Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 2
Fréttir
LAUGARDAGUR
1. OKTÓBER 1988.
Megninu af 2,5 miUjarða skattahækkun náð í gegnum tekjuskattinn:
Hækkun tekjuskatts leggst
jafht á flesta launþega
Þó ráöa megi af yfirlýsingum Ólafs
Ragnars Grímssonar fjármálaráö-
herra aö meginþátturinn í nýrri
skattheimtu ríkisstjórnarinnar felist
i skatti á fjármagnstekjur gerir áætl-
un fjármálaráðuneytisins ekki ráö
fvrir aö þessi skattur gefi nema um
200 til 300 milljónir króna í tekjur til
ríkissjóös. Þá standa enn eftir 2.2 til
2,3 milljarðar af þeirri fjárhæð sem
ríkisstjórnin hefur samþvkkt að inn-
heimta i nýjum skattaálögum. Ráö-
gert er aö megnið af þeirri upphæö
komi í ríkissjóð í gegnum hækkun á
tekjuskatti einstaklinga.
í fjármálaráöuneytinu voru lagöir
skattur á ijármagnstekjur skilar litlu inn í ríkissjóð
fram þrír kostir unt hugsanlega
hækkun á tekjuskatti. í fyrsta lagi
aö hækka skattprósentuna. í öðru
lagi aö bæta viö nýju skattþrepi. í
þriöja lagi aö leggja á sérstakan
tekjuskattsauka sem yröi lagður á
eftir á eins og eignarskattur. Þar sem
riýtt skattþrep hefur það í för með
sér aö hætt er við aö það komi mis-
jafnlega niður á fjöiskyldum eftir því
hvort þær hafa eina fyrirvinnu eða
tvær hneigjast stjórnvöld nú aö því
að nota hinar tvær aðferðirnar.
Ráðgert er aö skattprósentan veröi
hækkuö um 1,5 til 2 prósent, eða úr
35,2 prósentum i 36,7 til 37,2 prósent.
Hvert prósentustig sem bætist við
núgildandi kerfi gefur ríkissjóði um
700 milljónir í tekjur sé miðaö viö aö
núverandi skattleysismörk haldi sér.
Sé miðað viö að stjórnvöld hækki
skattprósétuna um 2 prósent munu
allir þeir sem eru fyrir ofan skatt-
leysismörk greiöa 5,7 prósent hærri
skatt en í dag. Hækkun skattprósent-
unnar mun hins vegar hafa þaö í för
meö sér aö skattbyrði þeirra sem
hafa háar tekjur mun aukast lítillega
umfram skattbyrði þeirra sem hafa
lágar tekjur. Sé enn tekiö mið af 2
prósenta hækkun mun skattbyrði
þess sem er meö 50 þúsund krónur
á mánuöi aukast um 0,2 prósent, þess
sem er meö 100 þúsund um 1 prósent
og þess sem er með 150 þúsund á
mánuði um 1,5 prósent.
í stjórnarmyndunarviðræðunum
var einnig rætt um hugsanlegan
tekjuskattsauka. Hugmyndin er sú
aö þessi skattur verði lagður á viö
eftiráuppgjör á sama tíma og eignar-
skattur er lagður á. Þessi hugmynd
hefur ekki verið útfærö aö fullu en
gert er ráö fyrir aö tekjuskattsauk-
inn leggist á þá sem hafa 130 til 150
þúsund krónur á mánuöi eöa meira.
Þaö fer eftir útfærslu á þessum tekju-
skattsauka hversu miklar tekjur rík-
issjóös verða af honum.
Af öörum sköttum, sem rætt hefur
veriö um, má nefna skatt á fjár-
magnsstofnanir, sambærilegan þeim
sem bankar greiöa. Slíkur skattur
gæfi ríkissjóði ekki umtalsverðar
tekjur. Einnig er gert ráö fyrir aö lög
um sérstakt gjald á erlendar lántök-
ur verði framlengd. Þar sem útflutn-
ingsgreinamar yröu að öllum líkind-
um undanþegnar þessu gjaldi er
heldur ekki talið aö þaö skili miklu.
-gse
íslenskur heimsmethafi í nákvæmnisskotfimi:
Sló tuttugu ára gamalt heims
met í nákvæmnisskotfimi
íslenskur nákvæmnisskotmaöur,
Birgir Sæmundsson, búsettur í
Þorlákshöfr), kom heim til íslands
í síðustu viku með nýtt heimsmet
í farteskinu. Setti hann það á dög-
unum í svokallaðri Heavy Bench
nákvæmnisskotfimi í Ohio. Skot-
fimin byggðist á því aö skjóta 10
skotum í gegnum sama gatiö úr 182
metra fjarlægð. Geigunin mældist
ekki nema .275 inch, sem er bestur
mældur árangur í öllum heiminum
í dag. Gamla heimsmetið var .298
inch, sett af Bandaríkjamanni, og
er búið að standa í 20 ár.
Þess má geta að þetta met hjá
Birgi er engin tUviIjuit. Aö sögn
þeirra sem til þekkja heíur hann
oftsinnis sett óskráð heimsmet hér
á landi. Á mótinu var keppt í flór-
um styrkleikaflokkum og setti
Birgir heimsmetið í erfiðasta flokki
sem voru 5 sinnum 10 skot og
þyngstu rifllar en hinir flokkarnir
eru 5 sinnum 5 skot og léttari rifll-
ar. Hann var eini íslendingurinn
af 100 keppendum í þessum þyngd-
arflokki.
Birgir sagðist að vonum hæst-
ánægður með árangurinn á mótinu
sem Alþjóðasamtök nákvæmnis-
skotmanna, IBS, stóðu fyrir.
„Ég er búihn að stefiia aö þessum
árangri markvisst í 2 til 3 ár en hef
unnið að honura síðastliðin 12 ár.
Allt sem þarf er eldmóður og þolin-
mæði,“ sagöi Birgir.
Birgir smíðaði riffilinn sinn sjálf-
ur. „Riffillinn sem ég smíðaði gerði
gæfumuninn. Það eru 1000 atriði
sem þarf að huga að við byssusmíði
og þar er engin keðja sterkari en
veikasti hlekkurinn. Byssusmiði er
það sem ég er búinn aö vera að
læra í bréfaskóla undanfarin 10 ár
og notaði tækifærið í þessari
keppnisferð og nældi mér í próf í
byssusmíði."
Birgir vann þrjú mót sem haldin
voru hér á landi í sumar en þar
kepptu yfirleitt 7 til 9 manns. Að
sögn hans eru íslendingar mjög
færir í þessari grein og eiga góða
möguleika á frama í henni.
Eins og stendur er eklú keppt í
þessari grein á ólympíuleikunum
er úr þvi verður að öllum líkindum
bætt á ólympíuleikunum sem
haldnir verða í Barcelona árið 1992.
Þar verður þá loks von um að eign-
ast okkar fyrsta ólympíumeistara
en Birgir, sem er 33 ára vélstjóri
að mennt, er ákveðinn í því að
halda áfram í íþróttinni og gera enn
betur.
-GKr
Birgir Sæmundsson heimsmeistari bendir okkur á gatið sem hann skaut
10 skotum í gegnum úr 182 metra fjarlægð. Málið er ekki aö hitta í
miðjuna heldur aftur þar sem fyrst var skotið.
Innfellda myndin er af skjalinu sem staöfestir heimsmetið. DV-mynd GVA
Leiðsögumaðurinn fær góða dóma í Englandi:
Talinn vera íslensk mynd
- sýningum fer fækkandi hér á landi
Kvikmyndin Leiðsögumaðurinn
hefur nú verið sýnd víða um lönd og
undantekningarlaust fengið góða
dóma. í London hefur myndin verið
sýnd í um það bil hálfan mánuö.
Ensku blöðin hafa birt dóma um
myndina þar sem hún er lofuð í há-
stert. Segir t.d. í Daily Telegraph 22.
september aö í myndinni megi sjá
fersk og nýstárleg efnistök. Daily
Mail segir fólki að það verði aö sjá
Leiðsögumanninn enda sé um
óvenjufallega og spennandi mynd aö
ræða.
Blaðið Today virðist hins vegar
ekki alveg hafa áttaö sig á ætterni
myndarinnar og er hún þar sögð
vera frá íslandi - sjálfsagt vegna þess
að Helgi Skúlason fer með eitt aðal-
hlutverkið. Þar er frammistaöa leik-
aranna lofuö mjög.
Blöð eins og Sunday Mirror, The
Sunday Times, The Sunday Express
og The Guardian geta einnig mynd-
arinnar. Þá skrifar hin virti kvik-
myndagagnrýnandi, Philip French,
lofsamlega grein í The Observer þar
sem hann segir að myndin sé ekki
fullkomin en annmarkar hennar séu
aðeins minni háttar. Á heildina litið
sé myndin einstakt framtak.
Myndin er enn sýnd hér á landi en
sýningum fer fækkandi. Að sögn
Helga Skúlasonar er ætlunin aö fara
aö sýna hana í Bandaríkjunum en
viðtökurnar þar skipta miklu varö-
andi fjárhagslegt gengi myndarinn-
ar.
-SMJ
Slapp úr snjóflóði:
„Hræðslan
bjargaði mér“
„Allt í einu fór snjórinn af stað og
ég hreifst með. Ég varð auðvitað log-
andi hræddur og það bjargaöi mér.
Maður fær margfaldan kraft þegar
hræðslan grípur mann. Flóöið hélt
áfram niöur hlíðina og fram af björg-
um, 300 metra niður í sjó,“ sagði
Guðmundur Sveinsson á Bakka í
Borgarfirði eystra við DV.
Guðmundur var í göngum ásamt
um 10 mönnum. Óhappið varð á
mánudag. Guðmundur slapp með
mar á ökkla og gat lokið göngunum
ásamt félögum sínum. Komu menn
til bæja í fyrrakvöld. -hlh
í dag verður dreginn út bónusvinn-
ingurinn í ólympiuleik DV og vinn-
ingurinn er ekki af verri endanum —
helgarferð fyrir tvo i boði Flugieiða
til New York. Á myndinni er eitt
helsta einkenni New York, Frelsis-
styttan, en þangað geta heppnir
vinningshafar í leiknum okkar lagt
leið sína þegar þeir heimsækja
heimsborgina með Flugleiðum.
^Ólympíuleikur DV:
í dag kemur í
Ijóshverfertil
New York
Þegar dregið var í síðasta skipti úr
innsendum íjörkum í ólympíuleik
DV í samvinnu við Bylgjuna, Fjark-
ann og Flugleiöir í beinni útsendingu
á Bylgjunni í gær kom upp nafn 16
ára nema í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ, Rósu Daggar Jónsdóttur,
Hraunljólum 18. Þegar Þorsteinn
Ásgeirsson náði sambandi við Rósu
og óskaði henni til hamingju sagðist
hún ekki vera búin aö ákveða á
hvorn staðinn hún ætlaði aö fara eða
hverjum hún ætlaöi að bjóða með.
í dag verður svo dregið. um hver
hlýtur aöalvinninginn, sem er helg-
arferð fyrir tvo til New York í boði
Flugleiða, í beinni útsendingu á
Bylgjunni á milli klukkan þrjú og
fjögur.