Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987.
Opinberir starfsmenn:
Kyrrstaða í
samninga-
öngþveitinu
„Mér líst illa á stöðuna í samningum
flestra félaganna og afleitlega á stöð-
una í kennaradeilunni. Það var
samdóma álit beggia aðila í henni í
gær að tilgangslaust væri að boða til
sáttafundar," sagði Guðlaugur Þor-
valdsson ríkissáttasemjari í samtali
við DV í morgun.
Nú eiga 16 félög innan Bandalags
háskólamanna eftir að semja, þar af
hafa 9 boðað verkfall og 4 þegar kom-
in í verkfall. Búið er að semja við 7
félög innan bandalagsins. Þá er ósam-
ið við 3 félög utan bandalagsins og
öll félög innan Bandalags starfsmanna
_ríkis og bæja nema Hjúkrunarfélag
hslands. Aðeins eitt félag úr þeim hópi
hefur boðað verkfall, en það er Póst-
mannafélag Islands sem fer í verkfall
9. apríl hafi samningar ekki tekist fyr-
ir þann tíma.
Þá er enn ósamið við múrara, dúk-
lagningamenn og pípulagningamenn
og hefúr fundur með þeim verið boðað-
ur í dag kl. 17. Þá hófst samningafúnd-
ur með sjúkraþjálfum í morgun kl. 9.
Loks hefur verið boðaður fundur með
félagsráðgjöfum kl. 14 í dag.
-S.dór
Fermingar-
gjafa-
handbók með
DV á morgun
Að venju fylgir fermingargjafahand-
bók DV fyrir páskana og verður svo
á morgun. I bókinni er að finna góðar
hugmyndir að fermingargjöfum á 24
síðum. Þar kennir margra grasa og
gptur hún auðveldað leitina að réttu
gjöfinni fyrir fermingarbamið. Hin
ýmsu fyrirtæki kynna vörur sínar í
fermingargjafahandbókinni að þessu
sinni og munu lesendur DV fá bókina
í kaupbæti á morgun.
^ 26060!MI
mM
LOKI
Geta þeir ekki farið fram
án Alberts?
Albertsmenn til með
framboð um allt land
Ummæli Þoreteins Pálssonar,
fonnanns Sjálfetæðisöokksins, í lok
viðtak á Stöð 2 í gærkvöld, um að
Albert Guðmundsson yrði að sjálf-
sögðu ekki á ráðherralista form-
annsins eftir nsestu kosningar,
kveikti nýja elda í flokknum. Stuðn-
mgsmenn Alberts voru reyndar
ósáttir fyrir við það „tvöfalda sið-
gæði“ sem þeir telja að tekið hafi
verið upp í flokknum. Að sögn Ás-
geirs Hannesar Eiríkssonar verða
tilbúin ffamboð um allt land fyrir
föstudagskvöld undir nalhi Borgara-
flokksins, S-listans, komi til sérfram-
boðs.
Albert og stuðningsmenn hans líta
á það sem tvfskinnung að hann sé
Albert hvattur til sérframboðs en talið ólíklegt að verði af því
ekki hæfur ráðherra en hæfur for-
íngi framboðs flokksins í stæreta
kjördæminu og loks aö formaðurinn
ákveði það fyrirfram að Albert verði
ekki aftur ráðherra, hvað sem kjós-
endur segi. Afrögn Alberts í gær úr
embætti iðnaðarráðherra hefði get-
að komið í veg fyrir klofhing Sjálf-
stæðisflokksins í framhaldi af
atburðum síðustu daga. Nú er klofii-
ingur yfirvofandi á ný.
Ljóst er að Þoreteinn Pálsson var
þegar í vondum málum eftir að hann
aflaði sér trúnaðarupplýsinga hjá
skattrannsóknarstjóra og ámálgaði
í framhaldi af því afeögn við Albert
Úr því var strax engra góðra kosta
völ. Kæmi málið upp á yfirborðið
yrði annað tveggja að gerast, Albert
yrði að vikja með yfirvofandi alvar-
legum klofrúngi flokksins eða að
Þoreteinn yrði að drepa málinu á
dreíf oghefjaþar með Albert á stall.
Þau viðbrögð Alberts að kyngja
„tilboði'1 Þoreteins um afeögn úr
ráðherraembætti en að hann héldi
sæti sínu á framboðsiistanum í
Reykjavík voru nánast björgun Þor-
steins og flokksins í stöðunni. Engu
að síður blasti við að Þorsteinn væri
ekki sloppinn. Tapaði listinn í
Reykjavík með Albert efetan yrði
Þoreteini kennt um. Ynni listinn
góðan sigur með Albert efetan hefðu
kjósendur hafhað forajá Þorsteins
og Albert næði jafnvel enn sterkari
stöðu í flokknum en áður,
Eftir yfirlýsingu Þorateins á Stöð
2 f gærkvöld hafa málin tekið enn
nýja stefiiu og hugsanlegt er að
Sjálfetæðisflokkurinn klofrú, Borg-
aralfetinn taki af honum þúsundir
atkvæða og nokkur þingsæti. Slík-
um lista er einnig spáð verulegu fylgi
frá öðrum flokkum, einlaun f
Reykjavík og á Reykjanesi. Þess nið-
urstaða er þó talin ólíkleg og heista
útgönguleiðin nú er sú að Alberts-
menn gangi af alefli undir lista
Sjálfetæðisflokksins í Reykjavík til
þess að gera forystu Alberts þar al-
veg óumdeilanlega.
-HERB
Varðskipið Oðinn náði danska skipinu af strandstað við Rif í nótt.
DV-mynd Ægir Þórðarson
Arktis River náð á flot
I nött tókst að ná danska flutn-
ingaskipinu Arktis River á flot en
það var varðskipið Óðinn sem gerði
það. Misheppnuð tifraun hafði verið
gerð til að ná skipinu á flot á flóðinu
í gærdag.
Eftir að Arktis River náðist á flot
skömmu fyrir kl. 2 í nótt gerði mjög
slæmt veður á þessum slóðum og
hélt skipið frá strandstað við Rif
vestur fyrir Snæfellsnes i var fyrir
veðrinu.
Ekki er vitað um neinar skemmdir
á botni skipsins, það þarf að fara í
slipp til þess að hægt sé að athuga
það, en í gærkvöldi mun hafa komið
leki að olíugeymum skipsins, þó ekki
alvarlegur.
Skipið er nú á leið til Reykjavíkur
í fylgd varðskipsins en getur ekki
siglt á fullri ferð þar sem vélin hitn-
ar óeðlilega. Er talið að undirstöður
vélarinnar hafi skekkst við strandið.
Á skipinu, sem er rúmlega 2000
lestir að stærð, var 8 manna áhöfh
og tveir íslenskir hleðslumenn sem
sáu um lestun saltfisks um borð en
skipið hafði þegar tekið 570 tonn af
saltfiski fyrir komuna að Rifi og átti
farmur þess að fara til Portúgal.
-FRI
Norrænir ráðherrar í Reykjavík:
Funda um
kjamorku-
vopnaleysi
Utanríkisráðherrar Norðurlanda
funda í Reykjavík í dag og á morgun.
Þeir Matthías Á. Mathiesen, Uffe
Ellemann-Jensen, Thorvald Stolten-
berg, Sten Anderson og Paavo
Váyrynen hittast að Borgartúni 6
klukkan 16.15 í dag.
Helsta umræðuefni ráðherranna
verður skipan embættismannanefhdar
um það markmið að lýsa Norðurlönd
kjamorkuvopnalaus.
Talsverður þrýstingur, bæði innan-
lands og frá Norðurlöndum, hefur
verið á íslensk stjómvöld að taka þátt
í þessu samstarfi. Bendir allt til þess
að íslendingar verði með í embættis-
mannanefndinni.
Ýmsir listamenn hafa boðað til úti-
fúndar með tónleikum á Lækjartorgi
í dag klukkan 15 til að leggja áherslu
á kröfúna um kjamorkuvopnalaus
Norðurlönd. Frá Lækjartorgi hafa
fundarboðendur skipulagt kröfúgöngu
að Borgartúni 6.
-KMU
Veðrið á morgun:
Austan- og
norðaustan-
átt um
landið
Á fimmtudaginn verður austan- og
norðaustanátt og víða strekkings-
vindur. É1 um norðanvert landið en
bjart sunnantil. Vægt frost um norð-
anvert landið en hiti 0-3 stig
sunnantil.
Eimskip fær
65% Vamar-
liðsfarms
Eimskipafélag fslands átti lægsta til-
boð í sjóflutninga fyrir Vamarliðið á
Keflavíkurflugvelli. Eimskip fær því
65% flutninganna. Frá þessu skýrði
bandaríski sjóherinn í gær.
Samkvæmt samningi íslenskra og
bandarískra stjómvalda, sem undirrit-
aður var í New York 24. september
1986 og síðar staðfestur af þjóðþingum
ríkjanna, er gert ráð fyrir að lægst-
bjóðandi flytji 65% farmsins en
næstbjóðandi frá hinu landinu flytji
afganginn. Er talið að 35% flutning-
anna komi í hlut Rainbow Navigation.
-KMU
*
í