Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 1. OKTOBER 1988.
7
Fréttir
Þorsteinn frá Hamri og Tryggvi Ólafsson með bókina fyrir framan sig.
DV-mynd KAE
Fágætlega vönduö bók:
Tvyggvi Ólafsson
myndskreytir Ijóð
Þorsteins frá Hamri
Út er komin hjá Iöunni bók með
14 ljóðum eftir Þorstein frá Hamri
og jafnmörgum litmyndum eftir
Tryggva Ólafsson listmálara, kjör-
gripur hinn mesti.
„Þorsteinn frá Hamri er öndvegis-
skáld okkar tíma. Á þessu ári varð
hann fimmtugur og okkur þótti við
hæfi að gera fallegan grip í tilefni
þess,“ sagði Jón Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Iðunnar.
Til myndskreytinga valdi Tryggvi
Ólafsson ljóð úr flestum bókum Þor-
steins, en þær eru orðnar tíu á þrjá-
tiu árum. Sú fyrsta, í svörtum kufli,
kom út 1958, og sú tíunda, Urðargald-
ur, í fyrra. Myndirnar eru unnar með
htblýöntum („Ég hafði ekki snert
neitt slíkt síðan ég var barn,“ sagði
Tryggvi), síðan litgreindar af óhemju
vandvirkni og prentaöar á handunn-
inn pappír, enda er þetta sannarlega
engin gerviefnabók, klædd egypsku
líni og hlífðarkápu úr japönsku silki.
Prentsmiðjan Oddi sá um gerð bók-
arinnar sem heitir Ljóð og myndir
og verður aðeins gefln út í 120 eintök-
um. Þar af er helmingurinn tölusett-
ur og áritaður af þeim Þorsteini og
Tryggva. -ihh
cNÝja
JBölsturgGrðin
Garðshorni við Fossvogskirkjugarð, simi 16541.
HÚSGAGNA
SÝNING
MIKIÐ
ÚRVAL
OPIÐALLA DAGAKL. 10-19.
STODIN SEM HLUSTHD Eff M!
... 4 TOPPNUM!
Bjarni Ólafur Guðmundsson
ER BEST ÞEKKTUR SEM NÆTURVAKTMAÐUR BYLGJUNNAR.
Hann hefur starfað á Bylgjunni frá upphafi og hefur ótrúlega reynslu af
tónlistarvali sem kemur hlustendum til góða eftir kl. 22 á virkum dögum.
Allir fá eitthvað við sitt hæfi fyrir svefninn hjá Bjarna!
BYL GJAN
Haraldur Gíslason
ER Á VAKTINNI Á LAUGARDAGS- OG SUNNUDAGSMORGNUM.
Hann hefur starfað á Bylgjunni í tæp tvö ár og hefur sýnt að hann kann að
taka púlsinn á hlustendum. Það er enginn svikinn af morgni
með tónlist Haraldar.
989
BYLGJAN