Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
Popp
DV
k.d. lang - Shadowland.
bjartari daga. Myndin olii þó engri
varanlegri hugarfarsbreytingu. Ut-
gefendur urðu því að láta sér detta
eitthvað annað í hug. Og síöustu
fimm árin hafa þeir markvisst leit-
að að nýjum stjörnum, ungu fólki
sem gæti verið í fararbroddi út
þessa öld og eitthvað inn í þá
næstu.
Leitin virðist hafa borið árangur
hjá allmörgum. Til dæmis er ný
stórstjama komin fram á sjónar-
sviðið. Randy Travis heitir hann,
28 ára gamall, og er sagður höfða
til mjög breiðs aldurshóps. Allt frá
táningum upp í þá sem ólust upp
með George Jones, Jim Reeves og
Patsy Cline í eyrunum.
Travis hefur sent frá sér þijár
plötur, eina á ári síðan 1986. Tvær
þær fyrstu voru hlaðnar lofi og
margs konar viðurkenningúm. Sú
ekki má vanta í plötusafn unnenda
dreifbýlistónlistarinnar.
Sama má raunar segja um nýja
plötu söngkonunnar k.d. lang frá
Kanada. Shadowland nefnist nýj-
asta plata hennar, tólf laga og af-
skaplega þægileg áheymar. k.d.
lang leikur svipaðan leik og Travis
og velur mestmegnis gamla tónlist
á plötu sína. Við upptökustjórnina
er síðan gamalreyndur refur í
dreifbýlisheimum, Owen Bradley.
Hann uppgötvaði til dæmis Patsy
Cline á sínum tíma og vann mikið
með Marty Robbins, Jim Reeves,
Eddy Arnold og fleirum. Bradley
hafði að mestu leyti sest í helgan
stein þegar honum var boðið að
taka k.d. lang að sér. Hann hafði
meira að segja orðið sér úti um
vægt hjartaáfall. Skemmst er frá
því að segja að sá gamli hresstist
um rokks og rokkabillys. Nýjasta
platan kom út í sumar og heitir
Buenas Noches From a Lonely Ro-
om. Þar sýnir Yoakam að hann á
sér rólyndislega og yfirvegaða hlið.
Gagnstætt þeim sem fyrr eru nefnd
heldur hann sig aðallega við frums-
amin lög. En rétt svona til að sýna
getuna grípur hann einnig til verka
gömlu meistaranna og flytur fáein
lög frá sjötta áratugnum og eitt frá
þeim áttunda.
Að minu mati er Dwight Yoakam
öUu áheyrilegri þegar hann fæst
við rokk og rokkabilly. Þó er alls
ekki hægt aö afskrifa Buenas Noc-
hes því að vel er tU hennar vandað
í aUa staði.
Hér hafa aðeins veriö nefndar
þijár dreifbýUshetjur sem hafa tek-
ið þátt í að rífa kántrítónUstina upp
úr þeirri lægð sem hún var komin
DwightYoakam-
Buenas Noches
From a Lonely
Room.
Stórsókn nýrra
dreiíbýlisstjama
svo við að heyra í söngkonunni
ungu að hann óð til starfa af end-
urnýjuðum þrótti, henti frá sér pill-
uglösunum og sagði hæfileika k.d.
lang vera sér nægilega lækningu.
Af öllum nýliðunum, sem komið
hafa fram á sjónarsvið dreifbýlis-
tónlistarinnar síöustu fimm árin,
má áreiðanlega sæma Dwight Yo-
akam titlinum mesti töffarinn.
Hann hafði áður reynt fyrir sér í
bandaríska nýbylgjurokkinu en
söðlaði síðan um og sneri sér aö
kántrítónUst.
Dwight Yoakam hefur sent frá sér
þijár plötur. Tvær þær fyrstu voru
firnahressar - reyndar oft á mörk-
Randy Travis - Old 8x10.
í. Aðrir sem láta að sér kveða um
þessar mundir og þykja mjög efni-
legir eru The Judds, Steve Earle,
Sweethearts Of The Rodeo, K.T.
OsUn og Rosie Flores.
í hverju skyldi þessi „nýbylgja"
dreifbýlistónlistarinnar vera fólg-
in? Hvað nýtt hefur þetta unga tón-
Ustarfólk fram að færa sem eldri
Ustamennina skortir? Jú, „nýja“
dreifbýlistónlistin er í raun og veru
afturhvarf til gömlu daganna. Raf-
magnshljóðfærum er að mestu ýtt
til hliðar og fiðlur, harmóníkur,
banjó, mandólín og önnur slík
komin í staðinn.
Kántrítónlist Kenny Rogers,
Dollyar Parton og slíkra er í raun
og veru aðeins popp með svolitlu
kántríívafi. Hljómsveitin Eagles
var til aö mynda talin til flytjenda
dreifbýlistónlistar, að minnsta
kosti fyrstu árin á ferU sínum.
Hreinstefnumenn fagna því unga
fólkinu af öllu hjarta.
Dreifbýlistónlistin eða kántrí
eins og hún er allajafna kölluð er
í sókn í heiminum. Og það eru ekki
gömlu hetjurnar sem slógu í gegn
á sjötta. sjöunda eöa áttunda ára-
tugnum sem eru að sækja í sig veð-
rið. Nú eru mættir til leiks nýir
söngvarar og hljóðfæraleikarar
sem höfða til ungs fólks um tví-
tugt. Fólks sem búið var að gefa
dreifbýlistónlist upp á bátinn sem
staðnað leiðindafvrirbæri handa
miðaldra fólki og þaðan af eldra.
Þegar kvikmyndin Urban Cow-
boy sló í gegn um allan heim árið
1980 töldu margir að nú sæju flytj-
endur dreifbýlistónlistar fram á
virðist og ætla að verða reyndin
með nýjustu plötuna. Hún neitir
Old 8x10 og hefur að geyma marga
þekkta smelli. Platan hefur selst
geysivel og tæpast að ófyrirsynju.
Plötudómar
Ásgeir Tómasson
Randy Travis er einfaldlega góður
söngvari og heföi getað slégiö i gegn
þó svo að hann hefði einbeitt sér
að popptónlist. Platan ber þess öll
merki að til hennar er vandað í
hvívetna. Sem sagt kjörgripur sem
Annað spilar inn í það að ungu
tónlistarmennirnir ná betur til tán-
inga og fólks á þrítugsaldri en
gömlu stjörnurnar. Ástæðan er
einfaldlega útlitið. George Michael
nær betur til unglinga en Peter
Cetera. Einfaldlega vegna þess að
annar er ungur og töff, hinn er
miðaldra og feitur. Það er því ljóst
að sömu lögmál gilda í dreifbýlis-
tónlist og öðrum tegundum dægur-
tónlistar.
Og það eru ekki aðeins Banda-
ríkjamenn sem hafa tekiö nýjum
stjörnum dreifbýlistónlistarinnar
opnum örmum. Randy Travis hef-
ur til að mynda ferðast um allan
heim og haldið hljómleika. Fleiri
og fleiri láta að sér kveöa í Evrópu
og án efa víðar. Á íslandi eru
kántríplötur meira aö segja farnar
að seljast. Ekki með neinum látum
en að sögn fer hópurinn stækkandi.