Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Síða 3
3 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988. dv Fréttir Sunnlend- ingar vilja álver í Þorlákshöfn Sunnlendingar eru óhressir með að ekki skuli hafa verið rætt um Suðurland sem hugsanlegan stað fyrir nýtt álver sem fái hvort eð er orku frá þessum landshluta. Hingað til haíi menn helst rætt um Eyjafjörð og Austurland til viðbótar við Straumsvík. Að dómi Sunnlendinga er álver hing vegar best komið í Þor- lákshöfn. Að sögn Guðna Ágústssonar, þing- manns Sunnlendinga, þykir mönn- um tilvalið að hafa álver í Þorláks- höfn en með tilkomu brúar við Ölfus- árósa séu nú fimm þorp á Suðurlandi tengd saman í eitt svæði, Árborgar- svæðið. Þar sé nóg af vinnuafli og orkan komi úr þessum landshluta. „Suðurlandið er ekki nýlenda sem á að sjá öðrum landshlutum fyrir ódýrri raforku sem Sunnlendingar verða síðan að kaupa til baka á mörgu sinnum hærra verði,“ sagði Guðni og bætti við: „Mér finnst Frið- rik gera of mikið úr pólitískri sam- stöðu um þetta mál. Það hefur ekki verið rætt enn í stjórnarflokkunum og því engan veginn útkljáð." _____________________-SMJ Flugfélag Norðuriands: Fjölgun farþega Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: Farþegum í áætlunarfiugi Flugfé- lags Norðurlands fjölgaði um 12% fyrstu 6 mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra og er útlit fyrir að farþegar í áætlunarflugi félagsins verði vel yfir 20 þúsund í árslok. Twin Otter flugvél frá félaginu var í síðasta mánuði í áætlunarferðum fyrir Gronlandsfly AS milli Jakobs- havn og Syðri-Straumfjarðar á Vest- ur-Grænlandi með farþega og vörur. í júlí og ágúst verður Twin Otter vél einnig staðsett á Grænlandi á vegum Grenlandsfly, í þetta skipti í tengsl- um við olíuleit í Jamesonlandi. Af öðrum verkefnum, sem félagið annast um þessar mundir, má nefna flutning fjailgöngumanna til Watk- insfjaUgarðsins á Austur-Grænlandi. Twin Otter vél, búin skíðum, lendir á skriðjökh við rætur Gunnbjamar- flaUs og verða farnar aUs 6 slíkar ferðir. Hjá Flugfélagi Norðurlands vinna nú 27 starfsmenn, þar af 12 flugmenn og 8 flugvirkjar. Reikningar Flugstöðvar: Færðirfram yfir áramót Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra og Steingrímur Her- mannsson utanríkisráðherra hafa komið sér saman um að í ár verði framkvæmt við Flugstöðina í Kefla- vík fyrir tæpar 120 mUljónir. Verk- tökum verða einungis greiddar tæp- ar 57 mUljónir á þessu ári en afgang- inn fá þeir snemma á næsta ári. Ráðherramir hafa einnig komið sér saman um frekari framkvæmdir á næsta ári fyrir rúmar 50 miUjónir. HeUdarfjárþörf Flugstöðvarinnar á því ári er áætluð um 275 miUjónir. Áætlað er að byggingu Flugstöðv- arinnar verði að fullu lokiö um haustið 1989. Það sem ríkissjóður á eftir að greiða tU stöðvarinnar fyrir þann tíma nemur um 391 mUljón króna á verðlagi þess tíma. Þegar Flugstöðin verður fuUbúin má því búast við að endanlegt verð hennar veröi nærri 3,5 miUjöröum króna. -gse UM HELGINA — LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL.13-17 Á Akureyri — Höldur s/f Á Akranesi — Garðabraut 2 í Njarðvík — Bílanes COLT OG LANCER NYTT UTLIT — NY TÆKNi BILL FRA HEKLU BORGAR SIG HEKLAHF Laugavegi 170-172 Simi 695500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.