Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988. 59 Helgi Ólafsson 37. e4 dxe4 38. Bxe4 Hal+ 39. Kg2 Db5 40. Df3 Db4 41. Hf8+! Dxf8 42. Bxh7+ Kxh7 43. Dxf8 Hdl 44. Dd8 Rf5 45. Dd7+ Rg7 46. g4 Hd2+ 47. Kg3 Hdl 48. Dd8 Hfl 49. DfB! Hdl 50. Df2 Hcl 51. Kh4 Hc7 52. Df3 Kg8 53. Da8+ Kf7 54. Dd8 He7 55. Kg5 Og svartur gafst upp. -JLÁ Bridgefélag Reykjavíkur Önnur umferð í barómeterkeppni félagsins fór fram síðasta miðviku- dag, en 44 pör taka þátt í keppninni. Hæstu skor kvöldsins hlutu: 1. Rúnar Magnússon - Páll Valdi- marsson 171 2. Jónas P. Erlingsson - Guðmundur Pétursson 122 3. Jón Þorvarðarson - Guðni Sigur- bjarnason 119 4. Aðalsteinn Jörgensen - Ragnar Magnússon 99 Eftir 14 umferðir af 43 er staða efstu para þannig: 1.-2. Aðalsteinn Jörgensen - Ragnar Magnússon 196 1.-2. Jón Þorvarðarson - Guðni Sig- urbjarnason 196 3. Rúnar Magnússon - Páll Valdi- marsson 195 4. -5. Jakob Kristinsson - Magnús Ólafsson 164 4.-5. Ásgeir Ásbjörnsson - Hrólfur Hjaltason 164 6. Eiríkur Hjaltason - Páll Hjaltason 135 7. ísak Sigurðsson - Sigurður Vil- hjálmsson 134 8. -9. Jacqui McGreal - Þorlákur Jónsson 130 8.-9. Jónas P. Erlingsson - Guð- mundur Pétursson 130 10. Georg Sverrisson - Þórir Sigur- steinsson 126 Bridgefélag Hafharfjarðar Síðasta mánudag var spilaður eins kvölds tvímenningur. Mæting var í minna lagi og var spilaö í einum riöli. Úrslit urðu þessi: 1. Einar-Björgvin 241 2. Andrés - Halldór 233 3. Bjöm-Anton 230 4. Böðvar-Ingvar 225 5. Jón Viðar - Stígur 218 Meðalskor var 210 stig. Næsta mánu- dag, 3 okt., hefst Mitchell tvímenn- ingur og eru spilarar hvattir til að mæta vel. Spilað er aö venju í íþrótta- húsinu viö Strandgötu (uppi) og spilamennska hefst stundvíslega kl. 19.30. IþróttapistiH Ótrúleg vonbrigði Þegar þetta er skrifað eru ís- lensku keppendurnir um það bil að ljúka keppni á 24. ólympíuleik- unum í Suður-Kóreu. Miklar von- ir voru bundnar við okkar fólk en segja verður eins og er að von- brigðin urðu mikil. Hreint ótrú- lega mikil. Vissulega vora gerðar miklar kröfur en íþróttafólkið brást í flestöllum tilfellum. Landsliðið í handknattleik átti vægast sagt misjafna daga. Leik- imir gegn Bandaríkjamönnum og Alsírbúum voru þolanlegir en síðan tóku verri hlutir við. Stórtap gegn Svíum, jafnteíli gegn Júgóslövum og síðan stórtap fyrir Sovétmönnum. Eftir þessa leiki var ljóst að möguleik- ar okkar manna á aö halda sæti sínu í A-keppni heimsmeistara- keppninnar fólust í því að leggja Austur-Þjóðveija að velli í leik um 7. sætið. Einhver sögulegasti leikurinn á OL Ekki verður skrifað langt mál hér um leikinn gegn Austur-Þýska- landi. Það var grátlegt að tapa þeim leik og með örlítilli heppni hefði íslenska liðið átt að tryggja sér áframhaldandi veru í A- keppninni. En heilladísirnar voru á bandi Austur-Þjóðverja og nú verðum viö að líta fram á veg- inn og reyna að halda okkur í B-keppninni sem fram fer í febrú- ar í Frakklandi. Raúnhæft mark- mið er eflaust að falla ekki næst niður í C-keppnina. Furðuleg ummæli Bogdans þjálfara í DV í gær mátti lesa ummæli sem höfö voru eftir Bogdan Kowalc- zyk, fyrrverandi landsliðsþjálf- ara. Þar sagði Bogdan að blöðin heima á íslandi hafi skrifaö mjög neikvætt um íslenska liöið og að strákarnir í landsliðinu hefðu fengið fregnir af þessum skrifum þegar þeir hringdu heim til ís- lands meðan á keppninni stóð. Bogdan sagði einnig að það væri furðulegt að illa væri skrifað um lið sem ynni sjö marka sigur á ólympíuleikum og átti Bogdan þar við leik íslands gegn Banda- ríkjunum. Dæmalaust kjaftæði Reyndar hélt ég að Bogdan væri meiri maður en þessar yfirlýsing- ar gefa til kynna. Það veröur að teljast furðulegt að Bogdan skuli láta slíkt bull út úr sér sem hann gerði í DV í gær. Það er að mínu mati spurning hvort ekki sé best fyrir íslenskan handknattleik að losa sig við Bogdan sem fyrst. Hann hefur, að því er virðist, kennt okkar mönnum allt sem hann kann. • Allt I dúnalogni Sannleikurinn varðandi yfirlýs- ingar Bogdans um blöðin hér- lendis er sá að sjaldan eða aldrei hefur landsliðsþjálfari fengið annan eins frið fyrir íjölmiölum og einmitt Bogdan meöan á und- irbúningi fyrir ólympíuleikana stóð. Varla hefur sést eitt einasta styggðaryrði um íslenska liðið eða Bogdan sjálfan í marga mán- uði. Bogdan ætti að líta í eigin barm og fara yfir öll þau mistök sem hann hefur gert í undirbún- ingi landshðsins fyrir ólympíu- leikana og í leikjunum sjálfum í Suður-Kóreu. Sá þjálfari sem reynir að koma sökinni yfir á aöra í staö þess að viðurkenna eigin mistök er á rangri leið. Sannleikurinn er sá að ekki er pláss hér til að tíunda öll þau mistök sem Bogdan hefur gert á ólympíuleikunum. Innáskipting- ar eru þar hluti af heildinni. Þær voru oft á tíðum furðulegar, svo ekki sé meira sagt. Og punktur- inn yfir i-iö kom í vítakeppninni gegn Austur-Þjóðverjum þegar hann lét Karl Þráinsson taka eitt af vítunum fimm. Með fullri virð- ingu fyrir Karli Þráinssyni þá er það ekki hans sterka hlið að framkvæma vítaköst og allra síst á stundu sem þessari. Ekki alvondur Þótt það sé mitt mat að Bogdan hafi gert mörg mistök varðandi ólympíuleikana má ekki gleyma því þrekvirki sem hann hefur unnið fyrir íslenskan handknatt- leik. Snjallari þjálfari hefur ekki starfað hér á landi en snjallir þjálfarar geta greinilega gert mis- tök. í næsta pistli verður nánar fjall- að um frammistöðu íslendinga á ólympíuleikunum í Seoul. Stefán Kristjánsson • Guðmundur Guðmundsson og félagar i landsliðinu i handknattleik fá nú það hlutskipti að leika í B- keppninni í Frakklandi í febrúar. Nokkuð sem engan óraði fyrir áður en til ólympiuleikanna kom. Símamynd Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.