Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Síða 9
9 Hjónin Guömundur Baldvihsson og Guðný Guðjónsdóttir opnuðu Mokka-kaffihúsið á Skólavöröustíg fyrir 30 árum. Hér eru þau við opnunina, stolt af fallegri og mikilli expresso kaffivélinni sem þau fluttu inn frá Ítalíu. Á veggjunum hanga listaverk fyrstu sýningarinnar sem haldin var á Mokka. Þær áttu svo eftir aö verða fieiri. Þeir sem áttu verk á fyrstu Mokka-sýningunni voru Bar- bara Árnason, Benedikt Gunnarsson, Bjarni Jónsson, Bragi Ásgeirsson, Jón Benediktsson - B-in fimm. LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988. Og þau hafa staðið saman sem klettur i kaffihúsarekstrinum, þau Guðný og Guðmundur, í 30 ár skenkt kaffi handa flestum ágætustu mönnum þessa lands. „Enda eru kaffibollarnir orðnir margir," segir Guðný. Þau hafa alla tíð verið i daglegri afgreiðslu sjáif, en verið svo með starfsstúlkur sér til aðstoðar. Börnin hafa líka tekið þátt í rekstrinum og gera enn i dag. „Stað- ur eins og þessi þarf mikla aðhlynningu. Þetta er barnið sem aldrei verður fullorðið." Segir hún að sumir vilji ekki láta bendla sig þannig við kaffihús. „Þeim fmnst sem þá haldi aðrir að þeir geri ekkert annað en að hanga á kaffihúsum og séu bara að slæp- ast. En það er náttúrlega mesti mis- skilningur," ségir Guðúý. „Margt það fólk, sem kemur hing- að, hefur þannig starfa að þaö vinnur meira á kvöldin og jafnvel á nótt- unni. Eins og listamenn, þeir vinna mikið á þeim tímum. Því bregða þeir sér daglega á kaffihús til að hitta og vera í tengslum við annað fólk. Þetta er ósköp eðlilegt. En annars er alls konar fólk sem kemur hingað, ekki bara listamenn. Einn gesturinn, sem kemur hingað daglega, sagði einmitt við mig að helsti kosturinn við Mokka væri að hingað kemur svo fjölbreytilegur hópur fólks. Margir af fastagestun- um eru fólk sem byijaði að koma hingað þegar það var í menntaskól- unum hér í kring en hefur haldið áfram að koma. Svo hittir það jafn- vel gömlu skólafélagana hér. Einnig tek ég mikið eftir því að skólafólk erlendis kemur hingað og hittir gömlu vinina þegar það kemur heim í fríum sínum,“ Fjölbreytilegt mannlíf Guðný og Guðmundur bera virð- ingu fyrir gestum sínum og eru treg til að segja frá einhverjum spaugileg- um uppákomum sem hljóta að hafa átt sér stað á 30 ára ferli Mokka. „Við heyrum margt og sjáum margt en við megum ekki segja neitt um gesti okkar,“ segir Guðný. „Við viljum heldur ekkert vera að troðast inn á fólk sem kemur hingað. Þótt við höfum auövitað kynnst íjölda fólks í gegnum þetta þá verða gest- irnir að fá að hafa sitt næöi.“ Húsbóndinn tekur undir þetta og segir að vissulega sé íjölbreytilegt mannlíf á staðnum og að þau kynnist ýmsu þótt hann vilji ekki fara nánar út í það. „Ég veit nú að hér hafa margir hitt elskuna sína,“ segir Guðný. „Hér hefur talsvert verið krunkað. Hvað veit maður nema einhver stúlkan hafi sagt já á Mokka. Meira að segja starfsstúikur okkar hafa kynnst mannsefnum sínum hérna.“ Já, ólíklegustu hlutir og oft afdrifa- ríkir eru ræddir yfir bolla af kaffi á kaffihúsi. Mál gerö upp, samningar geröir, ný tengsl skapast, önnur slit- in, sögur sagðar, sögur búnar til - sagan á ýmislegt að rekja til kaffi- húsa. Bara að veggimir gætu tal- aö... Undir það taka Guðný og Guð- mundur. „ Jú, hér hafa ýmsir atburðir átt sér staö. Það fer ekkert fram hjá manni,“ segir Guðmundur. „En við reynum að blanda okkur ekki í það sem hér fer fram á milli manna.“ Alltaf verið nóg að gera Aöspurð hvort eitthvaö hafi dreg- ið úr ösinni nú á tímum, þegar aðrir veitingamenn kvarti sáran, segja þau svo ekki vera. „Mokka er bara kaffihús. Það er dálítið annað að fara út að borða eða fá sér kaffi og kannski með því. Flest- ir ráða við það. En það er orðið svo mikið dýrara að fá sér heila máltíð,“ segir Guðmundur. „Fólk verður líka að fá einhverja tilbreytingu. Margir sem vinna hér í nágrenninu gætu setiö í kaffitímum sínum á ágætis kaffistofum á vinnustöðunum en fólk vill tilbreytingu," segir Guðný. Og Mokka er sannkallað kaffihús að ítalskri fyrirmynd. Fyrir utan að selja alvöru ítalskt kaffi þá búa þau hjón á hæð fyrir ofan sjálft kaffihús- ið. Rétt eins og þeir gera á Ítalíu. „Já, mér skilst að ítalimir hafi þetta svona. Séu þeir með rekstur þá búa þeir í sama húsi. Þetta er auðvitað mjög þægilegt fyrirkomu- lag.“ Staðnum aldrei verið breytt Einn aðalsjarmann við Mokka telja gestimir vera að kaffihúsið hef- ur aldrei breytt uppmnalegri mynd sinni. Þrátt fyrir ákveðið viðhald eru innréttingarnar þær sömu og voru fyrir 30 árum. Á veggjunum hanga hátalarar sem aldrei hafa verið not- aðir. Segir Guðmundur að hann hafi í upphafi ætlaö að leika klassíska tónlist af plötum en svo hafi hann hætt við það. í dag, og reyndar alla tíð, þakka gestir Mokka sínum sæla fyrir þögnina. Enginn glymskratti. Segja þau Guðný og Guðmundur að fólk hafi það mikið á orði hve gott sé að finna stað sem er laus við tón- hstina sem annars tröllríði alls stað- ar. Og því er ekki að neita, andrúms- loftið er afslappaðra fyrir vikið. Hvinur expressovélarinnar er eina hljóðið sem rýfur þögnina, fyrir utan lágvært skvaldur gestanna. Kaffið framleiðslu- leyndarmál Og þetta kröftuga kaffi og ljóm- andi súkkulaði er framleiðsluleynd- armál, og hefur verið í 30 ár. „Það fær enginn að vita hvemig við gerum þetta, ekki einu sinni stúlkumar sem hafa unnið hjá okk- ur. Við emm mikið spurö en ekkert verður um svör,“ segir Guðný og hlær. Enda em leyndardómar og vin- sældir kaffihússins fólgnir í því. Ex- presso, cappucino, caffe latte, rizt- ritto eða súkkulaði - allt þeirra að- ferðir. Gott að ræða málin hér í einu homi Mokka sitja þrír sett- legir herrar sem virðast í djúpum samræðum. Blaðamaður leyfir sér þó að ónáða aðeins. „Okkur fmnst óskaplega þægilegt að skreppa hingaö og fá okkur cappucino," segja þeir Reinhold Kristjánsson og Benedikt Guðbjarts- son, báðir lögfræðingar. „Við vinn- um héma rétt hjá og bregðum okkur oft á Mokka ef við þurfum að ræða alvarleg mál við menn. Andrúmsloft- ið er einstakt og kaffið sömuleiöis. Við komum hér einu sinni til tvisvar í viku og þá alltaf um tíuleytið á morgnana. Það fer vel saman að ræða máhn og fá sér kaffisopa, þann- ig nýtum við tímann vel.“ Margir gestir Mokka-kaffis hafa komið reglulega allt frá opnun eða í heil 30 ár. Einn þeirra er.Hafsteinn Vestmann hstmálari. „Hér drakk ég meira að segja mitt fyrsta kaffi," segir hann. „Hingað er svo gott að koma - viðmótið gott, kaffiö og andrúmsloftiö. Maður hittir fólk, les blöðin og hefur það nota- legt. Þetta hefur bara verið fastur punktur í mínu lífi. Staðurinn hefur ekkert breyst frá því ég kom héma fyrst. Það er notalegt. Eg bý hérna í hverfmu en þótt ég hafi búið annars staöar og langt frá í bænum þá hefur maður alltaf séð sér fært aö líta inn á Mokka." Gera sér langa ferð á Mokka Á tali við Hafstein er Sigurður Þórir, hka myndlistarmaður. „Ég fór að að koma hingað 17-18 ára, þá í landsprófi. Síðan hef ég komið á Mokka. Jafnvel þótt ég hafi búið í Hraunbæ á þessu tímabih þá lét maður það ekki á sig fá og barðist um í snjóhörku til að komast hingað og hitta almennilegt fólk,“ segir Sig- urður. „Svo þegar ég er á ferðinni í einhveijum útréttingum þá lít ég nú ahtaf inn.“ Jörmundur Ingi Reykjavíkurgoði segist koma einu sinni til tvisvar á dag á Mokka. „Yfirbragðið á staðnum er svo þægilegt. En aðalkosturinn finnst mér vera að hér hefur aldrei verið útvarp. Hér kemur svo breiöur hóp- ur fólks, það er líka góður kostur. Hingað kem ég eins og aðrir tíl að fá fínt kaffi, kíkja í blöðin og hitta fólk,“ segir Jörmundur. I gestabókina góðu hefur Sigurður Sigurðsson, íþróttafréttamaður út- varpsins, ritaö: „Hingaö ætti knattspyrnuiandsliðið að koma fyrir næsta leik þá yrðu úrslitin kannski - já áreiðanlega önnuren venjulega. “ En eftirfarandi vísa á líklega best við Mokka og gesti: „Með yndisþokka þjónin lokka í húsakynni björt og hlý. Inn í Mokka mun ég skokka efmig langar sopa í. “ Það var ritað J.Þ. undir en því miður voru eigendumir ekki alveg vissir hver átti þá stafí, en engu að síður er vísan góð. En hvemig kom það th að farið var að heha upp á expresso kaffi - þetta kaffi sem menn koma langar leiðir th að renna niður innan um líf og hst á Mokka? Þetta kaffi sem orðið er eitt aðalmerki ítalskrar menning- ar. Fyrir tæpum 30 árum var sagan riijuð upp svona í Tímanum: „Um síðustu aldamót geröist sá at- burður á Norður-ítahu sem olh því að ítalir tóku algjörlega forystuna í kaffigerð, maður að nafni Luigi Bezz- era gerði sér nýstárlega „kaffi- könnu“. Það er að segja vél sem átti að ná öllum „kraftinum" úr kaffi- baununum. Þessar thraunir tókust svo afbragðsvel að drykkurinn, sem hlaut nafnið „Espresso caffe" á ít- ölsku, varð brátt mjög eftirsóttur." -RóG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.