Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Side 16
16 MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987. Spurningin Spilarðu veggjatennis? Hrefna Gestsdóttir nemi: Nei, guð minn góður, ég veit ekki einu sinni hvað það er. Ég hef spilað smávegis körfubolta í skólanum en það er líka það eina. Heiðbjört Stefánsdóttir nemi: Nei, ekki eins og er en það getur vel ver- ið að ég prófí það einhvern daginn. Annars er ég voða lítið fyrir íþróttir, hverju nafni sem þær nefnast. Hólmfríður Gisladóttir skrifstofu- maður: Nei, ekki enn sem komið er. En ég þarf endilega að fara prófa það á næstunni. Agnar Hansson nemi: Nei, það geri ég ekki, fótboltinn hefur nú alveg nægt mér hingað til. Eyjólfur Sturluson nemi: Nei, þeirri íþrótt hef ég nú ekkert pælt í. Ég hleyp og syndi þrisvar sinnum í viku og það er alveg nógu mikið af því góða. Ingibjörg Sigurþórsdóttir nemi: Nei og ég held að ég hafi engan áhuga á þeirri íþrótt. Ég fer stundum út að hlaupa og syndi þó nokkuð en þá er líka upptalið. Lesendur Hneyksli fyrir Sakadómi Móðir skrifar: Sjaldan eða aldrei hef ég orðið eins ósammála niðurstöðum Sakadóms Reykjavíkur og þegar dæmt var í máli Steingríms Njálssonar kynferð- isaíbrotamanns. Fyrir Sakadómi Reykjavíkur fær hann þriggja ára fangelsisvist. Hvers konar refsing er þetta eiginlega? í fréttum hefur margoft komið fram að ellefu dreng- ir hafi orðið honum að bráð á síðustu 26 árum, hvað um alla hina sem ekki hefur frést af? Hver er harm- saga þessara drengja og fjölskyldna þeirra? Það er hlutur sem ekki verð- ur lesinn út úr fréttum dagblaðanna. Það hlýtur að vera eitthvað stórlega athugavert við refsilöggjöf lands sem virðist hreinlega halda hlífiskildi yfir kynferðisafbrotamönnum. Ég held að það væri mjög þarft að end- urvekja umræðu þá sem Svala Thorlacius hæstaréttarlögmaður opnaði síðastliðið sumar um að vana' kynferðisafbrotamenn, það virðist vera eina leiðin til að hindra þá í að koma fram óeðli sínu. Svala sagði einhveiju sinni eitt- hvað á þá leið í viðtali sem ég las: Það er ljóst að kynferðisafbrota- menn eru aldrei dæmdir til nema tiltölulega stuttrar fangelsisvistar og verður væntanlega sleppt eftir helm- ings afþlánun. Eftir það ganga þeir frjálsir ferða sinna meðal almenn- ings, þar á meðal bama. Það þarf enginn að segja mér að það sé hægt að hafa slíkt eftirlit með mönnum að þeir séu undir smásjá dag og nótt. Eftir þvi sem mér skilst hefur lög- reglan nógu öðru að sinna og hver á þá að hafa þetta eftirlit með hönd- um. í skoðanakönnun, sem gerð var á síðasta ári, kemur í ljós að 85% að- spurðra voru hlynntir því að kyn- ferðisafbrotamenn væru afkynjaðir. Það er því mjög nauðsynlegt að al- menningur haldi vöku sinni í þessum málum og láti ekki bjóða sér hvað sem er. Okkur ber hvort eð er skylda til að búa bömum okkar eins tryggt og ömggt umhverfi og nokkur kost- „Ég held að það væri mjög þarft að endurvekja umræðu þá sem Svala Thorlacius hæstaréttarlögmaöur opnaði um að vana kynferðisafbrota- ur er. Það er von mín að Hæstiréttur þyngi dóminn yfir Steingrími og öll- um öðrum kynferðisafbrotamönnum verulega. í mínum huga er vönun eina lausnin, það losar mörg okkar við óþarfa áhyggjur. Með von um að fleiri mæður og feður segi álit sitt á þessu máli. Stöðvið við gangbrautirnar Björg Bjamadóttir hringdi: Ég vildi beina þeim tilmælum til ökumanna að aka hægar í grennd við gangbrautir. Það er alveg skelfilegt að horfa upp á suma ökumenn sem virðast einskis svífast til að vera 5 mínútum fljótari. Við megum ekki hrella krakkana svo að þeir hætti að nota gangbrautimar. Við eigum einmitt að stuðla að því að bömin noti þær því mun hættulegra er að æða út á götu hvar sem er. Ökumenn eiga að vera duglegri að stoppa við gangbrautimar, til þess em þær. Ökumenn, hugum meira að gang- andi vegfarendum og virðum rétt þeirra. Krakkar, standið upp fyrir eldra fólki! Sigríður Vilhjálmsdóttir: Ég fer nú ekki oft í strætó en í þau örfáu skipti sem ég hef tekið strætó finnst mér áberandi að ungt fólk ber ekki sömu virðingu fyrir eldra fólki og var héma áður fyrr. Mín meining er sú að ungt og full- friskt fólk eigi að sýna þá sjálfsögðu tillitssemi að standa upp fyrir eldra fólki í strætó. Manni finnst svo leiðin- legt að sjá eldri borgarana standa og eiga í mestu erfiðleikum með að halda sér er strætóinn er að stoppa á ýmsum áfangastöðum. Ég býst við að ung- mennin vilji vel, það þarf bara að brýna fyrir þeim að sýna tillitssemi og bera virðingu fyrir fullorðnum. Gerið það nú, krakkar mínir, standið upp fyrir fullorðnu fólki i strætó, það kemur sér vel seinna. Af hverju er gengið fram hjá Lalla? Rnattspymuáhugamaður hringdi: Það kom mér mikið á óvart að Lár- us Guðmundsson skyldi ekki hafa verið valinn í landsliðið í leikinn gegn Frökkum. Þó ekki hefði verið nema varamannabekkinn, þar sem hann á við meiðsli að stríða þessa stundina. Sem knattspymuáhugamaður á maður erfitt með að ímynda sér af- hveiju svona oft hefur verið gengið fram hjá Lalla sem hefur sýnt og sann- að ágæti sitt sem knattspymumaður. Ég vonast til að sjá Lalla sem fyrst i landsliðinu, með góðum mönnum tryggjum við góðan árangur. Góð þjónusta hjá námsskráningunni 6352-0284 skrifar: Ég vil þakka fyrir alveg sérlega alúðlega þjónustu er ég fékk hjá námsskráningu Háskóla íslands. Stúlkan er afgreiddi mig kvaðst heita Brynhildur Brynjólfsdóttir en það er ánægjulegt að eiga samskipti við fólk er kann sitt fag. Persónuskilríki á kjörstað Til að koma i veg fyrir kosninga- svindl á að herða reglurnar á kjörstað og skikka fólk til að fram- vísa persónuskilrikjum. Ingunn Einarsdóttir hringdi: Manni finnst það bagalegt ef ein- hver getur neytt atkvæðisréttar annars manns. Þó þetta sé algjör undantekning, sbr. konuna er missti af kosninga- rétti sínum fyrir þær sakir að einhver annar var búinn að kjósa í hennar nafni, þá er nauðsynlegt að koma í veg fyrir að slíkt eigi sér stað yfir höíuð. Einföld lausn á þessu máli væri að herða reglumar á kjörstað með því að skikka fólk til að framvísa persónuskilríkjum. Það ætti ekki að vera vandkvæðum bundið og kemur í veg fyrir að maður missi sinn dýr- mæta kosningarrétt í hendur ein- hvers annars manns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.