Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Side 27
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988. 27 Smælki Sæl nú!... Rússamir koma, rússamir koma. Rússneskir popparar em sífellt að færa sig upp á skaftið á Vesturl- öndum og gera sér dælt við stórstjömumar. Þannig er nú David Stewart úr Eurythmics upptekinn við að stjóma upp- tökum á sólóplötu Sovét- mannsins Boris Grebens- hikovs (flott nafn á vinsælda- listana) sem CBS útgáfufyrir- tækið ætlar að gefa út á næsta ári. Tvær þekktar söng- konur koma ennfremur við sögu á þessari plötu, þær Annie Lennox og Chrissie Hynde... Rattie and Hum er nafn á kvikmynd og plötu sem U2 er að setja á markað í Bandarikjunum á næstunni. Myndin fjallar um hljómleika- ferð hl jómsveitarinnar um Bandaríkin og lýsir jafnframt þvi hvernig heimsveldið kem- ur irsku rokkumnum fyrir sjónir... Þegarhanskon- unglega ótukt Prince kom til Lundúna á dögunum beið hans herskari af aðdáendum á flug- vellinum. Prinsinn vildi vera rausnarlegur við pöpulinn og bauð því fjómm úr hópnum að koma með í bíl sinum inn i borgina. Á leiðinni hugðist goðið vera enn rausnarlegra og bauð öllum á næsta McDonalds hamborgarastað en þegar kom að þvi að borga reikninginn kom babb í bátinn því Prinsinn átti ekki eins- eyring með gati i breskri mynt og máttu aðdáendumir borga fyrir sig sjálfir... Það hefur nú verið staðfest að bak við dul nefnið Bunburys á plötunni One Moment in Time em engir aðrir en Bee Gees og Eric Clapton. Lagið sem The Bunburys flytja á plötunni heitir Fight (No Matter How Long) er eftir Gibb bræðurna og þeir syngja bakraddir en Clapton sér um gitarleik og aðalsöngrödd ... Gömlu Stray Cats em byrjaðir annað lif sitt sem hljómsveit og fam- ir að troða upp í Bandaríkjun- um og Kanada. Kettimir fara svo i hljóðver i nóvember næstkomandi og hljóðríta plötu sem Dave Edmunds stjómar upptökum á... So- ulkóngurinn James Browne þótt sleppa vel um daginn þegar hann var dæmdur i um það bil 80 þúsund króna sekt fyrir ólöglegan vopnaburð, mótþróa við handtöku og að hafa eiturlyf í fómm sinum. Browne hefði nefnilega hæg- lega getað fengið tveggja og hálfs árs fangelsi og 150 þús- und króna sekt ef hann hefði verið réttur og sléttur Jón en ekki séra Jón ... bless... Lífið leikur við lisu Minelli: Stærsta óskin er þó enn óuppfyilt Lisa Minelii ásamt eiginmanninum, Mark Gero. Þau hafa veriö gift siöan 1979 en hann er sjö árum yngri en hún. Leikkonan og söngkonan Lisa Min- elli er orðin 42 ára og hefur enn ekki fengið stærstu ósk sína uppfyllta - að verða móðir. Lisa Minelli leikur um þessar mundir í kvikmyndinni Arthur 2 On the Rocks á móti Dudley Moore. í myndinni ættleiðir Minelli lítið barn og því er hún spurö hvort hún hafi aldrei hugsað út í slíka hluti í veruleikanum. „Ég veit það ekki,“ svarar hún. „Þetta er spurning sem ég á erfitt með að svara. Mér leiðist að segja eitthvað sem ég á eftir að sjá eftir síðar.“ En Lisa Minelli hefur ákveðn- ar skoðanir á því hvernig hún vill ala upp barn. „Ég myndi ekki vera með neinar öfgar á því sviði. Hvorki með ofverndun né heldur að ýta því í sviðsljósið. Ætli ég myndi ekki velja svipaða leið og þá er ég fékk. Ég var alltaf annaðhvort með móður minni eða foður (Judy Garland og Vincente Minelli). í stað þess að halda ýmsum hlutum leyndum fyrir mér gerðu þau mér ljóst hvað gæti gerst þegar ég yrði fullorðin," segir Lisa Minelli. „Ég hef þá trú að barn, sem er of- verndaö, geti ekki tekist á við lífið þegar það þarf að standa á eigin fót- um. Ef ég á einhvern tímann eftir að eignast barn mun ég taka það með mér hvert sem ég fer. Sjálft uppeldið er hlutur sem ,ég vil ekki hugsa svo mikiö um. Það nauðsynlegasta er aö gera þaö náttúrlegt og eðlilegt," segir leikkonan. Lisa Minelli fær þó oft að hafa barn hjá sér því hún er oft barnfóstra fyr- ir hálfsystur sína, Lornu Luft. Auk þess er hún guömóðir ellefu barna sem vinir hennar eiga. „Sonur Lornu, Jessie, er mesta augnayndi sem ég hef á ævi minni kynnst,“ seg- ir hún. Lisa Minelli býr nú með þriðja eig- inmanni sínum, hinum 35 ára Mark Gero. Hjónaband þeirra er sagt mjög gott. Fyrsti eiginmaður Lisu Minelli var Ástralinn Peter Allen. Þau voru gift á árunum 1967-72. Annað hjóna- band hennar var með Jack Haley yngri. Hjónaband þeirra stóð yfir á árunum 1974-78. Eftir það átti Lisa Minelli í ástarsamböndum sem heimsathygli vöktu, bæði með Desi Arnaz yngri og Peter Sellers. Núverandi eiginmaður hennar, Mark Gero, er sagður rólegur og yfir- vegaður. Þeir sem þekkja segja að slík manngerð eigi vel við Lisu Miri- elli. Hann er líka eini karlmaðurinn í lífi hennar sem faðir hennar, sem nú er látinn, gat fellt sig við. Mark Gero er listamaöur, býr til nýmóðins skúlptúra úr steini og leir. Sögusagnir hafa verið uppi um að Lisa Minelli hafi setið nakin fyrir hjá honum og Gero hafi búið hana til úr steini. Aö þessu skellihlær Lisa Min- elli. „Nei, almáttugur, það hefur hann ekki gert.“ Þau búa í sex her- bergja íbúð í New York. „Mark fer snemma að vinna á morgnana. Þá dunda ég við aö taka upp bréf og geri.það sem þarf aö gera þegar ég er ekki að vinna. Oft borða ég hádegisverð með vinum mínum. Þegar ég er heima geri ég oft fárán- lega hluti eins og að glápa á sápuó- perur í sjónvarpinu. Eg bý til kvöld- verð þegar Mark kemur heim, við förum síðan á bíó eða horfum á sjón- varp. Þetta virkar óspennandi líf en mér líkar það betur en það líf sem ég lifði áður,“ segir Lisa Minelli. Hún hugsar sjálfsagt til þeirra ára er hún var drottning gleðilifsins í New York. Þá skemmti hún sér fram á hvern morgun með helsta „þotu- liöi“ borgarinnar sem í voru þá hennar bestu vinir. Margir þeirra eru ennþá vinir hennar, eins og tískukóngurinn Halston, að ógleymdri Liz Taylor. Hún hefur sagt skiliö við næturlífiö líkt og Minelli. Eins og flestum er kunnugt áttu báð- ar þessar leikkonur við eiturlyfja- og drykkjuvandamál að stríða. Ég skammast min ekki „Ég hef alltaf talað opinskátt um vandamál mín og skammast mín ekki fyrir þau. Líf mitt hefur orðiö þúsund sinnum betra eftir að ég hætti að drekka og taka inn pillur. Ég lifi fyrir einn dag í einu og það gerir mér auðveldara að hugsá um morgundaginn. Eg á stuöningshóp, bæði Mark og Liz, auk annarra vina. Án þeirra hefði ég aldrei komist í gegnum þetta,“ segir Lisa Minelli. „Liz hefur hjálpað mér mjög mikið. Hún er sterk og hefur reynsluna. Hún hefur verið mér sem fósturmóð- ir og það er ekki bara ég sem hún hefur hjálpað.“ Lisa er þakklát fyrir það líf sem hún á í dag. Hún mundi þó ekki vilja breyta fortíðinni þó hún heföi getað. Það sem ég hef upplifað hefur gefið mér vissa reynslu - gert mig að því sem ég er í dag. Ef maður þarf að ganga í gegnum helvíti til að finna gleði og hamingju þá er það þess virði. Það hef ég orðið að þola. Að lifa með áhyggjur og sjálfsásökun er erfitt fyrir hvern sem er. Enginn ætti að lifa þannig lífi,“ segir Lisa. Hún er unglegri í dag en hún var árið 1982 er hún lék í fyrstu kvik- myndinni um Arthur. Heilsa og aldur „Ég er, eins og margir aðrir, farin aö hugsa um aldurinn. Ég hef svo sem ekki mikið að missa því falleg hef ég aldrei verið. Hins vegar hefur andlit mitt, eins og það er, gefiö mér gott starf. í staö þess að svekkja mig á útlitinu eins og ég gerði hugsa ég nú meira um heilsuna." Lisa gerir leikfimiæfingar á hverj- um morgni og tvisvar í viku er hún í jassballett. Hún býr í New York og það þýðir að hún gengur mikiö. Alla tíð hefur hún barist við aukakílóin og segir hálfuppgefin: „Ég er búin að prófa alla megrunarkúra sem til eru. Stundum hef ég misst fáein kíló en ég hef ekki ennþá fundið þann megrunarkúr sem sýnir áhrif að ráði. Hins vegar hef ég lært að gefast aldrei upp þó móti blási.“ Eitt hefur Lisa þó ekki látið eftir sér - aö hætta að reykja. Hún reykir eins og strompur. „Þetta er minn síð- asti séns,“ segir hún. Lisu er mjög oft líkt við móður sína, Judy Garland sem var fræg leikkona. Hún átti við áfengisvandamál að stríða, líkt og dóttirin. Öfugt við móðurina tókst Lisu að hætta áður en það varð of seint. Milli þess sem Lisu Minelli var kastað á milli fráskildra foreldra sinna segir hún barnæsku sína hafa verið hamingjusama. „Ég fann alltaf að foreldrum mín- um þótti vænt um mig. Ef þau hefðu keypt mig með gjöfum væri ég kannski eyðilögð í dag. Samt ólst ég upp við lúxus, en það var aldrei á kostnað athygli foreldra minna. Ég var alltaf hrædd um að eiga ekki nógu mikla peninga því foreldrar mínir eyddu alltaf um efni fram. Rukkarar voru sífellt á dyrabjöll- unni. Lisa og Mark hafa verið gift síðan 1979. Þau eiga hús í Lake Tahoe í Nevada en þangað fara þau á skíði. Nú leita þau eftir helgarbústað fyrir utan New York. í sumar hefur Lisa eytt miklum tíma í aö auglýsa „Art- hur 2 On the Rocks". Nýlega hefur hún einnig verið á feröalagi með Frank Sinatra og Sammy Davis yngri sem hún hefur þekkt frá barnæsku. Kannski koma þau til Evrópu á næsta ári. Lisa hefur því ekki ein- ungis komið reglu á einkalífið. Frægö hennar blómstrar sem aldrei fyrr. Hún á sér einkunnarorð: Að verða betri listamaður og að verða betri manneskja. . „Mark hefur haft mikil áhrif á mig. Hann er duglegur og ég viröi hann í öllu sem hann gerir. Til að ávinna mér virðingu hans var ég nauðbeygö til aö breyta um lifnaðarhætti." Margt þekkt fólk hefur skrifað bækur um ævi sína. Lisa hefur verið beðin um það mörgum sinnum. „Út- gefendur hafa margoft sagt við mig: Þú getur hjálpað öðrum með því að skrifa bók um sjálfa þig eða móður þína. - i fyrstu trúði ég þessu en nú hef ég séð aö þeir eru bara að snapa eftir slúðri um eins margar persónur og þeir geta náð í. Ég gæti aldrei misnotað vini mína á þann hátt,“ segir Lisa og undirstrikar það sem margir hennar vina hafa sagt: „Lisa er besti vinur sem þú getur átt í kvik- myndaheiminum." Árthur 2 On the Rocks hefur enn ekki verið sýnd hér á landi. í Banda- ríkjunum hafa margir gagnrýnendur hafið Lisu upp til skýja fyrir leik sinn í myndinni en allir eru þeir sammála um að handritið sé hræðilega lélegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.