Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1988, Síða 51
I
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 1988.
51
Afmæli
Guðmundur H. Garðarsson
Guömundur H. Garðarsson alþing-
ismaður, Stigahlíð 87, Reykjavík, er
sextugur í dag. Guðmundur Helgi
er fæddur í Hafnarfirði og laukvið-
skiptafræðiprófi frá HÍ1954. Hann
var í framhaldsnámi í hagfræði í
Kiel í Þýskalandi 1954-1955, námi í
endurtryggingum í London 1955 og
í markaðsfræðum í Harvardháskóla
1965. Hann var skrifstofustjóri hjá
Iðnaðarmálastofnun íslands 1955-
1961 og fulltrúi hjá SH1961-1987.
Guðmundur var formaður VR
1957-1979 og í miðstjóm ASÍ1966-
1976. Hann var í miðstjóm Alþýðu-
sambands Evrópu 1972-1982 og í
rádgjafamefnd EFTA frá 1971. Guð-
mundur hefur verið í bankaráði
Verslunarbanka íslands frá 1973 og
í stjóm Lífeyrissjóðs verslunar-
manna frá 1968, formaður 1977-1979
og 1983-1986. Hann hefur verið í
stjóm Fjárfestingarfélags íslands
frá 1973 og í stjórn íslenskrar endur-
tryggingar 1983-1987. Guðmundur
var alþingismaður Reykvíkinga
1974-1978 ogfrá 1987.
Guðmundur kvæntist 21. nóvemb-
er 1953 Ragnheiði Guðrúnu Ásgeirs-
dóttur, f. 5. júní 1931, læknaritara.
Foreldrar hennar vom Ásgeir Þor-
steinsson, verkfræðingur í Rvík, og
kona hans, Elín Hannesdóttir Haf-
stein. Synir Guðmundar og Ragn-
heiðar eru Guðmundur Ragnar, f.
11. júlí 1956, tölvunarfræðingur, og
Ragnar Hannes, f. 28. október 1968,
nemi. Systkini Guðmundar em
Valdís skrifstofumaður, gift Skafta
Þóroddssyni, flugumsjónarmanni í
Hafnarfirði, sem er látinn, Vildís,
gift Skúla Axelssyni, flugstjóra í
Luxemburg, Vigdís Ragnheiður
tækniteiknari, gift Rögnvaldi Ólafs-
syni teiknara, og Gísh Magnús, full-
trúi í útlendingaeftirlitinu, kvæntur
Önnu Kristínu Amgrímsdóttur
leikara.
Foreldrar Guðmundar vom Garð-
ar Svavar Gíslason, kaupmaður og
íþróttamaður í Hafnarfirði, og kona
hans, Matthildur Guðmundsdóttir.
Föðurbróöir Guðmundar er Valur
leikari, faðir Vals bankastjóra.
Garðar var sonur Gísla, kaupmanns
í Rvík, Helgasonar, b. á Grundar-
stekk í Berufirði, Gunnlaugssonar,
b. á Flögu í Breiðdal, Bjamasonar.
Móöir Gunnlaugs var Guöný Gunn-
laugsdóttir, b. á Þorgrímsstöðum,
Ögmundssonar og konu hans,
Oddnýjar Erlendsdóttur, b. á
Ásunnarstöðum, Bjarnasonar, ætt-
fóður Ásunnarstaðaættarinnar, fóö-
ur Guðrúnar, langömmu Bóelar,
langömmu Geirs Hallgrímssonar.
Önnur dóttir Erlendar var Þorbjörg,
langamma Vilhelms, langafa Al-
berts Guðmundssonar.
Móðir Gísla var Sigríður Gísla-
dóttir, b. í Krossgerði í Berufirði,
Halldórssonar, b. í Krossgeröi, bróð-
ur Brynjólfs, afa Gísla Brynjúlfs-
sonar skálds og langafa Gísla, lang-
afa Ólafs Davíðssonar hagfræðings.
Annar bróðir Halldórs var Árni,
langafi Guðmundar, afa Emils
Björnssonar prests. Systir Halldórs
var Margrét, langamma Eysteins
Jónssonar, fyrrv. ráðherra. Móðir
Gísla var Sigríöur Gísladótir, systir
Benedikts, langafa Halldóm, móður
Ragnars Halldórssonar í ÍSAL. Móð-
ir Sigríðar var Anna Árnadóttir, b.
í Fossárdal, Jónssonar og konu
hans, Þóm Guðmundsdóttur, systur
Guðmundar, langafa Finns Jóns-
sonarlistmálara.
Valgerður var dóttir Freysteins,
b. á Hjalla í Ölfusi, Einarssonar, b.
á Þurá, Þórðarsonar, bróður Jóns,
langafa Halldórs Laxness. Móðir
Einars var Ingveldur, systir Gísla,
langafa Viiborgar, ömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Ingveldur var dótt-
ir Guðna, b. í Reykjakoti, Jónsson-
ar, ættfóður Reykjakotsættarinnar.
Móðir Valgerðar var Valgerður Þor-
björnsdóttir, b. á Yxnalæk, Jónsson-
ar, silfursmiðs á Bíldsfelli, Sigurðs-
sonar, langafa Einars, langafa Jó-
hönnu Sigurðardóttur ráöherra.
Móðir Valgerðar var Katrín, systir
Odds, langafa Salvarar, ömmu
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar. Oddur var einnig langafi Stein-
dórs, afa Geirs Haarde. Þá var Odd-
ur langafi Ingveldar, ömmu Gunn-
ars Björnssonar prests. Katrín var
dóttir Bjöms, b. á Þúfu, Oddssonar
og konu hans, Guðrúnar Eyjólfs-
dóttur, b. á Kröggólfsstöðum, Jóns-
sonar, ættfóður Kröggólfsstaðaætt-
arinnar.
Matthildur er kjördóttir Guð-
mundar Helgasonar, bæjargjald-
Guðmundur H. Garðarsson
kera í Hafnarfirði. Faðir Matthildar
var Sigurður, prentari í Rvík, Sæ-
mundsson, bókbindara á Eskifirði,
Sæmundssonar. Móðir Sigurðar var
Ólöf, ljósmóðti á Eskifirði, Hans-
dóttti. Móðir Ólafar var Ingunn
Runólfsdóttir, b. á Þemunesi, Ein-
arssonar. Móöir Runólfs var Ingunn
Pétursdóttir, b. á Hvanná, Guð-
mundssonar, bróöur Guttorms,
langafa Einars, afa Stefáns Valgetis-
sonar alþingismanns. Móðti Matt-
hildar var Margrét Jónsdóttir, sjó-
manns í Gunnarsbæ í Hafnarfirði,
Gunnarssonar og konu hans, Stein-
unnar Jónsdóttur.
Þorvarður B. Jónsson
Þorvarður Björn Jónsson fram-
kvæmdastjóri, Austurgerði 2 í
Reykjavík, varð sextugur í gær,
sunnudag.
Þorvarður er fæddur á ísafirði og
ólst upp vestur á fjörðum. Hann
varð stúdent frá MR áriö 1950, lauk
fyrri hluta prófi í verkfræði við HÍ
árið 1953 og prófi í rafeindaverk-
fræði frá DTH í Kaupmannahöfn
árið 1956. Þörvarður var verkfræð-
ingur hjá Post- og Telegrafvæsenets
Kabelingeninörtjeneste í Kaup-
mannahöfn 1956-1957, í símatækni-
deild Pósts og síma 1957-1961 og aft-
ur frá 1964, deildarverkfræöingur
frá 1961. Árin 1961-1963 vann hann
við uppsetningu á búnaði fyrir sæ-
símastrengina Scotice og Icecan,
yfirverkfræðingur frá 1966 við sjálf-
virkar símstöðvar og notendabún-
að. Núna er Þorvarður fram-
kvæmdastjóri tæknideildar Póst- og
símamálastofnunar.
Frá 1958 hefur Þorvarður kennt
við Póst- og símaskólann og frá 1972
við verkfræði- og raunvísindadeild
HÍ.
Þorvarður hefur verið fulltrúi
Pósts og síma á ráðstefnum og setið
í nefndum fyrir stofnunina. Hann
hefur einnig verið virkur í starfi
Verkfræðingafélags íslands.
Þorvaröur er kvæntur Unni Ósk
Jónsdóttur, dóttur Jóns Magnús-
sonar, sjómanns í Reykjavík, og
konu hans, Ólafíu Ólafsdóttur.
Börn þeirra eru Jón Kristján, f.
23.7.1954, kennari, kvæntur Þór-
. unni Snorradóttur, eiga tvö börn;
Sigrún, f. 25.6.1960, háskólanemi,
giftist Guðmundi Kristni Ingvars-
syni, eiga eitt barn, þau skildu; Jó-
hann, f. 21.9.1962, háskólanemi;
Helgi, f. 17.7.1966, háskólanemi.
Systkini Þorvarðs eru Borghildur
Guðrún handavinnukennari, býr í
Rvík, gift Eðvarð Bjarnasyni raf-
virkjá, eiga tvö börn; Valdimar
Kristján, prófessor í vélaverkfræði
Þorvarður B. Jónsson
við HÍ, býr í Rvík, kvæntur Guð-
rúnu Sigmundsdóttur, eiga fjögur
börn; Jón Albert, matsveinn og bíl-
stjóri, býr í Rvík, kvæntist Maríu
Óskarsdóttur, eignuðust 3 börn,
skildu.
Faðir Þorvarðs var Jón Kristjáns-
son, f. 22.9.1890, d. 22.11.1972, tré-
smiður, fæddist í Neðri-Miðvík í
Aðalvík og ólst upp í Þverdal í Aðal-
vík, N-ísafjarðarsýslu. Móðir Þor-
varðs var Þorbjörg húsmóöir, f. 18.4.
1894, d. 29.5.1968, Valdimarsdóttir,
útvegsbónda og kaupmanns í Hnífs-
dal, Þorvarðssonar.
Eyjólfur Guðjónsson
Eyjólfur Guðjónsson, Garðvangi,
Garði, er áttatíu og fimm ára í dag.
Eyjólfur er fæddur í Keflavík og
hefur alltaf búið þar. Hann gekk í
barnaskóla og er með vélstjórapróf.
Eyjólfur var á sjónum til ársins 1945
aö hann hóf skrifstofu- og verslun-
arstörf, m.a. hjá Kaupfélagi Suður-
nesja og varnarliðinu. Hann lét af
störfumáriðl983.
Eyjólfur starfaði mikið í Ung-
mennafélagi Keflavíkur og í Leik-
félagi Keflavíkur. Hann er heiðurs-
félagi í báðum félögunum. Þá er
Eyjólfur stofnandi og fyrsti formað-
ur Knattspyrnufélags Keflavíkur
(KFK) og hefur starfað í mörgum
öörumfélögum.
Eyjólfur er kvæntur Guðlaugu
Stefánsdóttur, f. 2.10.1905, húsmóð-
ur, dóttur Stefáns Grímssonar sjó-
manns, og Maríu Sveinsdóttur hús-
móður.
Böm Eyjólfs og Guðlaugar eru
Guðjón, f. 23.6.1930, lögg. endur-
skoðandi, býr í Reykjavík, kvæntur
Guðlaugu Ottósdóttur, eiga 5 börn;
María, f. 2.7.1931, bankastarfsmað-
ur, býr í Reykjavík, gift Þorleifi Sig-
urðssyni, d. 1985, eignuðust 3 börn;
Guðlaugur, f. 23.10.1933, umboös-
maður Brunabótafélags ísl. í Kefla-
vík og Njarðvík, býr í Keflavík,
kvæntur Höllu Gísladóttur, eiga 4
börn; Sigurður, f. 11.6.1936, fram-
kvæmdastjóri Mjólkurfélags
Reykjavíkur, kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur, eiga 4 börn.
Systkini Eyjólfs: Ólafur, f. 1904, d.
1907; Þorvaldur, f. 15.8.1905, sjómað-
ur og málari, býr í Keflavík, kvænt-
ur Guðbjörgu Jónsdóttur, eiga þrjú
börn; Ólafur, f. 7.10.1909, d. 1984,
bifreiðastjóri, kona hans, Sveindís
Marteinsdóttir, lést 1983, áttu fjögur
börn; Helga, f. 15.10.1912, verka-
kona, býr í Keflavík, ógift.
Faðir Eyjólfs var Guðjón Eyjólfs-
son, f. 22.9.1879, d. 1952, trésmiður.
Móðir Eyjólfs var Svanlaug Áma-
dóttir, f. 12.6.1971, d. 1982, húsmóðir.
Anný Guðjónsdóttir
Guðbjörg Anný Guðjónsdóttti,
fyrrv. ljósmóðir, Vorsabæjarhjá-
leigu í Gaulverjabæjarhreppi, er átt-
ræðídag.
Anný fæddist í Vestmannaeyjum,
dóttir Guðjóns Jónssonar, sjómanns
í Framnesi, og konu hans, Nikolínu
Guðnadóttur. í Vestmannaeyjum
átti Anný heima til 28 ára aldurs.
Anný lauk ljósmæðranámi árið
1937 og starfaði síðan sem ljósmóðir,
fyrst eitt ár í Vfilingaholtshreppi í
Amessýslu en síðan var hún ljós-
móðti í Gaulveijabæjarhreppi allt
tfiársins 1986.
Anný giftist 12.11.1938 Magnúsi
Guðmundi Guðmundssyni, bónda í
Vorsabæjarhjáleigu, f. 11.8.1908, d.
17.4.1979, og bjuggu þau þar allan
sinn búskap. Foreldrar Guðmundar
voru Guðmundur ívarsson, bóndi í
Vorsabæjarhjáleigu, og kona hans,
Guðrún Magnúsdóttir.
Anný og Guðmundur eignuðust
fimm börn, dreng sem dó nýfæddur;
Guðbjörgu, f. 1939, húsfrú í Vorsa-
bæjarhjáleigu, gifta Ingimar Ottós-
syni, bónda og hreppstjóra; Guð-
rúnu, f. 1940, húsmæðrakennara í
Reykjavík, gifta Hilmari Guðjóns-
synibifreiðastjóra; Katrínu.f. 1944,
forstöðukonu; Guðmund, f. 1945,
framkvæmdastjóra, kvæntan Guð-
rúnu Þ. Jónsdóttur kennara.
Anný Guðjónsdóttir
Anný tekur á móti gestum í dag í
Skíðaskálanum í Hveradölum frá
kl. 15til 19.
Guðrún Hallvarðsdóttir
Guðrún Hallvarðsdóttir húsmóðir,
Strembugötu 15 í Vestmannaeyjum,
ertíræðídag.
Guðrún fæddist á Eystri-Sólheim-
um í Mýrdal og ólst upp á Ketilsstöö-
um í Mýrdal. Hún flutti til Vest-
mannaeyja árið 1918 og giftist sama
ár Jóni Valtýssvni, f. 23.10.1890,
verkamanni ogbónda, d. í maí 1958,
syni Valtýs Sveinssonar bónda og
Jóhönnu Jónsdóttur. Guðrún og
Jón bjuggu á Kirkjubæ í Vest-
mannaeyjum frá 1920 og þar bjó hún
fram aö gosi 1973 að hún fluttist til
Reykjavíkur í eitt ár. Frá 1974 býr
Guðrún á Strembugötu 15.
Böm Guðrúnar og Jóns eru Aðal-
heiður, f. 20.8.1918, húsmóðir, ekkja
Gunnars Ragnarssonar, áttu tvö
börn; Jóhann Valtýr, f. 1922, d. sama
ár; Sigurbergur, f. 19.5.1923, ókv.
ogbarnlaus; Jóhanna Svava, f. 19.2.
1927, býr í Reykjavík, gift Andrési
Magnússyni, eiga þrjú börn.
Guðrún Hallvarösdóttir
Systkini Guðrúnar voru níu en öll
em látin nema systirin Sveinbjörg.
Faðir Guðrúnar var Hallvarður
Ketilsson, f. 2.1.1847, d. 1938, bóndi
og smiður. Móöir Guðrúnar var
Þórunn Sigurðardóttir, f. 4.8.1856,
d. 1951, húsmóðti. Þau bjuggu alla
sína tíð í Reynisholti í Mýrdal.
Fanney Guðnadéttir
Fanney Guönadóttir húsfreyja,
Sandi í Aðaldal, er sjötíu og fimm
áraídag.
Hún er fædd á Húsavík, dóttir
hjónanna Bjarnfríðar Bjamadóttur
og Guðna Þóröarsonar. Hún átti
fjögur hálfsystkini, öll látin, og
fimm alsystkini en eitt þeirra er látið.
Fanney fékk barnafræðslu og fór
í Húsmæðraskólann á Laugum
haustið 1939. Hún réðst í vist eftir
það, m.a. til Halldóru Sigurjóns-
dótturíVarmahlíð.
Fanney er gift Valtý Guðmunds-
syni. Þau eiga soninn Hrein sem
kvæntur er Ragnhildi Ingólfsdóttur.
Þaueigatvöbörn. Fanney Guðnadóttir
85 ára
60 ára
Ragnhildur Magnúsdóttti,
Vesturvegi 13b, Vestmannaeyjum.
Bjöm Kristjánsson,
Fjóluhvammi 11, FellahreppL
75 ára
Yigdís Guömundsdóttir,
Álftamýri 4, ReyKjavík.
Karl Ferdinandsson,
Heiðarvegi 7, Reyðarfirði.
Helga Eiríksdóttir,
Vorsabæ, Skeiöahreppi.
Guðný Guðbrandsdóttti, Hringbraut 50, Reykjavík. Katrín Jónsdóttti, Akbraut, HoltahreppL 50 ára Bjamey G. Sigurðardóttti, Aðalgötu 60, Súðavík.
70 ára 40 ára
Óskar B. Benediktsson, Lerkihlíð 7, Reykjavík. Svanhildur Steinsdóttir, Neöra-Ási 1, Hólahreppi. Dagur Daníelsson, Álfhólsvegi 82, KópavogL Bergþóra Guðmundsdóttir, Sléttuvegi 7, Selfossi. Gísli Bjömsson, Krókaraýri 38, Garðabæ. Salóme Friðgeirsdóttir, Byggðarenda 14, Reykjavík. Magnús Reynir Sigurösson, Fögrukinn 16, Hafharfirði. Gcti Thorsteinsson, Holtaseli 42, Reykjavík.