Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1988, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988.
47
Knattspyma unglinga
5. flokkur - C-riðill
Haukar unnu Þór, Þ,
H í góðum leik
Leikur Hauka og Þórs, Þorlákshöfn,
kom verulega á óvart hvað gæði
varðar. Haukastrákarnir sigruðu,
2-1, og geta Þórsdrengirnir svo sann-
arlega borið höfuðið hátt því þeir
veittu Hafnarfjarðarliðinu harða
keppni og að tapa með minnsta mun
gegn toppliði C-riðils er vel af sér vik-
ið. Þór teflir bara fram A-liði.
Þór tók forystu þegar Teitur Guð-
mundsson skoraði með fóstu skoti
úti við stöng, algjörlega óverjandi.
Þór hafði yfy, 1-0, í hálfleik og var
jafnræði með liðunum.
í síðari hálfleik jafnaði Grímar
Jónsson fyrir Hauka og stuttu seinna
náðu þeir að skora sigurmarkið þeg-
ar Haraldur Sturluson fékk boltann
óvaldaður fyrir framan markið og
renndi snyrtiiega fram hjá mark-
verði Þórs.
Liðin sóttu stíft undir lokin-og meö
smáheppni hefði leikurinn getað
endað með jafntefli.
Gott lið Hauka var skipað eftirtöld-
um leikmönnum: Gunnar Guð-
mundsson, Sigurþór Guðmundsson,
Óöinn Rafnsson, Páfl Pálsson, Grím-
ar Jónsson, Davíð Ólafsson, Harald-
ur Öm Sturluson, Jón A. Kristjáns-
son, Helgi Pálmason, Helgi Þórðar-
son, Baldur Guðmundsson og Örvar
Guðmundsson. Þjálfari: ' Valdimar
Sveinbjömsson.
Lið Þórs, Þ., sem kom verulega á
óvart: Aðalsteinn Jóhannsson, Ágúst
Grétarsson, Óskar Þórðarson, Karl
Kristjánsson, Ottó Halldórsson, Sig-
urbjörn Þórðarson, Teikur Guö-
mundsson, Friðmar Bogason, Sig-
urður Jónsson og Þorsteinn Jónsson.
Þjálfari: Hólmar Sigþórsson.
-HH
Loksins birtist myndin af Reykjavikurmeisturum KR í 3. flokki kvenna. Stelpurnar stóðu sig afburðavel í mótinu og sigruðu í öllum sínum leikjum. í fremri
röð frá vinstri: Jóhanna Bragadóttir, ísabella Markan, Dóra Fjölnisdóttir, Helga Anna Steinsen, Sara Smart, Brynja Steinsen, Kristín Loftsdóttir, Margrét
Grétarsdóttir, Guðrún Norðfjörð, Anna Kristinsdóttir og Guðrún G. Stefánsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Ásta Jónsdóttir liðstjóri, Hildur Norðfjörð, Nanna
Magnúsdóttir, Margrét Arnarsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Margrét Grétarsdóttir, Snjólaug Birgisdóttir, Berglind Bergþórsdóttir, Bryndís Einarsdóttir, Hulda
Þórisdóttir, Helga Sigurbjörnsdóttir, Hrund og Arna Steinsen þjálfari. DV-mynd HH
3. flokkur karla - A-riðill:
Huginn Helgason skoraði tvö mörk gegn ÍK
Týrarar frá Vestmannaeyjum léku
sl. laugardag gegn ÍK á grasvellinum
í Kópavogi. Vestmannaeyjaliðið varð
að sigra til að missa ekki af mögu-
leika á úrslitasæti. í sömu ferð léku
þeir gegn Selfossi og sigruðu þá
reyndar einnig, 5-0. Drengirnir sóttu
því 4 stig í þessari ferð til megin-
landsins. ÍK-strákarnir léku undan
sterkum austanvindi fyrri hálfleik-
inn sem var tiltölulega jafn.
Það voru Týrarar sem tóku foryst-
una með snyrtilegu marki Einars
Gíslasonar. ÍK-strákamir voru ekk-
ert á því að leggja árar í bát og náðu
að jafna stuttu seinna með hörku-
skoti Eiríks Gunnsteinssonar. Hug-
inn Helgson, framherji Týrara, var í
miklum ham í þessum leik og náði
forystu, 2-1, með fóstu skoti. ÍK-
drengirnir börðust vel og ætluðu
greinilega að selja sig dýrt og upp-
skáru fyrir vikið jöfnunarmark þeg-
ar Svavar G. Svavarsson skoraði
beint úr frísparki meö fóstu skoti í
bláhorniö.
í síðari hálfleik var á brattann að
sækja fyrir ÍK því mótvindur var
sterkur. Týr sótti mun meira og bætti
við tveim mörkum þeirra Hugins
Helgasonar og Hugins Egilssonar.
Lokatölur uröu því 2-4, Tý í vil. Týr
var betri aðilinn í þessum leik. En
að öllum líkindum er þetta einn besti
leikur ÍK í riðlinum.
Lið Týs: Magnús Steindórsson, Þórð-
ur Jóhannsson, Huginn Egilsson,
Haraldur Bergvinsson, Ásgeir Hilm-
arsson, Huginn Helgason, Sigurður
Gylfason, Nökkvi Sverrisson, Einar
Guðjónsson, Ingólfur Kristjánsson,
Tómas Helgason og Einar Gíslason.
Lið ÍK: Hörður Eggertsson, Magnús
Björnsson, Svavar G. Svavarsson,
Þorvaldur Einarsson, Hlífar Rúnars-
son, Aðalsteinn Gunnlaugsson,
Rúnar Höskuldsson, Ragnar Sverris-
son, Pétur Aðalsteinsson, Eiríkur
Gunnsteinsson, Snorri Bergþórsson,
Frosti V. Össurarson, Haukur Gýlfa-
son, Sævar M. Sævarsson, Guð-
mundur Ómarsson og Jóhann Ólafs-
son. -HH
4. flokkur - A-riðill:
Týr V. sigraði Breiðblik, 2-0
Frá hinum bráðskemmtilega leik A-liða 5. flokks Hauka og Þórs frá Þorláks-
höfn. Þórsarar sækja fast að marki Hauka. DV-mynd HH
Það voru heldur betur sviptingar
í leik Týrara í 4. fl. um síðustu helgi.
Á laugardeginum töpuðu þeir stórt
gegn Akranesi, eða 8-0, en daginn
eftir sigruðu þeir Bhkana, 2-0, í
hörkuleik á grasvellinum í Kópa-
vogi. Staðan í hálfleik var 0-0.
í síðari hálfleik komust Týrarar
heldur betur í gang og maöur leiks-
ins, Rútur Snorrason, skoraði bæði
mörkin, hið seinna úr vítaspyrnu
eftir að honum hafði verið brugðið í
opnu færi. Drengurinn er einnig leik-
maður með 3. flokki Týs og er greini-
legt á öllu að hér er mikið efni á ferð-
inni.
-HH
30%-reglan
í fámennum byggðarlögum getur
oft verið erfitt að halda úti knatt-
spymuliði. í þrem litlum byggðar-
kjörnum á Suðurlandi datt mönn-
um því það snjallræði í hug að
senda sameiginlegt mfl.lið á ís-
landsmótið. Nú bar svo við að að-
eins einn leikmaður var valinn úr
einu héraðanna. Þetta fannst sum-
um heldur þunnur þrettándi, hér
yröi skynsemin að ráða og gáfu þá
skýringu að þar sem þeir borguðu
30% af kostnaði væri mjög eðlilegt
að þeir fengju í það minnsta 3 leik-
menn í liðið. Það virðist hafa orðið
ofan á því allt er í góðu gengi og
liðinu vegnar bara bærilega. Segið
svo að kvótaskiptingin komi ekki
að gagni víðar en í...
-HH
- Það sem kemur mér mest á óvart með
þennan dreng er að hann skuli þó alltaf
finna réttu leiöina inn í búningsklefa!!!
Gústi
„sweeper“:
Umsjón
Halldór Halldórsson
Vegna flutnings hefur heimasíminn
breyst og er 91-674237. Hafið samband
sem hingað til. -HH
Frá leik Víkings og Vals í 4. flokki. Vikingar í sókn. Einbeitingin leynir sér
ekki hjá leikmönnum beggja liða og Benedikt Ófeigsson i marki Vals er
greinilega til í allt. Leiknum iauk með sigri Víkings, 5-2. Vikingsdrengurinn
lengst til vinstri er enginn annar en Helgi Sigurðsson sem skoraði 3 mörk
í leiknum. DV-mynd HH
3. flokkur - B-rióill:
IA-FH,
3-1 (2-1)
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi
Leikurinn var oft á tíðum mjög
skemmtilegur og voru Skagamenn
allan tímann mun betri, þó var það
FH sem tók forystu eftir 8 mín. þegar
Hilmar skoraði beint úr hornspyrnu
en FH lék undan vindi í fyrri hálf-
leik. Síðan voru það tvíburabræð-
urnir Arnar og Bjarki sem náðu for-
ystunni fyrir Skagamenn fyrir hálf-
leik en þá höfðu þeir meðal annars
misnotað 3 dauðafæri. í síðari hálf-
leik héldu Skagamenn uppteknum
hætti og sóttu nær látlaust og fengu
mörg tækifæri til að bæta við mörk-
um. Það kom síðan í hlut Ágústs að
skora þriðja mark Skagamanna. Þá
skaut Þórður, markvörður Skaga-
manna, fram hjá úr vítaspyrnu á síð-
ustu mínútu.
Drengjalandsliðið áNorðurlandamótið í Svíþjóó'
Drengjalandshð íslands á NL U15
í Vesterás 1.7-8.7 1988 hefur verið
valið og er skipað eftirtöldum drengj-
um:
Arnar B. Gunnlaugsson ÍA
Bjarki B. Gunnlaugsson ÍA
Friðrik Ingi Þorsteinsson Fram
Guðmundur Páll Gíslason Fram
Gunnar Þór Pétursson Fylki
Ásgeir Baldursson UBK
Kjartan Páll Magnússon Stjörnunni
Kristinn Ingi Lárusson Stjörnunni
Lárus Orri Sigurðsson ÍA
Nökkvi Sveinsson Tý
Pétur Hafliði Marteinsson Fram
Sigurður Fr. Gylfason Tý
Sigurður Ómarsson KR
Steingrímur Örn Eiðsson KS
Þórhallur Dan Jóhannsson Fylki
Ægir Þormar Dagsson KA
Þjálfari er Lárus Loftsson.