Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1987, Side 21
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1987.'
21
fþróttir
Hann fær þó ekki Þýskalandstitilinn að þessu sinni.
Bayarar með aðra
hönd á titiinum
- geta nað fimm stiga fovystu
Adi Hflmaissan, DV, V-Þýskalandi:
Hamborgurum mistókst að minnka
bilið á milli sín og Bayern Múnchen
um helgina þegar þeir gerðu jafntefli
við Stuttgart á útivelli. Leiknum lauk
1-1 og var það varamaðurinn Andreas
Merkle sem kom Stuttgart yfir á 51.
mínútu. Ralf Balzis jafhaði fyrir Ham-
borg 11 mínútum síðar. Ásgeir fékk 4
í einkunn fyrir leik sinn en fyrir leik-
inn fékk hann sprautu vegna meiðsla
í öxl. Langþráðu einvígi hans og
Okonski hjá Hamborg lauk með jafn-
tefli enda náði hvorugur að sýna neitt
sérstakt.
Ef Bayem tekst að sigra Eintracht
Frankfurt, en leik liðanna var frestað
um helgina vegna þess að páfinn þurfti
að messa á 01 leikvanginum á þriðju-
daginn, verður forysta þeirra 5 stig og
nánast ómögulegt að nálgast þá.
Kaiserslautem stökk upp í fjórða
sæti eftir góðan sigur á Uerdingen en
þeir Atli og Láms spiluðu hvomgur
með. Láms og Stefan Kuntz sátu bara
uppi í stúku vegna þess að Kuntz get-
ur ekkert og Láms er á leið til
Kaiserslautem. Oliver Bierhoff skor-
aði fyrir Uerdingen en Wolfram
Wuttke og Frank Hartmann tryggðu
hinu nýja félagi Lámsar sigurinn.
Werder Bremen tapaði, 1-0, fyrir
Mannheim eftir að markvörðurinn
Diter Burdenski lét skot af 16 metra
færi frá Fritz Walter sigla inn.
Önnur úrslit urðu svona:
2-1
0-2
B.W. Berlin-Dusseldorf. 1-2
1-1
-SMJ
Staðan
Bayern Miinch. 26 15 10 1 52-25 40
Hamburger 27 15 7 5 48-27 37
Bayer Leverkusen 27 14 4 9 44-29 32
Kaiserslautern 27 12 7 8 48-37 31
Werder Bremen 27 13 5 9 49-49 31
Stuttgart 26 12 6 8 46-27 30
Borussia Dort. 27 10 10 7 54-35 30
Köln 27 12 6 9 42-39 30
Gladbach 27 11 7 9 51-38 29
Bayer Uerdingen 27 10 8 9 42-39 28
Nurnberg 27 10 8. 9 50-49 28
Schalke 27 9 7 11 41-46 25
Bochum 27 6 12 9 34-31 24
Waldhof Mannh. 27 8 8 11 43-51 24
Eintracht Frankf. 26 5 9 12 31-40 19
F. Dusseldorf 27 6 4 17 34-75 16
FC Homburg 27 4 7 16 22-59 15
B. W. Berlin 26 2 9 15 25-60 13
Er Bordeaux
að missa af
lestinni?
Það hefúr ekki gengið sem best hjá
Bordeaux að undanfömu. Um daginn
var liðið slegið út úr Evrópubikar-
keppninni og nú um helgina missti
liðið forystusætið í frönsku 1. deild-
inni. Bordeaux lék á heimavelli gegn
Toulouse og náði fljótlega forystu með
tveim mörkum frá Philippe Fargeon.
Argentínumaðumn Alberto Marcico
svaraði fyrir Toulouse með marki og
í seinni hálfleik nýtti hann sér mistök
í vöm Bordeaux og jafnaði. Eric
Castagnino skoraði síðan sigurmark
Toulouse.
í Nantes mættu heimamenn Mar-
seille og léku gestimir snilldarvel
knúðir áfram af stórleik „öldungsins"
Alain Giresse sem nú hefur tilkynnt
að hann ætli að leika eitt tímabil í
viðbót. Jacky Bonnevay og Senegal-
búinn Abdoulaye Diallo skoruðu fyrir
Marseille.
Önnur úrslit urðu:
Sochaux - Monaco...............2-1
Nice - Metz....................3-1
Lille'- Brest..................2-1
Rennes - Laval...............1-2
LeHavre - Lens...............0-0
Toulon - St. Etienne.........2-1
RC Paris - Auxerre...........3-0
-SMJ
Staðan í 1. deildinni í Frakklandi eftir
leikina á laugardag.
Marseille 33 17 13 3 47 22 47
Bordeaux 33 17 12 4 50 23 46
Toulouse 33 16 10 7 47 26 42
Auxerre 33 14 12 7 36 27 40
Monaco 33 13 12 8 34 28 38
Metz 33 10 15 8 44 27 35
Paris SG 33 12 11 10 25 26 35
Laval 33 10 14 9 33 33 34
Brest 33 11 11 11 36 36 33
Nantes 33 11 11 11 29 29 33
Lens 33 10 13 10 32 34 33
Nice 33 13 7 13 34 42 33
Lille 33 11 9 13 35 34 31
LE Havre 33 8 15 10 35 39 31
RC Paris 33 10 8 15 32 40 28
Saint-Etienne 33 7 13 13 22 29 27
Toulon 33 7 13 13 29 39 27
Nancy 33 7 12 14 19 30 26
Sochaux 33 7 10 16 27 50 24
Rennes 33 5 7 21 19 50 17
Luzem hélt jöfhu
- Ómar Torfa óánægður hjá liðinu
Luzem, lið þeirra fóstbræðra Sig-
urðar Grétarssonar og Ómars
Torfasonar, gerði á laugardag jafn-
tefli við „strákpjakkana frá Bern,“ -
Young Boys Berne.
Gerðu bæði lið eitt mark. Sigurður
var með í þessari rimmu en skoraði
ekki. Ómar Torfason var hins vegar
ekki í liðinu og er hann nú ósáttur
við sitt hlutskipti að sögn heimildar-
manns blaðsins. Stefnir Ómar jafn-
vel annað í lok þessa keppnismisser-
is. „Það er þokkalegt að hafa annað
stigið heim frá Bem,“ sagði Siggi í
spjalli við DV, „en þrátt fyrir þessi
úrslit eru litlar líkur á að okkur tak
ist að vinna sæti í Evrópukeppni.“
Sigurður hefúr verið nokkuð iðinn
við kolann nú seinni hluta vetrar.
Hann hefur gert sex mörk í síðustu
níu leikjum liðsins.
Luzemliðið er um þessar mundir í
sjöunda sæti og sagði Sigurður að
meisl hefðu ráðið of miklu um gang
mála í vetur.
• Efsta lið svissnesku deildarinn-
ar, Xamax, vann Basle á útivelli með
fjórum mörkum gegn einu. Þá gerðu
„Grasflæmar," Grasshoppers, sem
nú eru í öðm sæti, jafntefh við Sion.
-JÖG
• Omar Torfason lék ekki med
Lucerne um helgina og er hann
óánægður hjá félaginu aö sögn
heimildarmanns.
GRUNNSKÓLAKENNARAR!
Allir stjórnmálaflokkar lofudu fyrir kosningar að efla lands-
byggðina. Takið þá á orðinu og leggjumst á eitt við að efla
grunnskólana á landsbyggðinni.
A Norðurlandi vestra eru stöður lausar við eftirtalda skóla:
GRUNNSKÓLI SIGLUFJARÐAR.
Skólastjóri: Pétur Garóarsson.
Sími 96-71184.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla, erlend mál, iþróttir,
stærðfræði, raungreinar, samfélagsfræði og sérkennslá.
GRUNNSKÓLI SAUÐÁRKRÓKS, efra stig.
Skólastjóri: Björn Sigurbjörnsson.
Sími 95-5385.
Meðal kennslugreina: Danska, stærðfræðiog raungreinar.
GRUNNSKÓLISAUÐÁRKRÓKS, neðra stig.
Skólastjóri: Björn Björnsson.
Simi 95-5175.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
HÉRAÐSSKÓLINN AÐ REYKJUM.
Skólastjóri: Bjarni Aðalsteinsson.
Sími 95-1000.
Meöal kennslugreina: Stærðfræói, enska, samfélagsgrein-
ar, liffræði og viðskiptagreinar.
GRUNNSKÓLISTAÐARHREPPS, V.-Hún.
Skólastjóri: Kristinn Breiðfjörð.
Simi 95-1025.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og kennsla yngri
barna.
LAUGABAKKASKÓLI.
Skólastjóri: Guðmundur ÞórÁsmundsson.
Sími 95-1901.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og kennsla yngri
barna.
GRUNNSKÓLI HVAMMSTANGA.
Skólastjóri: Flemming Jessen.
Simi 95-1367.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og kennsla yngri
barna.
GRUNNSKÓLI ÞVERÁRHREPPS, V.-Hún.
Skólastjórí: PéturE. A. Emilsson.
Sími 95-1694.
Meðal kenríslugreina: Stærðfræði og almenn kennsla.
Fræðsluskrifstofan á Norðurlandi vestra
býður ýmiskonar þjónustu fyrir skóla umdæmisins.
RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA. Þar starfa þrír sálfræðingar, sem eru kennurum og aðstandendum nemenda til
aðstoðar við úrlausn vandamála, sem upp kunna að koma í skólastarfinu.
KENNSLUGAGNAMIÐSTÖÐ er í uppbyggingu þar sem hægt er að fá lánuð myndbönd, og kynna sér flest
tiltæk kennslugögn. Þar verður einnig aðstaða fyrir kennara til að vinna að námsgagnagerð.
FRÆÐSLUFUNDIR eru skipulagðir í samvinnu við Kennarasamband Norðurl. vestra og aðila utan
umdæmisins og eru ýmist haldnir fyrir skólabyrjun að hausti eða á starfstíma skóla. '
KENNSLURÁÐGJAFAR munu starfa næsta vetur og verður auk almennrar kennslufræðilegrar ráðgjafar,
sérstök áhersla lögð á kennslu yngri bama, móðurmál og raungreinar.
SÉRDEILDIR fræðsluumdæmisins á Egilsá í Skagafirði og á Blönduósi veita þjónustu fyrir þá nemendur
sem ekki geta fylgt venjulegri grunnskólakennslu.
VIÐ LEITUM AÐ GÓÐU FÓLKI með kennslureynslu og menntun sem getur orðið okkur að liði við þessa
þjónustu utan skólanna og vantar einkum SÉRKENNARA og starfsfólk til KENNSLUGAGNA-
MIÐSTÖÐVAR og til KENNSLURÁÐGJAFAR.
FRÆÐSLUSTJÓRI NORÐURLANDS VESTRA
Guðmundur Ingi Leifsson
Kvennaskólanum, 540 Blönduósi.
Símar 95-4209 og 4369.
HÚNAVALLASKÓLI.
Skólastjóri: Jón I. E. Hannesson.
Sími: 95-4370.
Meðal kennslugreina: Stærðfræði, tónmennt, smiðar og
myndmennt.
GRUNNSKOLINN Á BLÖNDUÓSI.
Skólastjórí: Eiríkur Jónsson.
Sími 95-4147.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla og sérkennsla.
GRUNNSKÓLI SKAGASTRANDAR.
Skólastjóri: Páll Leó Jónsson.
Simi 95-4642.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla, hand- og
myndmennt.
VARMAHLIÐARSKÓLI.
Skólstjóri: Páll Dagbjartsson.
Simi 95-6115.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
STEINSSTAÐASKÓLI.
Skólastjóri: Kristján Kristjánsson.
Simi 95-6029.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
GRUNNSKÓLI RÍPURHREPPS.
Skólastjóri: Bjarni Gislason.
Simi 95-6534.
Meðal kennslugreina: Almenn kennsla.
GRUNNSKÓLINN HOFSÓSI.
Skólastjóri: Svandis Ingimundardóttir.
Simi 95-6346.
Meðal kennslugreina: Kennsla yngri barna, islenska,
tungumál, stærðfræði, íþróttir, mynd- og handmennt.
GRUNNSKÓLI HAGANESHREPPS.
Skólastjóri: Valberg Hannesson.
Simi 96-73240.
Meðal kennslugreina: Raungreinarog tungumál.