Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988. Vökulög sett á Stefán Valgeirs Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra varð frægur fyrir að saga f puttann fyrir nokkrum árum. Ýmsir spekúlantar segja þess vegna að þetta sigurmerki sé ekki alveg ekta, það vanti svolítið upp á það. Sefur einu sinni í viku Stefán Valgeirsson, stórbóndinn frá Auö- brekku í Hörgárdal, „er hann“ í íslenskum stjórnmálum þessa dagana. Heldur brá fréttamönnum þó í brún þegar hann sagöist ekki mega vera aö því aö tala viö þá á dögunum vegna þess að hann þyrfti aö fara heim aö sofa. „Þaö er ágætt aö sofa einu sinni í viku," sagöi Stefán. Vinstri menn í Háskólanum eru þegar farn- ir að kalla Stefán vökustaur eftir þessi orö hans. Telja þeir aö það þurfi aö setja bráöa- birgðalög, vökulög, á Stefán hiö snarasta. Það hafi gleymst í stjórnarsáttmálanum. Eitt er vist aö Stefán á eftir að vaka yfir fjársjóði ríkisstjórnarinnar sem honum er trúað fyrir. Löggan stöðvaði Ólaf Lögreglan stöðvaði Ólaf Ragnar Grímsson þegar hann ók heim til Steingríms Her- mannssonar eina nóttina í stjórnarmynd- unarviðræðunum. Geröi löggan athuga- semd viö annað afturljósiö á bíl Ólafs. Ýmsir segja að það sé ekkert skrítiö. Ólaf- ur hafi nefnilega ekiö með vinstra stefnu- ljósið á allan tímann á leiö sinni til Stein- gríms og neitað að gefa stefnuljós til hægri. Ég er höfuðaridstæð- ingur kommúnisma á Islandi „Ég er höfuöandstæöingur kommúnisma á Íslandí," var haft eftir Albert Guðmunds- syni í DV þegar ljóst var aö Alþýðubanda- lagið neitaöi aö hafa Borgaraflokkinn meö í ríkisstjórninni. Eftir þessi fleygu orö Alberts er strax far- ið að tala um það í poppheiminum aö hann vinni digurbarkakeppnina í ár og veröi út- nefndur digurbarki ársins. Leigubílstjórar í próf Fjölmiðlar sögöu okkar frá þvi í vikunni aö íslenskir leigubílstjórar veröi að fara í sérstakt próf til aö fá atvinnuleyfi í framtíð- inni. Einkunnir ráöa því svo í hvaöa for- gangsröð um vinnu menn lenda. Athygli vekur aö leggja á mikla áherslu á hjálp í viölögum og ensku á námskeiði bíl- stjóranna sem prófaö verður úr. Ekki áttuöu menn sig strax en fundu fljót- lega út aö þetta væri námsefni fyrir aö- faranótt sunnudagsins. Farþegarnir væru þá nefnilega nær dauöa en lífi í aftursætinu og töluðu tómum tungum í ölæðinu. Svo veröur ágætt aö sjá merkin í rúð- unni. Annað er ijósaskoöun, hitt er gáfna- ljósaskoöun. Minnareyktog minna drukkið íslensku þjóöinni er greinilega að fara aftur. Nú berast þær fréttir frá ÁTVR að minna hafi verið reykt og minna drukkiö þaö sem af er þessu ári. Svo eru hagspekingar þjóðarinnar leit- andi aö skýringu á auknum yfirdrætti ríkis- sjóðs þjá Seölabanka. Léttmeti á laugardegi Jón G. Hauksson Risablómvöndur í búningsklefa íslenska stuöningsmannaliðið í Seoul sendi risastóran blómvönd í búningsklefa íslenska landsliösins fyrir leikinn gegn Sov- étríkjunum. Vendinum fylgdu baráttu- kveðjur um aö liðið gerði sitt besta og aö- eins miklu betur en það. Leikurinn tapaöist síöan með þrettán marka mun. Nú segja menn aö Jón Hjaltalín og ís- lenska landshðiö ætli að auglýsa stíft fyrir landsleiki: blóm og kransar afþakkaðir. Ben beitti bolabragði Ólympíuleikarnir í Seoul hafa nánast ekki snúist um annað en Ben Johnson frá Kanada og bolabragðefni hans í 100 metra hlaupinu. Þær sögur berast vestur frá Kanada aö Ben hafi ekki misst eins mikið í auglýsinga- tekjum og menn héldu í fyrstu. Hann eigi mikla möguleika á aö auglýsa fyrir lyijafyr- irtækin. Eins gæti hann skrifað formálann aö nýju lyfjabókinni íslensku. Hann getur haft drjúgar tekjur þar. Huldufólk Stefáns Nú er komið á daginn hvar huldufólkið hans Stefáns Valgeirssonar er aö finna. Það kom í ljós þegar DV sagöi í stórskemmti- legri frásögn að huldufólk væri að mót- mæla á Ólafsfirði og þaö væri ástæðan fyr- ir óáraninni þar. Rætt er nú um manna á milli aö þetta hafi verið huldufólkiö hans Stefáns að mót- mæla því að komast ekki í ríkisstjóm. Annars væri gaman aö hafa þá Albert Guðmundsson og Stefán Valgeirsson saman í ríkisstjórn. Annar er vinur htla mannsins og hinn vinur huldumannsins. Fróðlegir tónleikar Tónleikar geta verið misgóöir. í vikunni sagði tónlistargagnrýnandi eins dagblaös- ins aö viðkomandi tónleikar hafi veriö mjög fróðlegir. Það ber öllum saman um að þetta hafi verið háskólatónleikar. Samtök sparifjáreigenda Stofnuö hafa verið samtök sparifjáreig- enda sem hafa þaö aö aðalmarkmiöi aö veija spariíjáreigendur fyrir stjórnmála- mönnum, aö því er samtökin segja. Oft er talað um myrkfælni hjá fólki, loft- hræöslu og ýmislegt annað sem vekur ótta á meðal fólks. En þetta nýjasta, sijórn- • málamannahræöslu, hafa fáir heyrt um áöur. Raunar hlýtur að vera hægt aö taka eitt- hvaö viö þessu. Vitað er aö drykkjumenn tóku gjarnan efnið antabus hér áöur. Spari- fjáreigendur hljóta því að taka antibolsa viö Ölafi Ragnari. ERÞAÐ1EÐAXEÐA2 A Meðal skákmanna sem keppa á heimsbikarmóti Stöðvar 2 erGyulaSax.Hann er 1: Tékkneskur X: Ungverskur 2: Hollenskur B Fomvinur okkar, Boris Spassky, tekur einnig þátt í þessu mótiogkeppirfyrir 1: Sviss X: V-Þýskaland 2: Frakkland C í eftirminnilegum leik íslendinga og Júgóslava (19:19) í handknattleik á ÓL dæmdu „skrýtnir“ dómarar frá 1: Noregi X: Hollandi 2: Svíþjóð D SABENA heitir eitt afevrópsku flugfélögunum og starfar í 1: Luxemburg X: Hoflandi 2: Belgíu E Leikmenn í 1. defld nýafstaðins íslandsmóts í knattspymu kusu besta leikmanninn 1: Sigurjón Kristjánsson, Val X: Amflót Davíðsson, Fram 2: Guðmund Steinsson, Fram 22 F erbifreiöategundsemerframleiddá 1: Spáni X: Portúgal 2: Ítalíu G Bandaríkjamaðurinn Matt Biondi var yfirburðamaður í sundi á ÓL. Hann vann sjö verðlaun og setti 1: Eittheimsmet X: Tvöheimsmet 2: Þrjúheimsmet H a Þettaermerkifyrirtækisins 1: Metro PQ) X: Kassagerðar Reykjavíkur v 2: Umbúðsmiðstöðvarinnar r - Sendandl 22 Heimili Réttsvar: A I. 1 B IZH C 1. — J D □ 'E □ f D G □* H □ Hér eru átta spurningar og hverri þeirra fylgja þrír mögu- leikar á réttu svari. Þó er aðeins eitt svar rétt við hverri spurn- ingu. Skráið réttar lausnir og sendið okkur þær á svarseðlin- um. Skilafrestur er 10 dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veit- um þrenn verðlaun, öll frá póst- versluninni Primu í Hafhar-' firði. Þau eru: 1. Fjölskylduteppi að verðmæti kr. 5.430,- 2. Fjölskyldutrimmtæki að verðmætikr. 2.750,- 3. Skærasett að verðmæti 1.560,- í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en nýjar spurningar koma í næsta helgarblaði. Merkið umslagið 1 eða X eða 2, c/o DV, pósthólf 5380,125 Reykjavík. Vinningshafar fyrir 1 eða X eða 2 í tuttugustu getraun reyndust vera: Ásta Valgerður Skúladótt- ir, Völvufelli 48,111 Reykjavík (hitateppi); Ragnheiður Elías- dóttir, Safamýri 11,108 Reykja- vík (trimmtæki); Leifur Eyjólfs- son, Gauksrima 11,800 Selfoss (skærasett). Vinningarnir verða sendir heim. Rétt lausn var: 2-X-X-l-l-X- 2-X
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.