Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Side 17
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988. Hugrún starfaði í sjö ár sem fyrirsæta og var á síðum þekktustu tiskublaðanna meiri eftirtekt en raun ber vitni, svo ekki sé talað um íslenskar stúlkur, þær eru einstakar. Ég veit að margar íslenskar stúlkur gætu náð langt í þessum „bransa“ og þá meina ég langt og það fleiri en ein eða tvær. Þótt tvær stúlkur fari á ári út á vegum Elite eða Ford þá er það ekki neitt. Einnig flnnst mér ekki rétt að henda komungum stúlkum beint í hörkuna í New York. Enda hafa þær oftar en ekki snúið heim áður en langt hefur hð- ið. Þær standast ekki hörkuna eins og hún er í New York. Ef stúlka frá mér færi til starfa í New York yrði ég með henni þar í að minnsta kosti mánuð henni til halds og trausts því þar er „bransinn“ virkilega harður, ekkert gefið eftir. Að heim- an koma íslenskar stúlkur úr svo sérstaklega vemduðu umhverfi að þær þarfnast sérstakrar aðhlynn- ingar í fyrstu, hvert sem þær fara. Reyndar tel ég það mjög heppilegt fyrir íslenskar stúlkur að hefia sinn feril hér í London. Hér er sið- fágaö fólk og tiltölulega líkara því sem gerist heima en á mörgum öðrum stöðum, fyrir utan að hér er töluð enska og fólkið er hjálplegt og þægilegt. Hér er heldur ekki þessi rosalega harka í „bransan- um“, líkt og gerist annars staðar. Hér myndi ég vilja „ala“ upp íslen- skar stúlkur og gera þær að topp- fyrirsætum sem væm alveg með það á hreinu hvaö þær væm að fara út í og fyrir hvað þær stæðu." Fór sjálf aö taka Ijósmyndir Hugrún segir það. mjög erfitt að vera úti á götum að leita að stúlk- um. Það virkar dálítið undarlega þegar kona fylgist náið með og grandskoðar aðra konu og segir hún það stundum vandræðalegt. Segist hún þó hafa gott auga og vera næm á að sjá út hverjir komi til með að myndast vel og hverjir ekki. Hingað til hefur henni ekki skjátlast í þeim efnum. „Það hefur komið fyrir að fólkinu á umboðs- skrifstofunum hefur ekkert litist svo mjög á viðkomandi stúlku en þegar myndimar koma í ljós breyt- ist á þeim upplitiö. Þá nýt ég mín. Eitt sinn fékk ég ljósmyndara til að taka myndir af fallegri stúlku sem ég hafði uppgötvað. En mynd- imar komu hræðilega illa út og varð ég heldur vonsvikin. Ég sá þó heilmikið við stúlkuna og var alltaf viss um að hún myndi myndast vel. Því tók ég fram myndavélina og prófaði sjálf.“ Þar með hófst fer- ill Hugrúnar sem ljósmyndara. „Myndimar komu feiknavel út og varð ég að vonum himinlifandi. Stúlkan reyndist hörkufyrirsæta og ég fékk mikið hrós fyrir mynda- tökuna. Síðan hef ég verið haldin mikilli ljósmyndadellu og tek orðið mikið af prufumyndum af stúlkum fyrir Premier, sem og aðrar um- boðsskrifstofur." Myndimar, sem Hugrún hefur tekið, bera sannar- lega með sér fagmannlegt og list- rænt yfirbragð. Undirrituð fékk líka að kynnast því af eigin raun að hún virðist alveg vita hvaö hún er að gera þegar hún stillir fólki upp og lætur því líða vel fyrir fram- an myndavélina. Enda hefur hún verið hvött til að fást við stærri verkefni á þessu sviði. En Hugrún vill taka það rólega og fikra sig áfram áður en hún ræðst út í viða- meiri myndatökur. Enn er hún að ná tökum á tæknilegri hlið mál- anna og hefur notið dyggrar aö- stoðar Hilmars bróður síns sem er tískuljósmyndari í London. „Það væri nú hálffyndið ef ég endaði sem ljósmyndari - því ljósmyndarinn er alltaf leiðinlegi gæinn, þessi sem fer í taugarnar á stelpunum. En það er aldrei að vita. Mér finnst þetta mjög gaman og ætla ég bara að þróa mig áfram á þessari braut í rólegheitum. Hver einasta fyrir- sæta spyr sjálfa sig: Hvað kem ég til með að gera eftir að ég hætti að sitja fyrir? Ekkert jafnast á við móðurhlutverkið Núna nýt ég mín til fulls í móður- hlutverkinu og því sem ég er að fást við. Eftir mörg ár í þessari hörku sem fyrirsætustarfinu fylgir finnst mér móðurhlutverkið vera algjör draumur. Það jafnast ekkert á við að fylgjast með þessum ein- staklingi vaxa og þroskast. Ef ég vildi gæti ég létt mig um nokkur kíló og hafið aftur fyrirsætustörf. En því fylgja ferðalög og óregluleg- ur vinnutími og er ég ekki tilbúin í slíkt næstu árin meðan Olivia er að alast upp. Ég vil vera sem mest með henni enda er hún það sem skiptir mig mestu máli. Vegna þessa hentaði ljósmyndunin'mér betur.“ ... ef ég létti mig um nokk- ur kíló, hugsaði blaðamaðurinn og reyndi að kílfia eftir einhvetju aukakílóinu á stúlkunni. „Jú, stelpumar verða að vera svo þræl- grannar. Þaö er ekkert grín að vera kannski gert freistandi tilboð en verða svo að víkja vegna þess að stúlkan við hliðina á þér passaði betur í fótin en þú. Hvert kíló getur skiptir sköpum. Það er ekkert auð- velt að koma 15-16 ára stelpum í skilning um þetta. Þær eru auðvit- að grannar og kannski taldar of grannar af mæörum sínum en svo þykja þær of þungar þegar þær ætla að gerast fyrirsætur. Það er erfitt að þurfa að segja unglings- stelpum að hætta að borða sælgæti og beina að þeim kannski bara sal- ati. Svona verður það að vera.“ - Eftir hveiju öðru er sóst í fari fyrirsæta? „Það er mjög misjafnt og fer oft eftir umboðsskrifstofum. Hver umboðsskrifstofa hefur gjarnan ákveðinn stíl; sækist eftir vissum „týpum“ af stúlkum. Hjá Premier er sóst eftir ungum, frísklegum stúlkum. Þær era náttúruböm og oft dálítið sérstakar - alls ekki bara einhveijar fegurðardrottningar heldur stúlkur sem eru fallegar vegna sérkenna sinna. Misjafnt hvernig fólk myndast Annars er mjög misjafnt hvernig fólk myndast. Stúlka, sem virkar ósköp venjuleg og lítt spennandi, getur orðið ómótstæðileg á mynd- um, án þess að hún sé kafmáluð eða henni breytt. Bara með réttum uppstillingum, svipbrigðum og öðru er hægt að fá fram ótrúleg- ustu hluti. Svo getur algjör fegurð- ardrottning myndast illa. Reyndar er það svo, eins og ég sagði áðan, að margt annað gerir stúlku að góðri fyrirsætu en fallegt andlit og góður vöxtur. Persónan sjálf er númer eitt. Það er til nóg af gull- fallegum andlitum en á myndum verða mörg þeirra lítt spennandi. Það vantar raunverulegan glampa í augun. Því reyni ég að fá þær stúlkur, sem ég er að mynda, til aö gefa af sjálfum sér við myndatök- una. Þetta eru góðár stúlkur sem ég hef unnið með, því reyni ég að láta þær hugsa um það að þær eru _ líka fallegar að innan. Þannig næst fram glampinn í augun og stúlkan myndast betur á allan hátt. Það getur verið mjög erfitt aö byija og venjast því að láta mynda sig. Ljós- myndarinn eða einhveijir aðrir eru þeir sem ráða því hvemig maöur á að lita út og í byrjun þýðir ekkert að segja nei við því. Ef fyrirsætum- ar eru þijóskar og vilja strax bara gera ákveðna hluti og annað ekki er alveg eins gott fyrir þær að snúa sér að einhveiju öðru. En þá er mikilvægt að geta haldið jafnvægi enda eru þaö sterkustu persónu- leikarnir sem komast í gegnum þetta og haldast eitthvað í þessu starfi. Ef einhver veikur punktur er á þér færðu ekki tækifæri. Þú verður þá að fara heim og bæta þig og koma kannski aftur seinna.“ Og þar með er blaðamaðurinn dreginn í bíltúr. Ætlunin er að líta inn á umboðsskrifstofumar og sjá hvemig lífið gengur fyrir sig þar. ... alveg eins og í bíómyndunum sifia þær þama, ungar, óöruggar stúlkur, frammi á gangi með möpp- una í höndunum og bíða þess aö vera kallaðar inn í viötal. Inni fyrir er andrúmsloftiö rafmagnað: fyrir- sætur að koma og fara og hver og einn uppveðraður við minnstu eft- irtekt sem hann fær. Myndir skoð- aðar fram og til baka og allir ægi- lega elskulegir að reyna að ota sín- um tota. „Þetta er það sem þaö snýst um,“ segir Hugrún... Viðtal: Rósa Guðbjartsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.