Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Side 22
22
AKUREYRI
Blaðbera vantar á Ytri-Brekkuna sem fyrst. Uppl. á
afgreiðslu DV á Akureyri í síma 25013.
Kennarar athugið
Við Laugaskóla í Dalasýslu eru lausar til
umsóknar tvær kennarastöður.
Kennslugreinar m.a. ísl. og erl. mál.
Allar upplýsingar um stöðurnar veitir
Guðríður Aadnegárd yfirkennari í síma
91-51459 eða 93-41363.
Umsóknarfrestur er til 4. ágúst.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í íslenskri
málfræði vð íslenska málstöð. Verkefni einkum á
sviði hagnýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og
fræðsla og ritstjórnarstörf. Til sérfræðings verða gerð-
ar sams konar kröfur um menntun og til lektors í
íslenskri málfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms-
feril og storf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 18. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið,
19. júlí 1988
Laus staða
Laus er til umsóknar hálf staða lektors í hjúkrunar-
fræði við námsbraut í hjúkrunarfræði í læknadeild
Háskóla Islands. Aðalkennslugrein er heilbrigðis-
fræðsla. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna til
tveggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ítarlegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir á sviði hjúkr-
unarfræði, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykja-
vík, fyrir 17. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið,
18. júlí 1988
BIREIÐAR TIL SÖLU
Pontiac 6000 STE 1987. Ekinn 1800 km. Bíllinn
er hlaðinn aukahlutum m.a. „anti-lock“ bremsum.
Verð kr. 1.350.000. Litur blár.
Oldsmobile Calais Supreme sedan árg. 1987.
Blár. 4ra dyra, 6 cyl, rafmagn í rúðum og læsingum.
Veltistýri, hraðastillir, tölvumælaborð, sóllúga, UXl
útvarp. Ekinn 13000 km. Verð 1.180.000.
Buick Century 4ra dyra sedan árg. 1985. Blár.
Vökva- og veltistýri, rafm. rúður og læsingar. Hraða-
stillir, „power bremsur“, útvarp og kassetta, ekinn 60
þús km. Verð kr. 850.000.
Nissan Sunny 1988 rauður 4x4 ekinn 12000 km.
Verð kr. 700.000.
Uppl. í símum 91-40760.
985-25610.
985-24306.
LAUGARDAGUR 23. JÚLl 1988.
Mountbatten lávarður á Stöð 2:_
Hannnáði að sameina
Mountbatten lávarður var síðasti
landstjóri Breta á Indlandi. Hann var
sendur þangað árið 1947 um það leyti
sem landið var að fá sjálfstæði sitt.
Óeirðir voru miklar í landinu en
Mountbatten, sem sjálfur var í vafa
hvort hann ætti að taka starfið að
sér, náði strax hylli og sameiningu
þjóðarinnar. Um þetta {jallar mynda-
flokkur sem hefur göngu sína á Stöð
2 á miðvikudagskvöld. Myndaflokk-
urinn, sem er breskur, er í sex þátt-
um. Geysimikil vinna var lögð í þætt-
ina þannig að þeir mættu sýna sem
best raunverulega atburði. Leikarar
voru valdir af mikilli kostgæfni og
eru margir af þekktustu leikurum
Breta í myndaflokknum.
Fyrsti þáttur hefst árið 1947.
Mountbatten var þá nýkominn heim
til Bretlands eftir að hafa verið her-
foringi í breska hemum í Suðáust-
ur-Asíu. Breska stjórnin óskaði eftir
að Mountbatten færi til Indlands sem
landstjóri en sjálfur var hann í vafa.
Reyndar var Winston Churchill ekki
meðmæltur sjálfstæði Indlands á
þessum tíma.
Hvattur til fararinnar
Þegar Mountbatten sagði frænda
sínum, Georg sjötta, konungi Bret-
lands, frá beiðni stjórnarinnar hvatti
hann Mountbatten eindregið til að
taka aö sér starfið. Georg sjötti, faðir
Elísabetar drottningar, hafði tekið
við krúnunni af bróður sínum Ját-
varði, sem varð að segja af sér er
hann kvæntist Wallis Simpson.
Eiginkona Mountbattens, Edwina,
var samþykk því að þau hjónin færu
til Indlands en þau áttu eina stálpaða
dóttur á þeim tíma. Þaö varð úr að
fjölskyldan flutti til Indlands í mars
1947. Það var ekki bara vegna sjálf-
stæðis Indlands sem Mountbatten
tók að sér starfið. Miklar óeirðir voru
miUi trúarhópa í landinu og kyrrð
varð að komast á. Það var meðal
annars verkéfni Mountbattens.
24. mars áriö 1947 var Mountbatten
settur inn í embætti landstjóra með
mikilli viöhöfn og glæsibrag. Athöfn-
in fór fram í höll landstjórans í Delhi
sem nú er bústaður forseta landsins
og tákn þess að þama hafi verið
bresk nýlenda.
í hópi frægra leiðtoga
Mountbatten eignaðist strax góða
félaga sem vom Pandit Nehm,
stjómmálaleiðtogi og faðir Indiru
Gandhi, og hinn andlegi leiðtogi Ind-
veija, Mahatma Gandhi. Mountbatt-
en hafði mikil völd í landinu og not-
aði það vald.
14. ágúst 1947 var sjálfstæði Ind-
lands lýst yfir og fáni landsins, hvít-
ur og grænn, dreginn að húni. Fólkið
í landinu óskaði eftir að Mountbatten
yrði gerður að ríkisstjóra landsins
sem hann þáði. Stuttu síðar reið yfir
önnur blóðsúthelhng meðal óeirðar-
manna í landinu.
Koma Gandhi til Kalkútta kom á
friði um tíma en í Punjab-ríki héldu
blóðsúthellingar áfram og tíu millj-
ónir manna vom á flótta. Þegar
óeirðirnar bárust til Delhi óskaði
Nehra eftir hjálp frá Mountbatten.
Meðan hann reyndi að koma á friði
gekk kona hans í hjúkmnarstörf til
að hjálpa særðum og hungmðum.
Það varð síðan áfall öllum heimin-
um er Gandhi, leiötogi þjóðarinnar,
var myrtur. Indveijar voru djúpt
særðir og snéru sér að friðarhugsun-
um og íhugun. Meö því móti sýndu
þeir hinum látna virðingu sína.
Haldið heim
Það var komið að kveðjustund
fyrir Mountbatten og Edwinu. Þau
héldu til Bretlands 21. júní 1948 með
virðingu heillar þjóðar í farteskinu.
Þau hjónin höfðu breytt lífi milfjóna
manna með hugrekki sínu, viljastyrk
og náinni samvinnu við indverska
leiðtoga. Indverska þjóðin gleymdi
þeim aldrei.
Mountbatten lávarður var gerður
að aömíráli breska flotans nokkrum
ámm eftir heimkomuna. Hann lifði
viðburðaríku lifi sem vel virtur yfir-
stéttarmaður. Það var því mikið áfall
Lávarður og lafði Mountbatten.
Myndin var tekin árið 1947.
fyrir Breta er hann var myrtur ásamt
dóttursyni sínum áriö 1979. Hermd-
arverkamenn úr írska lýðveldis-
hemum komu fyrir sprengju í báti
hans þar sem hann var á skemmti-
ferð með bamabami sínu sem var
arftaki titilsins.
Gaf Agöthu Christie ráð
í ævisögu Agöthu Christie segir
hún frá því að einu sinni hafi hún
fengið nafnlaust bréf þar sem stungið
var upp á „plotti“ í eina sögu. Agatha
Christie, sem alltaf hafði fundið upp
„plottin" sín sjálf, leist svo vel á
þessa uppástungu aö hún skrifaði
sögu þar sem uppástungan var not-
uð. Mörgum árum síðar hitti hún
Mountbatten lávarð á veitingahúsi.
Hann hvíslaði að henni: Gott að þú
gast notað „plottið". Þannig komst
Agatha Christie að því hver hafði
sent henni bréfið því enginn gat vitað
um þetta nema þau tvö.
í þáttunum fer fjöldi góöra leikara
með hlutverkin. Þeir hafa flestir
hlotið frama sinn í leikverkum Sha-
kespeares.
Nicol Williamsson
sem Mountbatten
Með hlutverk Mountbattens í
þáttunum fer leikarinn Nicol Will-
iamson. Hann er virtur leikari í Bret-
landi meðal annars fyrir leik sinn á
sviði í Inadmissible Evidence árið
1966 og Hamlet árið 1970. Nicol þykir
svipa nokkuð til Mountbattens í út-
liti. Frægasta hlutverk Williamsons
á sviði er Sherlock Holmes í The
Seven Per Cent Solution.
Williamson er Skoti. Hann lék í
Inadmissiable Evidence, bíómynd
sem gerð var af John Osbomes áriö
1967. í þessu verki lék hann ekki
bara á sviöi í London og í bíómynd
heldur einnig á Broadway þar sem
hann hlaut Tony-verðlaunin árið
1966. Hann lék jöfnum höndum í
kvikmyndum og á sviði. Má þar
nefna myndir eins og The Bofors
Gun, Laugther in the Dark, The
Reckoning, aðalhlutverk fékk hann
í Hamlet og í The Jemsalem File.
Hann snéri aftur til Bretlánds á svið-
ið árið 1973 til aö leika Macbeth,
Twelfth Night og Corolanus.
Hann hafði með höndum eins hlut-
verks sýningu í Midwinter Spring
áður en hann hélt til Broadway þar
sem hann lék á móti stjörnunum
George C. Scott og Julie Christie.
Hann snéri sér aftur að kvikmynda-
leik og lék í myndum eins og The
Wilby Conspiracy, Robin and Mari-
on, þar sem hann lék með Sean
Connery og Audrey Hepburn, og
fleiri myndum.
Nick Wilhamson hlaut þann heiöur
að setja upp eins manns sýningu í
Hvíta húsinu. Fyrir sjónvarp lék
hann aðalhlutverkið í Macbeth fyrir
Shakespeare-þáttaröð sem BBC lét
framleiða og lék í þáttaröð hjá CBS
um Kristófer Kólumbus.
Nicol Williamson leikur í nýrri
Disney-mynd, Retum to Oz.
Janet Suzman
leikur lafðina
Janet Suzman, sem leikur lafði
Mountbatten, er ein af vinsælustu
leikkonun Englands. Hún hefur eins
og Williamson leikið í mörgum
Shakespeare verkum. Hún nam við
London Academy of Music and
Dramatic Art og útskrifaðist þaöan
árið 1962. Fimm mánuðum seinna
var hún komin í Shakespeare-leik-
húsiö þar sem hún lék La Pucella í
Wars of the Roses. Þá lék hún Violu
í Twelfth Night, Laviniu í Titus
Andronicus, Ophehu í Hamlet, Por-
tiu í The Merchant of Venice, Rosa-
hnd í Loves Labours Lost og Kather-
ine í Taming of the Shrew. Árið 1973
fékk hún hlutverk Kleópötru.
Suzman færði sig um set yfir í
West End og lék í Heho Goodbye í
Kings Head leikhúsinu. Fyrir hlut-
verk sitt í því leikriti hlaut hún Even-
ing Standard verðlaunin. Hún hlaut
þau aftur árið 1976 þegar .hún lék
Masha í The Three Sisters. Þá lék
hún í Hedda Gabler, The Good Wo-
man of Setzuan, Boo Hoo og Duchess
of Malfi og með Shakespeare-leik-
húsinu í The Greeks.
Janet Suzman hefur einnig leikið í
fjölda kvikmynda. Má þar nefna A
Day in the Death of Joe Egg og Nic-
holas and Alexandra. Hún var út-
nefnd til óskarsverðlauna árið 1973.
Þá lék hún í kvikmyndum eins og
The Black Windmill, The Voyage of
the Damned, The House on Garibaldi
Street, Nijinský, Priest of Love og
The Draughtman’s Contract.
í sjónvarpi hefur hún leikið tals-
vert fyrir BBC. t.d. Family Reunion,
The Three Sisters, aöalhlutverkið í
St. Joan, lafði Macbeth í Macbeth,
Charlotte Bronte í Solo, Heddu Gabl-
er og í Anthony og Cleopoatra. Fyrir
ITV sjónvarpsstöðina hefur hún leik-
ið Florence í Miss Nightingale og
Violu í Twelfth Night. Þá hefur hún
leikið f Clayhanger og fyrir CBS f
Robin Hood.
Hitti Indiru Gandhi
Ian Richardson leikur Pandit
Nehm. Hann var vissulega áhyggju-
fullur yfir hlutverki sínu því sjálfur
forsætisráðherra Breta, frú Thatc-
her, sagði honum að gera hlutverk-
inu góð skil og gera það vel. „Annars