Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Síða 5
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
5
Fréttir
Aldi-málið:
Halldór hvikar ekki
frá hvalveiðiáætlun
- nýtt áróðursátak og ijölgun í sendiráðinu?
HaftiarQarðarvegur:
23 bílar
I árekstri
Tuttugu og þrír bílar lentu í
árekstri á um 50 metra vegarkafla
viö Kópavog um hádegi á laugar-
dag.
Þaö var rétt fyrir klukkan eitt
aö bílstjóri stöðvaði bíl sinn á
Hafnarfjarðarveginum, rétt
norðan við Kópavogslækinn,
vegna lélegs skyggnis. Þeir bílar
sera komu akandi á eftir voru
þessu alls óviðbúnir og lentu 10
bílar því í einum og sama árekstr-
inum. Þessi stórárekstur orsak-
aöi síðan óbeint nokkra árekstra
á sama stað með fleiri en tveim
bílum. Þegar upp var staðiö höfðu
alls 23 bílar lent í árekstrum á
aðeins 50 metra vegarkafla.
Nokkrar skemmdir urðu á öku-
tækjum en engin alvarleg slys
urðu á fólki.
Lögreglan í Kópavogi sagði DV
að mikil hálka hefði veriö á veg-
inum þar sem hiti var rétt ofan
við frostmark og tróðst því snjór-
inn mjög vel. Hafi ökumenn flest-
ir verið á negldum dekkjum en
ekki ekið eftir aðstæðum sem
voru mjög slæmar. -hlh
Höfti, Homafirði:
Hvassafell
losnaði frá
bryggjunni
Hvassafell, skip Sambandsins,
losnaði frá bryggju á Höfn í
Hornafiröi um tíuleytið á laugar-
dagskvöld. Var vinnu við lestun
skipsins lokið þegar það reif sig
frá í vestanrokinu sem gekk yfir
Höfn á laugardag. Var aldrei
hætta á ferðum en það tók um tvo
tíma að koma skipinu að bryggju
aftur og það tókst þá fyrst þegar
stórvirkar þungavinnuvélar
komu til hjálpar. -hlh
Blindbylur í Ólafsvík:
Af balli með
lögregluhjálp
Mikiö annríki var hjá Óiafsvík-
urlögreglunni um helgina vegna
veöurs. Var mikil ófærð innan-
bæjar og vegna bhndbyls aðfara-
nótt sunnudags varð lögregla að
hjálpa ballgestum heim til sín.
Var dansleikur í félagsheimilinu
Klifi og komust ballgestir hvergi
vegna færöarinnar. Stóð lögregl-
an í heimkeyrslum til klukkan
átta á sunnudagsmorgun. Mun
engum hafa orðið meint af volk-
inu. -hlh
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra er staðráðinn í að gefa hval-
veiðiáætlunina ekki eftir þó að sam-
tök umhverfisverndarmanna hafi
fengið vestur-þýska matvælafyrir-
tækið Aldi til að hætta viðskiptum
upp á 200 milljónir króna við íslend-
inga.
„Við höfum góðan málstað að verja
og skulum spyija að leikslokum,"
svarar Halldór spurningu um hvort
síðustu atburðir hafi ekki skaðað ís-
lenska hagsmuni óbætanlega. Tals-
menn lagmetisiðjunnar hérlendis
segja fyrirtæki verða gjaldþrota og
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ríkissjóður hefur greitt Ólafsfjarö-
arbæ um 10 milljónir króna vegna
ofgreiddra fyrirframskatta bæjarins
af gjöldum einstaklinga en áður hafði
ríkissjóður krafið bæjarsjóð Ólafs-
tugir manna missa atvinnuna ef Aldi
fyrirtækið hætti að selja íslenskar
afurðir.
Halldór hyggst beita sér fyrir áróð-
ursátaki til að svara andófi umhverf-
isverndarmanna gegn hvalveiði-
stefnu íslendinga. Átakið verður þrí-
þætt, því verður beint til fyrirtækja
í Vestur-Þýskalandi sem skipta við
ísland, fjölmiðla þar og almennings.
„Þetta átak verður kynnt í þessari
viku,“ segir Halldór.
„Það er einnig verið að vinna að
því að styrkja íslenska sendiráðið í
Vestur-Þýskalandi meðan á þessu
íjarðar um 9 milljónir króna sem
væru ógreiddar af fyrirfram greidd-
um sköttum á sl. ári.
„Þetta munar miklu, ekki síst fyrir
svona lítið bæjarfélag," segir Bjarni
Grímsson, bæjarstjóri á Ólafsfirði.
„Við vorum allt frá upphafi þessa
stendur,“ segir Halldór.
Sjávarútvegsráðherra átti að fara í
heimsókn til Vestur-Þýskalands í
apríl en hann hefur óskað eftir því
að þeirri heimsókn verði flýtt. Þar
ætlar Halldór að taka upp mál Aldi
fyrirtækisins.
Eru líkur á að vestur-þýsk stjórnvöld
geti haft áhrif á viðskipti þýskra fyr-
irtækja?
„Ég skal ekkert segja um það. Ég
tel hins vegar nauðsynlegt að þeim
sé gerð grein fyrir alvöru þessa
máls,“ segir Halldór Ásgrímsson.
máls óhressir með hvernig með það
var farið og töldum að mistök hefðu
átt sér stað og það hefur komið á
daginn. Við lentum illa í umræðunni
vegna þessa máls og einnig þurftum
við að fjármagna þetta með yfir-
drætti á sínum tíma," sagði Bjarni.
Akureyri:
Ökumenn í
erfiðleikum
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyii;
Veður á Norðurlandi var hryss-
ingslegt lengst af um helgina og
á Akureyri kyngdi niður miklum
snjó frá þvi á hádegi á fóstudag.
Ökumenn lentu í miklum erf-
iðleikum í fóstudagsumferðinni
og varöstjóri hjá iögreglunni
sagði að lögreglan heföi staðiö í
ströngu við aö aðstoða ökumenn
sem ekki komust leiöar sinnar
vegna ófærðar. Ekki urðu telj-
andi óhöpp f umferöinni, þó uröu
7 árekstrar í bænum um helgjna
en í þeim tilfeUum var um „nudd“
að ræða, að sögn lögreglunnar.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var
opnað á laugardag og braust
nokkur fjöldi fólks þangað. Þegar
opnað var í gærmorgun hvessti
síðan aö nýju og var einungis ein
lyfta opin fyrir hádegið. Það er
því óhætt að segja að veturinn
hafi loksins háfiö innreið sína á
Akureyri um helgina en óvepjus-
njólétt hefur verið í bænum fram
að þessa.
Þrengsli:
Tvær rútur
lögðust út af
Tvær rútur fóru út af Þrengsla-
veginum um hádegi í gær. Voru
þær á leið upp brekku sem hall-
aði einnig undan vindinum, sem
var nokkur. Fór svo að önnur
rútan lagðist á vinstri hliöina í
snjóskafl með þeim afleiöingum
að ein rúða brotnaði. Ekki urðu
meiðsl á fólki nema hvaö ein
stúlka kvartaði undan eymslum
í baki. Var hún flutt á sly sadeild.
Seinni rútan lagðist nánast
mjúklega í snjóskafl og urðu eng-
ar skemmdir á henni né slys á
farþegum.
Að sögn lögreglu á Selfossi var
hált á Þrengslavegi og nokkur
snjór en vegheflar munu hafa far-
ið þrengslin eftir að rúturnar
höfðu losnað. -hlh
Tekinn með
loftriffil
Lögregla handtók 15 ára gaml-
an pilt með loftriffil á Seltjarnar-
nesi á laugardag. Hafði pilturinn
verið að skjóta með rifflinum og
fariö heldur ógætilega með hann
í nærveru bama sem voru að leik.
Var riffillinn tekinn af pilti og
fékk rannsóknarlögreglan máliö
til meðferðar. -hlh
-pv
Þetta var algeng sjón á götum höfuðborgarsvæðisins um helgina; fljúgandi hálka og skafrenningur og margir
bílar kyrrstæðir. Myndin var tekin við Arnarnesið. DV-mynd: GVA
Ólafsijörðiir og skattamir:
Dæmið snerist heldur betur við
- ríkið skuldaði bænum en ekki öfugt
UTSALAJ
VERÐFRflKR.209.900
Bílar, tilbúnir á númerum, til afgreiðslu
strax í dag.
Cóð greiðslukjör. 25% útborgun og
eftirstöðvar á 12 mán.
Opiö í dag frá kl. 1-5
JÖFUR -ÞECAR ÞÚ KAUPIR BÍL
JÖFUR HF
NYBÝLAVEGI 2 SIMI 42600