Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Page 20
20
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
Sænskt Kastljós
Reykjavík, 18. júlí
Kæri vin!
Ég var aö gjóa augum á Sjón-
varpiö seinnipartinn í gær en þá
var varpað á skjáinn tónleikum
sem fram fóru á Miklatúni. Þarna
komu fram fremstu popprirar þjóö-
arinnar að mér skildist og frömdu
hávaða til heiðurs Nelson Mandela
sem situr í steininum í Suöur-
Afríku. Mér er til efs að poppararn-
ir hafi hugmynd um hvers vegna
Mandela þessi var settur inn á sín-
um tíma, enda þykir það víst ekki
fínt að tíunda ástæður þess að kall-
inum var stungið í tukthús. Það er
líka miklu hagstæðara að gera
hann að píslarvotti og skammast
út í stjórnvöld í Suður-Afríku en
að rækta sinn eigin garð og styðja
og styrkja góð málefni hér heima
fyrir. En frekar hefði ég viljað að
poppgoðin hefðu nú tekið sig til og
haldið tónleika til ágóða fyrir
Krísuvíkursamtökin í stað þess að
troða uppá okkur innanhússvanda
annarra þjóöa. En það var víöar
spilað en á Miklatúni því fyrirbæri
sem nefnist Reiðhöllin sá ástæðu
til þess aö flytja inn afdankaða
breska hljómsveit sem átti að
skaffa periinga til ágóða fyrir reið-
list í landinu. En fyrirtækið klikk-
aði gjörsamlega vegna þess hve fáir
lögðu á sig að hlusta á sveitina
þótt reiðlistin sjálf væri í veði. Ef
ég man rétt var hið opinbera látiö
gefa fé í Reiðhöllina, þegar hún var
reist, á þeim forsendum að hér
væri um menningarhöli að ræða.
Ætli Jóni Baldvin verði ekki send-
ur reikningurinn fyrir tapið á Stat-
us Kö, en mér er til efs að hann
borgi jafnvel þótt hljómleikamir
flokkist ekki undir landbúnaðar-
mál. Af öðrum hávaða má nefna
að ráðist var á lögreglumann við
skyldustörf á dögunum og hann
laminn. Ef þetta hefði skeð í Sví-
þjóð má gera ráð fyrir að Sjón-
varpiö hefði fjallað um málið og
rætt við lögreglumanninn og móö-
ur hans. Ástandið er nefnilega orð-
ið svoleiðis að Sjónvárpið er hætt
að gera fréttaskýringaþætti, Kast-
ljós, en flytur inn Kastljós frá
Svíum í staðinn vikulega. Eins og
þú veist hefur Sjónvarpið tekið upp
þann hátt að bjóöa verkefni út í æ
ríkara mæli, en ég hélt að útboðið
næði aðeins til aðila hér innan-
-iands. Þróunin hefur hins vegar
orðið sú að vikuiega er nú sænskt
Kastljós á skjánum. Þannig höfum
við fengið að fylgjast með vanda-
málum lögreglunnar í Svíaríki,
skoðunum Svía á átökum ísraela
og araba, svo eitthvað sé nefnt. Mér
dettur stundum í hug hvort hér sé
um einhver vöruskipti að ræða þar
sem dagskrárstjóri Sjónvarpsins
hefur verið iðinn við að filma fyrir
Svía. Nú er ég mjög hlynntur því
að fá sem mestar og bestar fréttir
frá Norðurlöndum, en væri ekki
hægt að koma Hrafni í filmuvinnu
fyrir Norðmenn og Dani líka svo
Kastljósin kæmu víðar að en nú.
Það er alltaf verið að ræða um Sjón-
varpið og nú síðast er birt langt
viðtal við Sigrúnu Stefánsdóttur í
Nýju lífi þar sem hún er litlu blíð-
ari á manninn en Ingvi Hrafn á
sínum tíma þegar rætt er um yfir-
stjórn Ríkisútvarpsins. Sigrún seg-
Bréftílvinar
Sæmundur Guövinsson
ir að útvarpsstjóri hafi á sínum
tíma boðið sér stöðu dagskrárstjóra
en svikið það og síðan hafi hann
boðiö sér stöðu fréttastjóra þegar
hann var kominn með brottrekstr-
arbréf Ingva Hrafns upp í ermina
en svikið það líka. Ljótt er ef satt
er, ég segi nú bara það. Og svo kom
skuggi dagskrárstjórans fram á
síðum Morgunblaðsins og úthúðaði
formanni Starfsmannafélags Sjón-
varpsins fyrir aö dirfast að hafa
skoðun á því hvernig bæri að reka
þessa stofnun. Mikið er langlund-
argeð þitt, Matthias minn, aö birta
annað eins og þetta í hinu virðulega
Morgunblaði. En tjáningarfrelsið
verður auðvitað að hafa sinn gang.
Óneitanlega væri það nú skemmti-
legt ef Sjónvarpið hefði kjark til
þess að efna til umræðuþáttar þar
sem almenningi gæfist kostur á aö
fræðast um hvaða stefnu Sjón-
varpið fylgir hvað varðar fréttir og
aðra innlenda dagskrárgerð. Þetta
er þó sameign allrar þjóðarinnar
og því réttlætiskrafa að við fáum
að fylgjast með því sem þar gerist
á annan hátt en með lestri skam-
margreina starfsmanna í blöðum
og tímaritum. En það er svo sem
víðar deilt. Til dæmis í ríkisstjórn-
inni. Þó held ég að þar sé eitthvað
að rofa til því bæði Þorsteinn og
Steingrímur eru búnir að lýsa því
yfir að það dugi ekki lengur að vera
alltaf að hnotabítast. Og ef menn
eru sammála um að hætta að rífast
þá hljóta sættir að vera á næsta
leiti og þá hefúr Þorsteinn ekki
hvesst sig til einskis. Svo eru flokk-
amir sennilega ekkert spenntir
fyrir kosningum í bráð af ótta viö
Kvennalistann og sennilega eru
kellurnar líka dauöhræddar við
kosningar nú af ótta við stórsigur.
Svo má ég ekki gleyma að segja þér
frá því að Valur KEA-stjóri lét til-
leiðast að taka við Landsbankanum
og létti þar með þungu fargi af þjóð-
inni. Alltaf er nú gott til þess að
vita að enn skuli finnast menn
meöal vor sem eru reiðubúnir að
leggja á sig illa launuð erfiðisstörf
í þágu almannaheilla. Svo er bara
að bíða og sjá hver verður talinn
hæfur til þess að taka við KE A. Það
minnir mig á að þegar Valur tók
þar við stjóm af Jakobi Frímanns-
syni þótti sumum Akureyringum
það skítt að sækja þyrfti utan-
bæjarmann til starfa. Frammá-
maður á Akureyri færði þetta eitt
sinn í tal við mig í ölæði og sagði
aö ráðning Vals hefði ekki farið
fram í stjórn KEA heldur á fundi í
Frímúrarastúku bæjarins. Mér var
svo sem sama en Valur hefur rekið
KEA með miklum myndarskap og
vafamál að innfæddum Eyfiröingi
hefði tekist betur upp. Annars er
allt með felldu hérlendis um þessar
mundir nema hvað fréttir herma
að annaö hvert vertshús í borginni
sé að fara á hausinn vegna þess að
aðsókn er með eindæmum dræm.
Það ætti þó ekki að koma að sök
þótt tuttugu hús færu yfir um því
þaö er víst verið að innrétta álíka
marga veitingastaði til viöbótar.
Og nú er slegist um hverja kjallara-
kompu því allir ætla að opna bjór-
kjallara áður en bjórflóðið steypist
yfir okkur næsta vor. Þaö er sjálf-
sagt ekkert verra að gera út á bjór-
inn en mink eða ref svo ekki sé
minnst á laxinn sem á eftir að gera
okkur öll að milljarðamæringum,
allavega á pappírnum. Ég vonast
eftir korti frá þér eftir að þú ert
kominn í sólina á Ítalíu.
Bestu kveðjur,
Sæmundur
ERÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2 12
A Valur Arnþórsson tekur við staríibankastjóra við Lands-
bankann. Hann kemur í stað
1: Jónasar Haralds
X: HelgaBergs
2: Stefáns Hilmarssonar
B Þettamerki,maðuraðsá,hefurveriðnotaðvíðar
fN en hér á landi, þar á meðal hj á merku bandarísku
[/bókaforlagi. Hér er það merki
l - 1: Búnaðarfélags íslands
\f \J X: Búnaðarbankans
2: SparisjóðsMýrasýslu
F í slenskur kraftaj ötunn gekk undir nafninu ÚRSUS í Dan-
mörku og víðar erlendis á stríðsárunum og næstu ár á
eftir. Hans rétta nafn var
1: Gunnar Salómonsson
X: Lárus Salómonsson
2: Helgi Salómonsson
G Nýlega lenti farþegaþota á öðrum hreyflinum á Keflavíkur-
flugvelli. Hún var af gerðinni
1: Douglas
X: Boeing
2: Airbus
C Þegarþúsérðþettamerkiþá
,i —___________ veistuaðveriöeraðtalaum
W9 ÆmÆÆ/ 1: Heimilistæki
•• y/ X: Tölvur
2: Mótorhjól
D Búið er að draga í Evrópukeppni félagsliða. íA dróst á
móti liðinu Ujpest Doza. „Þekki ekki haus né sporð á lið-
inu,“ sagði Sigurður Lárusson hjá ÍA, en við vitum að það
erfrá
1: Rúmeníu
X: Búlgaríu
2: Ungveijalandi
H Hverbýöurbónusreikning?
1: Alþýðubankinn
X: Iðnaðarbankinn
2: Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
Sendandi ___________________
Heimili
E Örn Arnarson var þekkt og ástsælt skáld. En þetta var
skáldaheiti og í raun hét skáldið
1: Magnús Sigurðsson
X: Magnús Stefánsson
2: Magnús Ólafsson
Rétt svar:
A □
E □
B □
F □
C □ D □
G □ H □
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið réttar lausnir og
sendið okkur þær á svarseðlin-
um. Skilafrestur er 10 dagar.
Að þeim tíma hðnum drögum
við úr réttum lausnum og veit-
um þrenn verðlaun, öll frá Póst-
versluninni Primú í Hafnar-
firði.Þaueru:
1. Töskusett, kr. 6.250,-
2. Vasadiskó ogreiknitölva, kr.
2.100,-
3. Skærasett, kr. 1.560,-
1 öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýjar spurningar koma í næsta
helgarblaði.
Merkið umslagið: 1 eða X eða
2, c/o DV, pósthólf5380,125
Reykjavík.
Vinningshafar fyrir 1 eða X eða
2 í tíundu getraun (var vitlaust
merkt þriðja) reyndust vera:
Helga Hermannsdóttir, Kirkju-
stíg 9,580 Siglufirði (töskusett),
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir,
Barðaströnd 23,170 Seltjarnar-
nesi (vasadiskó og reiknitölva),
Páll Janus Traustason, Sigtúni
27,450 Patreksfirði (skærasett).
Vinningarnir verða sendir
heim.
Rétt lausn var: X-2-1-X-2-X-
1-X