Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1988, Page 49
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 1988.
49
Sviðsljós
Joan Collins var á Rivierunni. Hún lætur ekki sjá sig á bikini lengur, enda
hátt komin á sextugsaldurinn.
Michael Caine fór með konuna sína, Shakiru, og fimmtán ára dóttur, Natös-
hu, til St. Tropez.
Cher var i St. Tropez og brá ekki út
af vananum. Hennar sundföt voru
öðruvísi en hinna.
Og svo var það Christina Onassis.
Karólína Mónakóprinsessa var á Sardiníu að kenna Karlottu dóttur sinni
að synda.
Kelly LeBrock eyddi friinu sínu á
Sikiley með litlu dóttur sinni, Önnu-
Lísu, sem er eins árs.
Stjörnurnar
í sólbaði
Á sumrin flykkjast stjörn-
urnar í sólbað eins og við
hin. Ejni munurinn er sá að
stjörnurnar nota strendur
sem við hin höfum tæpast
efni á að nota og þær þurfa
ekki að hafa myndavél með
sér í fríið vegna þess að gír-
ugir ljósmyndarar liggja í
leyni um allt til að ná góðri
mynd af uppáhaldsstjörn-
unni sinni. Síðan þurfa
stjörnurnar ekki annað en
að klippa myndir úr heims-
blöðunum til að setja í fjöl-
skyldualbúmið.
Ólyginn
sagði...
River
Phoenix
er ein stærsta unglingastjarnan á
hvíta tjaldinu vestra um þessar
mundir. Kappinn er átján ára að
aldri og heilbrigður ungur maður
með afbrigðum. Hann borðar
ekki kjöt og þolir ekki reykingar.
Hann er raunar alger öfgamaöur
á því sviði því ef einhver dregur
upp sígarettu í návist hans þá er
hann bara farinn. Annars segir
hann að það sem fari mest í taug-
arnar á sér sé þegar fólk kemur
öðruvísi fram við hann en aðra
vegna þess að hann er stjarna.
Rob Lowe
er nú farinn að íhuga leit að frægð
og frama á öðru sviði en í leiklist-
inni. Hann fór á flokksþing
Demókrataflokksins í sumar og
komst að því þar að hann hefur
óskaplega gaman af pólitík og nú
er hann að hugsa um að láta
meira að sér kveða á því sviði.
Hann hefur skipaö sér í sveit með
stuðningsmönnum Michaels
Dukakis sem er víst yfir sig hrif-
inn af stuðningi stjömunnar
ungu því þá er alltaf von til þess
að kvenfólkið kjósi Dukakis.
Parton
er án efa eini kartöflubóndinn í
Beverly Hills. Á meðan aðrar
stjörnur ráða garðyrkjumenn til
að planta skrautblómum í garða
sína er mestur liluti af hennar
garöi lagður undir kartöflurækt.
Henni fmnst svo róandi að sitja
úti í garði hjá kartöflunum sín-
um. Síðan er farið með poka til
vina og kunningja og þeim gefnar
kartöflur. Ja, það er víst að kílóið
er ekki á hundrað og tuttugu
krónur á útsölu á þeim bæ.