera Austurríkismenn til hreinlætis í einkabílum. Að lokum vildu tveir þriðju hlutar Austurríkismanna halda því fram að aukið hreinlæti væri alls ekki nauð- synlegt. Það em því líklega margir sammála forseta hreinlætis- og um- hverfisnefridar þegar hann segir Austurríkismenn ekki vera með neitt hreingemingarbij álæði. í 'tjjðft tlláá mjjðujil ,f 3ibÍB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.