Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 37
ÍÁUÖARDÁGUR'í: 'ÖKTÖBER 1988. 6. flokkur: KR-ingar ís- landsmeistarar í bráðabana Það var 6. flokkur KR sem stóð uppi sem sigurvegari í bráða- banakeppni 6. ilokks sem hefur farið fram í sumar I hálfleik 1. deildarleikjanna. Þeir léku til úr- slita gegn KA frá Akureyri sem sigraði í Norðurlandsriölinum. Úrslitaleikurinn fór fram á Fram- veili sl. sunnudag og sigruöu KR-ingar, 4-2, í stórskemmtileg- um bráöabana. Mörk KR gerðu þeir Kristján G. Þorsteinsson, , Edilon Hreinsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Sigurgeir Hö- skuldsson. - Mörk KA skorðuöu Gunnþór Jónsson og Arnar Már Vilhjálmsson. Bæði liðin sýndu frábæra takta. Liðsmenn KA voru þó svolítið óhressir með val á leikstað því þeir litu svo á að FramvöUurinn væri hálfgeröur heimavöllur KR-inga. Þeir vildu samt endilega koma á framfæri hamingjuósk- um til KR-strákanna. Myndir af þessum tveim ágætu liðum verða aðbíðanæstalaugardags. -HH 3. flokkur - A-lið: Fylkisliðið sterkt KR var fremur létt bráð fyrir sterkt Fylkislið í leik liðanna í haustmóti í 3. flokki (A) sl. laugardag. KR-strák- amir böröust vel framan af og var staðan í hálfleik 1-0 fyrir Fylki. Það var Finnur Kolbeinsson sem skoraði beint úr aukaspyrnu af um 20 metra færi með þrumuskoti. í byrjun síðari hálfleiks kom Kristinn Tómasson Fylki í 2-0 þegar hann vippaði lag- lega yfir markvörð KR-inga. Þriöja markið kom skömmu seinna og að þessu sinni var það drengjalandsliðs- maðurinn Gunnar Pétursson sem skoraöi með glæsilegu langskoti. Sig- urður Örn Jónsson náði aö minnka muninn fyrir KR í 3-1 með laglegu marki. 4. mark Fylkis gerði síðan Kristinn Tómasson úr vítaspymu. Ljóst er að það stefnir í hreinan úrslitaleik milli Fram og Fylkis sunnudaginn 9. okt., kl. 14.40, á gervi- grasinu. -HH - Kalli minn, þjálfarinn segir að þú hugsir með sprengikrafti. Það er þvi meiningin að láta þig spila sem fremsta mann i næsta leik! Hvað segir þú um það? Gústi „Sweeper": - Er það sjálfsmark þegar maður ætlar að gefa á markmanninn en þá er hann bara horfinn úr mark- inu? Ég segi nei!!! 53 Khattspyma unglinga 4. flokkur ÍR sigraði Fram í úrslitaleik haustmótsins í keppni A-liða 1-0. Þessi sigur kom hreint ekki á óvart, því ÍR hefur mjög góöum 4. fl. á að skipa. - Lið ÍR er skipað eftirtöldum leikmönnum: Brynjar Arnarson, Arnar Þ. Jónsson.Jóhann Bragi Fjalldal, Gunnar Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson, Bjarki Stefáns- son, Arnar Þ. Valsson, Kjartan H. Kjartansson fyrirliöi, Kristinn Jóhannsson, Halldór Halldórsson, Helgi Hannesson, Margeir Snæbjörnsson, Þórarinn Guðmundsson, Heimir Andrason, Jóhannes Jóhannesson, og Arnar Þ. Jóhannsson. - Þjálfari ÍR-liðsins er Kristján Guðmundsson. Lengst til hægri er Björn Gunnarsson, varaformaður knattspyrnudeildar ÍR. DV-mynd HH Haustmót 4. fl. (A) - úrslitaleikur: Baráttuglaðir ÍR-ingar sigruðu Framara - Helgi Hannesson skoraði sigurmarkið Þaö voru IR-ingar sem stóðu uppi sem sigurvegarar í haustmóti 4. fl. A-liða. Þeir léku til úrslita gegn Fram sl. laugardag og fór leikurinn fram á gervigrasinu. IR-ingar sigruðu þar Framara meö einu marki gegn engu og voru það réttlát úrslit. Sigurmark- ið gerði hinn knái framherji ÍR-liös- ins, Helgi Hannesson, á 10. mín. fyrri hálfleiks. ÍR-liðið sló Framara alveg út aflaginu meö kröftugum leik. Þessi úrslit koma þó svo sannarlega ekki á óvart, því strákunum hefur gengið mjög vel í sumar. Þeir kom- ust, eins og Framarar, í úrslit í ís- landsmótinu og stóðu sig þar með mikilli prýði. Þeir lentu þar í 3.-4. sæti ásamt Þór frá Akureyri. í úrslitaleiknum gegn Fram voru þeir alltaf fyrri á boltann og voru sóknir þeirra mun hættulegri. ÍR- liðiö er mjög heilsteypt og voru strákarnir greinilega mjög ákveðnir í að sigra í þessum leik. Gunnar Gunnarsson var eins og klettur í vörninni ásamt Arnari Þ. Jónssyni. Á miðjunni voru þeir Kjartan Kjart- ansson og Arnar Þ. Valsson mjög virkir. í framlínunni bar mikið á Helga Hannessyni og sýndi hann okkur rækilega aö stærðin er ekki fyrir öllu í knattspyrnu því hann er með minnstu mönnum liðsins. Ann- ars er ÍR-liðiö skipað jöfnum og góð- um strákum. Framarar sýndu ekki sitt rétta and- lit í þessum leik því að þeir geta miklu meira. En kröftugur leikur andstæöinganna kom þeim í opna skjöldu aö þessu sinni. Liöiö er einn- ig skipað jöfnum strákum en þó bar mest á þeim Arnari Arnarssyni og ívari Pálssyni ásamt Sigurgeir Kristjánssyni. Þetta var leikur tveggja góðra liða en sigurvilji ÍR-inganna var meiri og því fór sem fór. Góður dómari leiks- ins var Þórður Theódórsson. -HH 3. flokkur - A-lið: Valur-Þróttur3-1 Þetta er án efa einn besti leikur 3. flokks Þróttar í þessu haustmóti. Staðan var 1-0 fyrir Val í hálfleik og gerði Gísli Einarsson markið. Þrótt- arar náðu að jafna snemma í síðari hálfleik og virtust til alls líklegir. Valsmenn náðu þó aö hrista þá af sér með tveim mörkum þeirra Ingvars Ólafssonar og Páls Þórólfssonm'. Undir lokin áttu Valsmenn allgóð færi sem mistókst að nýta. -HH ; Valur og Fram léku til úrslita i haustmóti 5. flokks. Valsmenn unnu, 3-0, og voru öll mörkin skoruð i B-leiknum sem fór fram' á undan. í leik A-liöa Vals og Fram var ekkert mark skorað og unnu þvi Valsmenn 3-0, samanlagt. Myndin er frá leik A-liðanna og eru Framarar í hörkusókn. Einbeiting hinna ungu leikmanna leynir sér ekki og takið eftir dansinum úm boltann. Hér er ekkert feilspor stigið, eins óg myndin ber með sér - hér passar allt saman. DV-mynd HH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.