Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987. _________________Fréttir Sjö þúsund kjúklingar drápust í eldsvoða Stórtjón varð á bænum Jórvík í Sandvíkurhreppi aðfaranótt föstu- dagsins er sjö þúsund kjúklingar drápust þar í eldsvoða og útihúsin á bænum brunnu til grunna. Ábúendur bæjarins, þau Rúnar Gestsson og Sigrún Sigurðardóttir, urðu eldsins vör um kl. 23 um kvöldið er rafmagnið fór af bænum. Eftir að hafa kvatt til slökkviliðið fóru þau út og reyndu að bjarga hrút úr útihúsun- um en án árangurs. Slökkvistarfið gekk erfiðlega vegna veðurs sem var slæmt og breyttist vindáttin stöðugt en um klukkutíma eftir að slökkviliðið kom gekk veðrið niður. Ibúðarhúsið á Jórvík er í um 100 metra ijarlægð frá útihúsunum og var það aldrei í hættu en jeppi, sem stóð við útihúsin, brann með þeim. Eldsupptök eru ókunn en unnið er að rannsókn á þeim. -FRI Mikil aukning á innflutningi Mikil aukning varð á bílainnflutn- ingi fyrstu þrjá mánuði þessa árs samanborið við sama tima í fyrra en á tímabilinu janúar til mars voru flutt- ir 5.468 bílar hingað til lands á móti 2.277 bílum sömu mánuði á síðasta ári. Nemur hlutfallsleg aukning lið- lega 140%. Þetta kemur fram r skýrslu sem Hagstöfan hefur sent frá sér. Alls voru fluttir inn 4.149 nýir fólks- bílar en 664 notaðar bifreiðar. Nýir og notaðir sendibílar voru 84 talsins og vörubílar nýir og notaðir voru alls 72 og er burðarþol þeirra breytilegt. Þá má nefna að mikið hefur verið flutt inn af léttum íjórhjóla ökutækjum og eru þau alls 492 talsins. Af þeim 5.468 bílum sem fluttir voru inn fyrsta ársfjórðung þessa árs voru 4.768 nýir en 700 notaðir. -ój Andrés læknir eignaðist dóttur á kosninga- kvöldi Jón G. Haukssan, DV, Akureyri; Andrés Magnússon, læknir á Siglu- firði, var kátur á kosningakvöldinu þótt ekki kæmist hann á þing sem efsti maður Borgaraflokksins í Norður- landskjördæmi vestra. Eiginkona Andrésar, Elísabet Karlsdóttir, ól hon- um nefnilega 13 marka stúlkubam laust fyrir kl. 9 á laugardagskvöldið. Andrés er vinsæll skurðlæknir á Siglu- firði og tók að sjálfeögðu á móti baminu. Sumir segja að hefði Andrés náð kjöri hefðu tveir þingmenn fæðst þetta kvöld. Tapaði aðeins 4-5% í fréttaljósi í DV á fimmtudaginn var því haldið fram að Framsókn- arflokkurinn hefði tapað um þriðjungi fylgis sins í Vesturlands- kjördæmi. Þetta er á misskilningi byggt. Hið rétta er að flokkurinn tapaði aðeins 4-5% atkvæðanna og fékk um 26% greiddra atkvæða. g •* ... V, $ "" Úmmæll Jöns Páls- "N >$&&ssssBgstigF*'- ^0 Hvernig á að nota fjölskyldutrimmtækið rétt? Burt meö aukakíló. Æfið 5 mín. á dag. Tfl þess að ná árangri verður að æfa hinar þrjár mikilvægu undirstöðuæfingar daglega. Eftir að byrjað er að æfa samkvæmt æfingar- prógrammi mótast vaxtarlag líkamans af sjálfu sér. Æfing 1 Þessi æfing er fyrir magavöðva og stuðlar að mjóu mitti Setjist á sætið á trimmtækinu, leggið fæturna undir þversiána, hendur spenntar aftur fyrir hnakka. Látið höfuðið síga hægt að gólfi. Efri hluti líkamans er reistur upp og teygður í átt að tám. Mikilvægt: Æfingu þessa verður að framkvæma með jöfnum hraða án rykkja. í byrjun skal endurtaka æffnguna fimm sinnum, en síðan fjölga þeim í allt að tíu sinnum. Æflng 2 Þessi æfing er fyrir handieggi og rassvöðva. Leggist á hnén á sætið á trimmtækinu. Takið báðum höndum um vlnklana, handleggirnir hafðir beinir og stífir allan tímann. Teygið úr fótunum þannig að setan renni út á enda, hnén dregin aftur að vinklunum. Æfingin endurtekin a.m.k. flmm sinnum. Æfing 3 Þessi æfing er til þess að þjáifa og móta lærvöðva, fætur og handleggi. Setjist á sætið og takið báðum höndum um handföngin á gormunum og dragið sætið að vinklunum. Teygið úr fótunum og haflið efri hluta líkamans aftur og togið í gormana. Haldið gormunum strekktum alian tímann og spennið og slakið fótunum til skiptis. Æfingin endurtekin a.m.k. tíu sinnum. Enginn líkami er góöur án vöðva í brjósti, maga og bakhluta Kúlumagi, fitukeppir, slöpp brjóst, slappur bakhluti o.s.frv.) Allt þetta sýnir slappa vöövavefi. Byrjaöu strax aö stækka og styrkja vöðvana þína með þessari árangursríku og eölilegu aöferð. Sli ipp«r vouvnr Brj^tvöðvar WnaaviHiviir niissvödviir S/íi/i/nr vönvur Aijöir vöövur Leggðu fljótt af Misstu aukakílo með því að æfa 5 mín. á dag. Á '^okaÐIR uS®°wuN Verð aðeins 2390. Pöntunarsími 91-651414 Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00 Póstverslunln Príma Box 63, 222 Hafnarfirði {lugfreyjaetem fjö\nvargta seir>' fjölskyldutnmmtæki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.