Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 8
8 HAL'GÁRbAGOR í. ORfÓBkR 1988. Leikfimi Nú er að hefjast hin vinsæla þrek- og teygjuleikfimi fyrir alla aldurshópa kvenna og karla í Breiðagerðisskóla. Uppl. í síma 46301 í dag og á morgun. Rósa Ólafsdóttir íþróttakennari BÍLASALA GARÐARS Borgartúni 1, símar 19615 - 18085. Nýlegir bílar úr söluskrá Suburban Silverrado, árg. '84, 8 cyl., sjálfsk., vökvast., cruisecont- rol, rafm., I rúðum, álf., ný 35" dekk, ek. 65.000 m. Verö 350.000. Suzuki Fox 413, langur, árg. '85,' svartur, 5 gíra, ekinn 41.000. Verð 630.000, bein sala. Ef bíllinn er á staönum selst hann strax. Þú færð hann hjá Garöari. EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smiðjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202 BÍLAR Til sölu notaðar bifreiðir í eigu umboðsins Benz 190 E '85, ekinn 82 þ. km. Cerokee Pioneer, beinsk., 5 g. ek. 32 þ. km. MMC Galant '87, ekinn 9 þ. km. Toyota Tercel '83, ekinn 93 þ. km. Range Rover '76, ekinn 130 þ. km. MMC Sapparo '82, ekinn 115 þ. km. OPIÐ I DAG FRA 13-17 Toyota Twin Cam 16 '86, ekinn 56 þ. km. MMC Pajero '87, ekinn 40 þ. km. Fréttir_______________________________dv Námskeið Hannesar Hólmsteins í félagsvísindadeild feUd niður: Er samkennurum sínum þakklátur fyrir fhlð - óttast ekki komu Svavars í menntamálaráðherrastólinn „Eg er mjög ánægöur meö aö vera tekinn til starfa í félagsvísindadeild og ég á ekki von á ööru en að mér verði vel tekið. Ég mun kenna ýmis námskeiö á þessum vetri en það hef- ur hagað svo til aö á þessu misseri mun ég einbeita mér að rannsókn- um,“ sagði Hannes Hólmsteinn Giss- urarson, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, sem þessa dagana ætti, að öllu jöfnu, að vera að hefja kennslu í tveim námskeiðum þar. Þau hafa hins vegar verið felld niður vegna ónógrar þátttöku. í kennsluskrá var Hannes Hólm- steinn skrifaður fyrir námskeiðinu Frelsi, ríkisvald og lýðræði. Enginn hefur verið skráður í þaö og nám- skeiðið því fellt niður. Sömu sögu má segja um námskeiðið Heimspeki félagsvísindanna sem átti að vera í umsjón Hannesar. Þrír höföu skráð sig þar til náms en sá siöur er við lýöi að fella niður námskeiö sem færri en fimm skrá sig í. Því hefur þetta námskeið einnig verið fellt nið- ur. Það er þó ekki í fyrsta skipti og væntanlega ekki það síðasta sem það gerist í Háskólanum. Hannes var þó síður en svo von- svikinn yfir þessum tíðindum þegar -blaðamaður DV bankaði upp á hjá honum við Ægisíðuna. Sagðist nú búa við fullkomið akademískt frelsi og hafa nóg við tímann að gera. Hann er nýkominn til landsins eftir aö hafa dvalist um fjögurra mánaða skeið erlendis. En hvaða skýringu skyldi hann hafa á því að enginn mætir í námskeiðin hans í félagsvís- indadeild? Auglýsingar misfórust „Eg held að það hafi eitthvað mis- farist auglýsingar um námskeiðin án þess að það skipti neinu meginmáli. Ég bað um að það yrðu auglýst með mér námskeið en af einhveijum ástæðum var það ekki gert. Það skiptir þó engu máli - ég er viss um aö það var. ekki vegna neinna skemmdarverka heldur mannlegra mistaka. Eg treysti samkennurum mínum til aö gæta í hvívetna eðli- legra starfs- og umgengnisreglna." - En verður þú þá aögerðalaus í vet- ur? „Síður en svo. Ég hef tvö verk á prjónunum. í fyrsta lagi er ég aö gefa út í Bandaríkjunum tvö rit eftir Fred- erich Hayek í ritsafni hans sem er í 22 bindum. Ég er aðstoðarritstjóri alls ritsafnsins og sé um að gefa út þessi tvö og þetta er ærið verk. í öðru lagi er ég líka að vinna að bók á ís- lensku sem heitir Fimm frumhugtök stjórnmálanna. Og ég er samkennur- um mínum í félagsvísindadeild ákaf- lega þakklátur fyrir að hafa gefið mér tóm til þess að einbeita mér að samningu þessara rita með því að leysa mig undan kennsluskyldu á þessu misseri." - En heldurðu að þú fáir frið svona áfram? „Ég er hræddur um að svo verði ekki en á hinn bóginn hef ég ánægju af kennslu og ég mun gegna þeirri skyldu minni eins og ég get. Ég kenni í vetur námskeiö í viðskiptadeild og býö upp á valnámskeið í heimspeki- deild sem er kennt þegar næg þátt- taka er.“ Hannes hefur kennt í tvö ár í heim- speki- og viðskiptadeild en hefur hins vegar ekki kennt í félagsvísindadeild áður. Hann lauk doktorsprófi 1985 og hóf störf í háskólanum í ársbyrjun 1986. Áður hafði hann hins vegar kennt í Menntaskólanum í Reykjavík í mörg ár. - Hvernig verður samstarf þitt í vetur við kennara og starfslið félags- vísindadeildar? „Ég á ekki von á öðru en aö það verði gott. Ég hef engan áhuga á því að troða illsakir við menn og ég ætla ekki að erfa við þá þó þeir hafi orðið reiðir í sumar og látið sér um munn fara ógætileg orð. - Það er. eins og gengur. Ég held að þaö fari best á því að ég reyni að gegna embættis- skyldum mínum af alúð. Ég held aö hér séu svo mörg forvitnileg rann- sóknarefni, bæði í íslenskum stjórn- málum og almennum stjórnmála- fræðum, að mér verði ekki vant verkefna.“ - Stundum hefur verið gagnrýnt að ekki skuli koma meira frá Háskól- anum af vísindalegum rannsóknum. Ætlar þú að sitja mikið við skríftir? „Ég er nýbúinn að gefa út bók sem heitir Markaðsöfl og miðstýring og er hugsað hvort tveggja sem kennslurit fyrir Háskóla íslands og aðra framhaldsskóla og líka sem rit um efnahagsmál og stjórnmál fyrir leikmenn. Ég reyni í þessu riti að skrifa eins auðskiljanlegan og læsi- legan texta og hægt er því að ég tel að Háskóli íslands eigi ekki einungis að vera háskóli fyrir stúdenta sem þar sitja í tíma heldur einnig fyrir alla þjóðina. Hann á að vera vett- vangur fyrir lifandi umræðu um þau mál sem okkur varöar mest. Hann á að taka þátt í því að ávaxta þjóðararf- inn. Hann á að leggja rækt við þau verðmæti sem hafa haldið þjóðinni saman og gefið henni gildi og tilvist í þau 1100 ár sem hún hefur verið til. Ég reyni t.d. í þessari bók að nota helstu nýmæli í vísindum okkar daga til aö skilja betur og greina nákvæm- ar íslenskan efnahags- og stjórn- málaveruleika." - EnefégvíkafturaðFélagsvísinda- deildinni. Verður þú þar refur í hænsnakofa? „Ég held að það sé öllum til gagns að fjölbreytni í skoðunum sé til í Háskólanum. Ég held aö allir hljóti að hafa gaman af rökræðum. Auðvit- að verða þær að vera á forsendum vísindanna sjálfra og menn verða að lúta lágmarkskröfum um vísinda- lega hæfni. Þeir þurfa að hafa tamið sér eðlilegar reglur vísindanna. En í mannvísindunum er miklu mikil- vægara en annars staðar að tryggja þessa fjölbreytni í skoðunum. I bók minni, Markaðsöfl og miðstýring, gagnrýni ég hiklaust ýmsa samkenn- ara mína við Háskóla íslands þegar mér finnst sem þeim hafi orðiö á eitt- hvaö í vísindalegum rannsóknum, verið með hæpnar fullyrðingar eða þvíumlíkt. En það er ekki persónuleg gagnrýni. Það er gagnrýni sem er til þess ætluð að efla hér rökræðu og þoka okkur nær einhveijum sann- leika því að.til þess þurfum við á lif- andi gagnrýni að halda." - Er það eitthvað í heildarbyggingu félagsvísinda? „Það er alveg ljóst að ég ætla ekki að breyta neinu í kennslu eða skoö- unum þessara manna. Ég vona að vísu að þeir hlusti á mig. Ég hyggst hins vegar kenna sjálfur eftir eðlileg- um vísindalegum reglum og ég skammast mín ekkert fyrir að láta í ljós mínar skoðanir en ég hyggst gera það heiðarlega." - Nú var stundum talað um þig sem skjólstæðing Birgis ísleifs. Hvað verður um þig þegar nýr maður er kominn í embættið? „Ég vona að þessi menntamálaráð- herra verði sami skörungurinn í starfi eins og Birgir ísleifur Gunn- arsson og hann undirbúi embættisat- hafnir sínar eins vandlega. Ég veit það að Birgir ísleifur beitti veitinga- valdi sínu ákaflega vandlega, hann veitti ekki embætti eða stöður eftir pólitískum skoðunum. T.d. veitti hann Einari Laxness stöðu fram- kvæmdastjóra menntamálaráðs en hann er alþýðubandalagsmaður. Hann veitti Sjöfn Sigurbjörnsdóttur skólastjórastöðu en hún er alþýðu- flokksmanhskja. Hann veitti mér þessa lektorsstöðu en ég er flokks- bundinn í Sjálfstæðisflokknum, þannig að það var allur gangur á því. Ég vona aö Svavar Gestsson fari aö fordæmi Birgis ísleifs og ég hef sjálfur ekki nema gott eitt af Svavari að segja.“ -SMJ Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.