Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Blaðsíða 45
Stóra höllin er einn helsti ferðamannastaðurinn í Bangkok og þar eru m.a. skrifstofur konungsembættisins.
Hvitar strendur og smaragðs-
grænn sjór laða margan ferðamann-
inn til Thailands á þeim árstíma þeg-
ar lönd í öðrum heimsálfum eru
snævi þakin. En heitar pálmastrend-
umar eru bara skærar umbúðir utan
um allt annað sem landið hefur upp
á að bjóða: sögufrægar hallir, ólgandi
markaði, fomleifar, þorp á stólpum
og skóga þar sem fÚar vinna fyrir
fæði og uppihaldi.
Thailand er fimm sinnum stærra
en ísland og íbúamir em nálægt 50
milljónir. Um það bil einn tíundi
hluti þeirra býr í Bangkok, höfuð-
borginni og jafnframt einu stórborg
landsins. Aðrir búa í Utlum bæjum
og þorpum, enda stunda meira en sjö
af hverjum tíu Thailendingum hrís-
gijónarækt.
Hitabeltisloftslag er í landinu.
Þægilegasti árstíminn til ferðalaga
er frá nóvember og fram í febrúar,
þegar tiltölulega svaUr og þurrir
staðvindar blása frá Kína. Þá er ekki
lengur brennandi heitt í Bangkok,
heldur einungis heitt. Suðvestlægir
staðvindar blása frá maí fram í okt-
óber, með tilheyrandi úrhelhsrign-
ingu.
Konungdómurinn sameinar
Meira en 90 af hundraöi Thailend-
inga eru búddatrúar og setur trúin
og heimspeki hennar mikinn svip á
allt daglegt líf. Tímatal landsmanna
tengist líka upphafi búddismans og
telja þeir frá 543 fyrir Krist.
„Thailand" þýðir „land hinna
frjálsu" og þar hefur einstakUngs-
frelsið mikið gildi. Ólíkt öðmm lönd-
um í Suðaustur-Asíu var Thailand
aldrei nýlenda Evrópuríkis. Viömót
landsmanna gagnvart útlendingum
er því alveg laust við sögulegan
fjandskap. Þeir eru stoltir af fortíð
sinni og konungdóminum, sem gegn-
ir mikfivægu hlutverki í sameiningu
hinna mörgu þjóöa sem byggja
landið.
Eitt eiga ThaUendingar sameigin-
legt með íslendingum. Þar em allir
þekktir af skímamafni sínu einu
saman. Eftirnöfn em aðeins notuð
við hátíðleg tækifæri, enda vom þau
ekki tíl í nafnakerfi landsmanna fyrr
en konungur þeirra ákvað að þau
skyldu tekin upp eftir heimsstyrjöld-
ina fyrri.
Þjóðarbrotið sem landið er keimt
við, Thaiar, flutti ekki til núverandi
heimkynna fyrr en á 11. og 12. öld,
og kom frá Suður-Kína. Aðrar þjóðir
höfðu þá búið í landinu í þúsundir
ára.
Fyrsti konungur Thaia, sem eitt-
hvaö kvað að, hét Mengrai mikli og
réð hann ríkjum á síðari hluta 13.
aldar. Hann drottnaði fram aö átt-
ræðu þegar elding varð honum að
bana. Fleiri ThaUandskóngar hafa
látist á sviplegan hátt, eins og Kamp-
hoo sem var étinn af krókódfi árið
1345.
Borg englanna
Bangkok varð ekki tfi fyrr en 1782,
þegar Rama kóngur hinn fyrsti á-
kvað að flytja höfuðborg sína þangað
sem hann gæti verið óhultur fyrir
skyndiárásum óvina sinna. Og þar
sem áður var óhrjálegt fiskiþorp og
verslunarstaður risu nú glæsUegar
hallir og hof. Hin nýja höfuðborg
landsins var skírð Krungthep, sem
þýðir „borg englanna", og undir því
nafni gengur hún enn meðal lands-
manna.
Bangkok er mesta heimsborgin í
Austurlöndum og þar er óendanlega
margt sem hefilar ferðamanninn.
Miklar vegalengdir og hiti gera það
þó að verkum að borgin er erfið yfir-
ferðar fyrir fótgangandi.
Helsti ferðamannastaðurinn í
Bangkok er Höllin stóra, sem er eig-
inlega borg inni í sjálfri borginni,
umkringd tæplega tveggja kílómetra
löngum múr. Innan múranna eru
m.a. skrifstofur konungsembættisins
og Wat Phra Kaeo musteriö, sem
hýsir þá helgimynd sem ThaUend-
ingar tigna hvað mest, Smaragðs-
búddann. Fyrir framan HöUina stóru
er sporöskjulaga tijágarður og um-
hverfis hann eru helstu háskólar
borgarinnar, ráðuneyti, Þjóðminja-
safnið, Þjóðleikhúsið, Listasafn rík-
isins og Lak Muang, þar sem vernd-
arvættir borgarinnar búa. Dansarar
leika þar listir sínar allan daginn til
að skemmta vættunum að beiðni
fólks sem vill þakka þeim fyrir að
bænir þess um betri heUsu og vel-
megun hafa ræst.
MikUl fjöldi mustera er í Bangkok.
Þekktast þeirra er Wat Arun, must-
eri dagrenningarinnar, sem stendur
við bakka Chao Phya árinnar sem
rennur í gegnum borgina. Wat Pho,
eða musteri hins liggjandi Búdda, er
hið elsta í Bangkok, byggt á 16. öld
þegar borgin var ekki nema lítið
þorp. Musteri þetta er þekkt fyrir
tæplega 20 metra háa og 50 metra
langa styttu af Búdda sjálfum og var
musterið raunar byggt í kringum
hana. Wat Pho er jafnframt stærsta
musterið í Bangkok.
Chao Phya áin og fjöldamargir
skurðir setja mikinn svip á borgina
og þaðan er ekki hægt að fara án
þess að fara í morgunsiglingu og
fylgjast með því þegar kaupmenn af
öllum gerðum ferja varning sinn til
markaðar á litlum bátum sínum.
Ekki er hægt aö skilja við Bangkok
án þess að minnast aöeins á skemmt-
analífið, sem þykir meö því fjöl-
skrúðugara á byggðu bóli, jafnvel
þótt börunum sé lokað snemma.
Næturklúbbarnir eru þekktastir fyr-
ir náttúrukitlandi skemmtiatriði sín
og til þeirra teljast nuddstofurnar
frægu.
Endalausar pálmastrendur
Baðstrandarbærinn Pattaya, með
endalausum pálmaströndum sínum,
um 150 kílómetra fyrir suðaustan
Bangkok, má heita fastur áfanga-
staður vestrænna ferðamanna til
Thafiands. Allt fram til ársins 1961
var þar bara lítið fiskimannaþorp.
Þá uppgötvuðu það bandarískir her-
menn í leyfi og síðan hefur verið þar
stöðug uppbygging aöstöðu fyrir
ferðamenn. Litla fiskimannaþorpið
er enn á sínum stað og morgun-
hanarnir eiga þess kost að fylgjast
með þegar fiskimennimir koma inn
aö morgm með bátana drekkhlaðna.
Annar vinsæll ferðamannastaður í
Thailandi er borgin Chiang Mai í
norðurhluta landsins. Veðurlag þar
yfir íslenska vetrartímann er eins og
það gerist best á evrópsku vori og
ekki er óalgengt að menn þurfi jafn-
vel aö bregða yfir sig peysu þegar
kvölda tekur. Hæstu íjöll Thailands
eru allt í kringum borgina og gróður-
sældin er mikfi.
Chiang Mai var stofnuð á 13. öld.
Sagnir herma að borgarmúrarnir,
sem enn sjást að hluta til, hafi verið
byggðir af 90 þúsund mönnum, sem
unnu á vöktum allan sólarhringinn.
Loks má svo geta þess að í Chiang
Mai og nærliggjandi héraöi búa fall-
egustu stúlkur Thailands.
Thcdlenskur matur er með þeim
betri sem hægt er að láta ofan í sig,
meinhollur og ódýr, en hann er
kryddaður vel. Ferðamenn skyldu
því fara varlega í að smakka herleg-
heitin og byija á mat sem er sérstak-
lega lagaður fyrir viðkvæma vest-
ræna bragðlauka. Gott er að borða
mikið af hrísgijónum með matnum
því þau slá á brunann, reynist mat-
urinn vera of kryddaður. En thai-
lenskan mat verða menn að smakka,
jafnvel þótt þaö kosti nokkur tár og
brennda góma.
-gb
Filar eru hin þörfustu húsdýr i Thailandi og viða verða þeir að vinna fyrir
fæði og uppihaldi.
Ár og skurðir setja mikinn svip á Bangkok. Sum markaðstorgin eru meira
að segja fljótandi, eins og þetta sem heitir Damnoen Saduak.