Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
21
móttökudiski hjá Pósti og síma
til aö styrkja sendingamar. Öll
tæknileg atriði voru því leyst áö-
ur en útsendingar hófust og þá
tóku verk íþróttafréttamannanna
við. „Hér koma stundum inn
myndir frá þremur atriðum í
einu. íslensku atriðin eru sér-
pöntuð hingað heim. Kóreskir
sjónvarpsmenn vinna alia kvik-
myndatöku en hafa fengið taekni-
menn víða að. Samband evr-
ópskra sjónvarpsstöðva er með
mikiö tæknilið á leikunum.
Handboltann fáum við ekki í
gegnum sama net og aðrar
íþróttagreinar. Hann er sendur
til Evrópu og síðan hingað þar
sem við getum ekki tekið við
beint frá Kóreu. Handknattleik-
urinn er hliðargrein á ólympíu-
leikunum þó íslgndingar vilji
ekki viöurkenna það,“ segir
Bjarni. „ Aðalgreinarnar eru
þessar hefðbundnu greinar eins
og sund, frjálsar og fimleikar.
Ólympíuleikamir era orðnir
kraöak. Allir viija vera með og
það fer vaxandi og versnandi. Ég
tel að margar íþróttagreinar eigi
ekki heima þarna svo sem ýmsar
greinar í fangbrögðum,“ segir
Bjarni. Kóreumenn hafa kostað
miklu til leikanna og hafa undir-
búið þá í sjö ár. „Alþjóða ólymp-
íunefndin ákvað 30. september
árið 1981 að Kóreumenn fengju
leikana núna og næst verða þeir
haldnir í Barcelona. Þegar er far-
ið að undirbúa þá. Kóreumenn
hafa byggt upp mikil mannvirki
og þegar leikunum er lokið verö-
ur ólympíuþorpinu breytt í íbúðir
fyrir íbúa þarna. Einu ólympíu-
leikamir sem skilað hafa hagnaði
voru þeir sem haldnir voru í Los
Angeles," segir Bjami og er
greinilega með aUt á hreinu.
Ben Johnson
eftirminnilegastur
Sjálfur hefur hann aldrei verið
á ólympíuleikum og segist ekki
hafa áhuga á því. „Eg myndi
áreiðanlega velja mér einhvem
annan stað til að fara í frí. Ég er
orðinn leiður á ólympíuleikun-
um,“ viðurkennir Bjami. Leik-
unum lýkur í fyrramálið en þar
með er ekki vinnu Bjama og fé-
laga lokið. Þeir þurfa að fara yfir
efnið og vega og meta hvað þarf
að geyma. „Best er að gera það
ekki alveg strax því að ennþá er
allt jafnmerkilegt,“ segir hann.
Bjarni segir að ekki verði jafnoft
sýnt frá opnunaratriði þessara
leika og þeirra í Los Angeles.
„Það var alveg sérstök sýning í
anda amerískra söngleikja. Eng-
inn kemst nálægt Bandaríkja-
mönnum í því enda kostuðu þeir
miklu til. Þetta var tækni eins og
í bíómyndum á borð við Star
Wars. Kóreumenn vora ekki í
auðveldri aðstöðu eftir þá leika
enleystu opnunaratriðið mjög
vel að mínum dómi. Þeir byggðu
það á eigin sögu og tónlist og því
er ekki hægt aö líkja saman við
hitt. “
Sjálfsagt verður rólegra á
næstu dögum á íþróttadeild sjón-
varpsins en þó eru tveir stórir
leikir framundan í knattspym-
unni í Tyrklandi og A-Berlín. Það
er undankeppni heimsmeistara-
mótsins.
Nú þegar þessari töm er að
ljúka er ekki úr vegi að spyrja
Bjarna hvað sé honum eftir-
minnilegast frá þessum leikum.
„Mál Ben Johnson er afar leiðin-
legt mál en jafnframt það eftir-
minnilegasta," svarar hann.
„Mér brá illilega. Þetta hefur oft
skeö áður á ólympíuleikum en
þegar um er að ræða mann sem
keppir í hundrað metra hlaupi
þá er það annaö. Þetta era eftir-
sóknarverðustu verðlaun leik-
anna sem hann var að vinna.
Þess vegna var þetta heimsfrétt.
Það vakti enga athygli að áður
höfðu tveir búlgarskir lyftinga-
Varmi
BlLASPRAUTUN / BlLARÉTTINGAR
menn verið sendir heim sem
höfðu unnið gullverðlaun. Eng-
inn kippti sér upp við það. í þessu
tilviki er það hlaupakóngur
heimsins sem bregst.
Menn dæmdir
en keppa aftur
Ýmis mál þjá íþróttahreyfmg-
unni era í nokkrum ólestri. Það
er ríkjandi tvískinnungsháttur.
Menn era hankaðir og dæmdir
en síðan era þeir náðaðir og
keppa aftur mjög fljótlega. Ég
reikna með að Ben Johnson veröi
meðhöndlaður eins og Vésteinn
Hafsteinsson, íslendingurinn
sem keppti á ólympíuleikunum í
Los Angeles. Hann var dæmdur
í ævilangt keppnisbann fyrir
lyfjanotkun en keppir núna í Seo-
ul. Mér finnst að keppendur ættu
allir að gangast undir lyfjapróf
áður en haldið er á leikana og
koma með pappíra upp á það. Ég
veit að Bandaríkjamenn og Bret-
argeraþað."
Þó undarlegt megi teljast hefur
Bjarni ekki fylgst með handbolta-
leikjum okkar. „Við notuðum þá
klukkutíma til að vinna annað
efni. Það höfðum við tilbúið til
sýninga þegar handboltanum var
lokiö,“segirhann.
„Bara Bjarni Fel.“
Ætia mætti að Bjarni væri yfir-
maður íþróttadeildarinnar eftir
tuttugu ára reynslu en svo er
ekki. „Ég er bara Bjarni Fel.,“
segir hann. „Ég hef engan áhuga
á að vera pappírstígri,“ bætir
hann við.
Bjarni segir að næturnar séu
fljótar að líða. „Maður gleymir
sér yfir þessu,“ segir hann. „Við
eram eins og fjölskylda og fórum
nánast ekki úr þessu búri.“
Á annan áratug var Bjarni Fel.
í vinnunni frá morgni til kvölds
en nú segist hann vera lausari
við eftir breytinguna. Hann sá
einn um íþróttir í Sjónvarpinu á
meðan tveir menn gegndu sama
starfi hjá útvarpinu. „íþróttir
vora hornreka um langan tíma
hér,“ segir hann. „Maður þurfti
að vera nógu harður að gera hlut-
ina sjálfur því að þetta mátti ekk-
ert Kosta. Þegar heimsmeistara-
mótið í kriattspyrnu var í Mexíkó
var ég hér einn og það gekk ágæt-
lega þó sýnt væri frá þrjátíu leikj-
um. Mestu vandræði mín voru
að halda utan um dagskrána
þannig að það væri ekki búiö að
eyðileggja beinu sendingamar
með því að setja annað efni á
dagskrá. Það kom hvað eftir ann-
að fyrir þegar byrja átti að senda
út á kvöldin að ýmsar dagskrár-
deildir vora búnar að troða inn
dagskrá sem náði langt inn í bein-
ar sendingar af fótboltanum.
Mikill tími fór í að halda utan um
beinu sendingamar frá HM sem
ég held að hafi verið vinsælla efni
en ólympíuleikarnir. Það er
heppni að ólympíuleikamir eru á
þessum tíma því að annars hefði
þetta verið heilmikið vandamál."
Áhugi á íþróttum er mun meiri
hér á landi en í öðrum löndum.
Bjarni segist vita til þess að gaml-
ar konur hafi horft með áhuga á
knattspyrnuleikina frá HM og
segist búast við að sama sé upp á
teningnum nú. „Eldra fólk hefur
gaman af íþróttum," segir hann.
Andinn hefur breyst
Það styttist í að Bjami þurfi að
setjast í ólympíubúrið og hann
er því spurður hvort hann sé orð-
inn leiður á starfmu. „Það kemur
stundum leiði yfir mig. Þegar
maður lítur til baka saknar mað-
ur margra góðra samstarfs-
manna. Það var gaman að vinna
með þeim mönnum sem vora
brautryðjendur hér. Því miður
hefur andinn breyst hér innan-
húss við þessar breytingar. Menn
pukra hver í sínu homi enda
kannski eðlilegt því að margir
vinna að ólíkum verkum. Það
mætti þó vera fleira starfsfólk.
Mér fmnst of mikið sparað í
mannahaldi."
Bjami segist vera óánægður
með breytinguna á íþróttadeild-
inni en er eitthvað hæft í þeim
sögusögnum að hann sé að hætta
hjá Sjónvarpinu? „Ég vil ekkert
úttala mig um það. Þaö getur
komið upp á að ég haétti en ekk-
ert er ákveðið," segir hann.
- Efþúhættirhérhjásjón-
varpinu mundirðu þá halda
áfram í svipuðu starfi?
„Ég myndi kannski vilja söðla
um, enda kominn á sextugsaldur.
Ég hefði samt ekkert á móti því
að hafa ensku knattspyrnuna
áfram,“ svaraði Bjarm Fel. og
menn verða síðan að geta í eyð-
umar.
-ELA
AUÐBREKKU 14, KÓPAV., SÍMI 44250