Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1988, Qupperneq 64
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988.
Saga Class biðsalurinn:
Flugleiðir meina Amar-
flugsfarþegum aðgang
þessi vissa mín rættist ekki,“ segir
Fríkirkjukosningar:
Gunnars-
mönnum
synjað um
lögbann
Fógeti hafnaöi beiðni stuönings-
manna séra Gunnars Björnssonar
um að lögbann yrði sett á kosningar
þær sem stjórn Fríkirkjunnar hefur
boöað til í dag og á morgun. Ekki er
vitað um ástæðu synjunarinnar en
að sögn Gunnars Björnssonar var
lögfræðingur hans mjög hissa á
ákvörðun fógeta.
Gunnarsmenn hafa hvatt stuön-
ingsmenn sína til að sitja heima í
kosningunum og á þann hátt virða
lög safnaðarins og úrskurð safnaðar-
fundar í Gamla bíói 12. september
síðastliðinn. Þar var ákvörðun
stjórnarinnar um að segja Gunnari
Björnssyni upp störfum sem safnaö-
arprestur ógilt með meirihluta at-
kvæða.
Kosningarnar fara fram í Álfta-
mýrarskóla og eiga safnaðarmeðlim-
ir eingöngu að taka afstöðu til upp-
sagnar séra Gunnars með því að
krossavið,já“eða„nei“. -hlh
Flugleiðir hafa hafnað beiðni
Arnarflugs um afnot af Saga Class
biösalnum í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar fyrir farþega gullfarrýmis-
ins, nýrrar þjónustu sem hefst hjá
Arnarflugi í dag. í drögum að leigu-
samningi fyrir biðsalinn milli Flug-
ieiða og flugmálayfirvalda segir
hins vegar að Flugleiðir skuli
heimila öðrum flugfélögum, inn-
lendum jafnt sem erlendum, sem
veita þjónustu, sambærilega Saga
Class, aðgang að salnum.
Pétur J. Eiríksson, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða,
nefnir þrjár ástæöur fyrir neitun
Flugleiða. I fyrsta lagi hafi félagið,
eitt flugfélaga, þegar við upphaf
teikningar flugstöðvarinnar óskaö
eftir að fá þessa aðstööu til að bæta
þjónustu við farþega sína, en ekki
til að bæta þjónustu annarra ílugfé-
laga. í öðru lagi meini erlendu fé-
lögin sem hingað fljúga, SAS og
Lufthansa, farþegum annarra fé-
laga, þar á meðal Flugleiða, aögang
að eigin biösölum í heimalöndum
sínum.
„Þriðja ástæðan er sú að þaö
pláss sem við höfum er allt of lítið.
Okkar farþegar komast ekki einu
sinni allir fyrir,“ segir Pétur.
Flugleiöir endursendu leigu-
samningsdrögin í júnímánuöi síð-
astliðnum og fóru fram á að þeim
yrði breytt þannig að félagiö sæti
eitt aö biðsalnum. „Við höfum ekk-
ert heyrt í flugvallarstjóra síðan,
þannig aö ég lít svo á aö hann hafi
fallist á þessar mótbárur okkar.
Málið stendur þannig að viö höfum
þessa stofu, rekum hana fyrir okk-
ur, og ætlum að gera. Það var
ásetningur okkar frá bytjun. Ef
aðrir hefðu haft sömu fyrirhyggju
hefði það verið mjög gott fyrir þá.
En hitt er annað mál að ég er þeirr-
ar skoðunar að í nýrri flugstöð beri
yfirvöidum skylda til aö sjá öörum
flugfélögum fyrir samsvarandi að-
stöðu, óski þau eftir því,“ segir
Pétur J. Eiríksson.
Pétur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelh, segist
ekki viija svara því hvort túlka
beri þögn hans sem samþykki á
óskum Flugleiða um einkaafnot af
salnum.
„Það virðist vera einhver mis-
skilningur á aöalskrifstofu félags-
ins varðandi þetta atriði en ég á
ekki von á öðru en þetta leysist í
tæka tíð. Ég yrði mjög undrandi ef
Pétur Guðmundsson flugvallar-
stjóri.
Magnús Oddsson, markaðsstjóri
Amarflugs, segir aö félagið muni
til að byrja með leysa biðsalarað-
stööu guÚfarrýmisfarþega í sam-
vinnu við veitingamanninn í Flug-
stööinni.
„Ég vil undirstrika þaö að viö ht-
um ekki endilega á þetta sem stríð
við Flugleiöir. Okkur heföi þótt
eölilegra að um væri að ræða eina
slíka setustofu, sem öll flugfélög
hefðu aðgang aö, eins og gerist á
flestum flugvöllum. Þama er ekki
hægt að kaupa þessa þjónustu og
það finnst okkur svolítið öfugsnú-
iö,“ segir Magnús Oddsson.
-gb
Árekstur yfir Laxá:
Ók 100 metra
með fólksbfl
framan á
Harður árekstur varö milli vöru-
flutningabíls með tengivagn og fólks-
bíls á brúnni yfir Laxá í Þingeyjar-
sýslu. Fólksbílhnn átti um 10 metra
eftir ófarna yfir hina 50 metra löngu
brú þegar áreksturinn varð. Ok
flutningabíllinn með fólksbílinn
framan á sér yfir brúna og 60 metra
eftir veginum þar sem hann fór út
af og tengivagninn valt. Hjón voru í
fólksbílnum og sluppu þau furöuvel
miðaö við aðstæður. Bíll þeirra er
gerónýtur. Ökumaður flutningabíls-
ins segir að hemlamir hafi ekki virk-
aö sem skyldi og því hafi þetta 40
tonna ferlíki ekki stöðvast fyrr en 100
metrafráárekstrarstaðnum. -hlh
LOKI
Ég hélt nú að barinn í flug-
stöðinni væri nógu góður.
Það var óvenjuleg eldamennska sem fram fór i fjörunni við Ánanaust í
gær. Þar sat maður að nafni Jakob Thorarensen og sveið selshreifa og
hausa yfir opnum eldi. Jakob sagði að þessir útlimir selsins væru herra-
mannsmatur, eftir að búið væri að sviða þá og skafa. Enn bragðbetri væru
þeir þó ef þeir væru settir í súr eftir aðgerðina yfir eldinum.
-JSS/DV-mynd S
Margir fara yfír á rauðu:
Óeinkennisklæddir
lögreglumenn
verða við Ijósin
- í stað einkennisklæddra áður
Frá og með helginni munu óein-
kennisklæddir lögreglumenn fara
um borgina og fylgjast með því hvort
ökumenn virði úmferöarljós eins og
þeim ber skylda til.
Aö sögn lögreglunnnar hefur þess
orðið vart aö menn viröi ekki ljósin
sem skyldi og á nú að herða eftirUtið
og taka í lurginn á þeim sem gerast
brotlegir. Getur fólk átt von á því
næstu daga að verða stöðvað eða fá
á sig kæru ef það fer ekki fuUkom-
lega eftir rauða, gula og græna litn-
um. Þýöir þá lítið aö fara yfir á „taxa-
grænu" eins og gula ljósið er einnig
kallað.
. Hingað til hafa einkennisklæddir
lögreglumenn fylgst meö þessu og
hefur nærvera þeirra haft jákvæö
áhrif. En meðan engin lögregla er
sjáanleg er eins og að fólk freistist
til aö hundsa ljósin. Verða óeinkenn-
isklæddir lögreglumenn á ferðinni
alla tíma sólarhringsins.
-hlh
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Norðanáttin ríkjandi
Á sunnudag verður hvöss norðanátt með rigningu eða slyddu um norðanvert landið en úrkomulítið sunnanlands. Hiti 1-6 stig,
hlýjast á Austurlandi. Á mánudag eru horfur á minnkandi norðanátt og kólnandi í bili. É1 um noröanvert landið en léttir til syöra.