Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
23
Fréttir
UiUilwj. ,.“7“ mu
___
Frvmnt
c,»6ilutkin
hvers mánaðar
Tónleikar
aðKlifi
Þu
vilt
ekki
missa
þann
stora
ekki ökuskírteinið heldur!
Hvert sumar er
’margt fólk í sumarleýfi
tekið ölvað við stýrið.
llX™
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands fóru fram í félagsheimilinu Klifi.
DV-mynd Árni E. Albertsson
Ámi E. Albertsson, DV, Ólafsvik:
Sinfóníuhljómsveit íslands var
með tónleika í Félagsheimilinu Klifi
fyrir nokkrum dögum og er þaö í
fyrsta skipti sen) sú ágæta sveit held-
ur tónleika í Ólafsvík. Aösókn var
mjög góö miðað viö aöstæður, en alls
hlýddu um eitt hundrað manns á
tónleikana.
Á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar-
innar voru þrjú verk, „ítalska stúlk-
an í Alsír“ eftir Rossini, „Trompet-
konsert" eftir Hummel og svíta úr
„Carmen" eftir Bizet, í útsetningu
Schedrins. Tónleikamir tókust mjög
vel og þótti leikur Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar njóta sín vel í góöum
hljómburði hússins. Var sveitinni og
stjórnendum hennar, Petri Sakari
frá Finnlandi og Ásgeiri H. Stein-
grímssyni, fagnað vel í lokin og tón-
leikagestir höföu á orði að slíka
heimsókn þyrfti að fá sem oftast.
Það er góð stefna hjá forráðamönn-
um Sinfóníuhljómsveitar íslands að
færa fólki menninguna út á land, því
hætt er við að margir þeirra sem
koma til að hlýða á sveitina í sínu
heimahéraði færu alfarið á mis við
hana að öðrum kosti.
•c
■O
1 i
R$K 5.07
aaM0ff.y|n|n<i
GJALDDASI
.FYRIRSKIL .
A STAÐGREBSLUFE
Launagreiöendum ber að
skila afdreginni staögreiðslu
af launum og reiknuðu endur-
gjaldi mánaðarlega. Ekki
skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd
fyrirfram eðaeftirá.
Gjalddagi skila er 1.
hvers mánaðar en eindagi
þann 15.
Með greiðslu skal fylgja grein-
argerð á sérstöku eyðublaði
„skilagrein". Skilagrein ber að
skila, þó svo að engin stað-
greiðsla hafi verið dregin af í
mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu
vera í heilum krónum.
Allir launagrejðendur og sjálf-
stæðir rekstraraðilar eiga að
hafa fengið eyðublöð fyrir
skilagrein send. Þeir sem ein-
hverra hluta vegna hafa ekki
fengið þau snúi sér til skatt-
stjóra, ríkisskattstjóra, gjald-
heimtna eða innheimtumanna
ríkissjóðs.
-Gerið skil tímanlega
og forðistörtröð sfðuslu dagana.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Vestur-Landeyjar:
Skólanefnd
leitar til
ráðherra
Kennaradeila sú í Vestur-Lan-
deyjum sem DV hefur greint frá
er nú farin að taka á sig sérkenni-
legar myndir. Undanþágunefnd
hefur samþykkt á fundi sínum
að undanþágubeiðni kennarans
réttindalausa, Guðrúnar Bjöms-
dóttur, verði vísað frá. Áðeins
einn sótti á móti henni. Það var
Vigfús Andrésson. Hann hefur
kennararéttindi. Hann hefur þó
ekki fengið stöðuna því skóla-
nefnd hefur vísað málinu til Sva-
vars Gestssonar menntamálaráð-
herra. Mun hann eiga fund með
nefndinni og fræðslustjóra Suð-
urlandsumdæmis á mánudag.
„Umsókninni um undanþágu-
beiðni Guðrúnar var vísað frá í
undanþágunefndinni, þar sem
meðmæh með Vigfúsi höfðu bo-
rist frá fræðslustjóra í millitíð-
inni,“ sagði Sigurður Helgason,
defidarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu, við DV. „ Á fundi skóla-
nefndar og fræðslustjóra með
menntamálaráðherra á mánudag
munu aðilar svo væntanlega
skýra mál sitt. En máhð er nú í
biðstöðu."
Aðeins einn starfsmaöur er nú
við Grunnskóla Vestur-Lan-
deyjahrepps. Það er skólastjór-
inn, Helga Þorsteinsdóttir. Að
sögn Sigurðar reynir hún að
halda uppi kennslu, að svo miklu
leyti sem auðið er, meðan enn er
óráðið í kennarastöðuna eftir-
sóttu.
-JSS