Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1990, Blaðsíða 25
 nm MMOTPMM iMHM ■ttMMHi J< mum ÍÞ'&tylQlfPKÍ .-^< tttííj fA* *-•">5 ■'' f?yíí ^R.vVhs^éjNý^yJ^ii.-ifSQSSs ;MlS*»S§MÍ£ífP fejgÉftaiMÍÍ ^éémIé \^Í»A»í'^aViV $mmm ImmmM mUM WBv&JMÉfcÆ %*<&&&£$:%’&.hðr* MÁNUÐAGUR 10. DESEMBER199CÍ. Fréttir Þjófadalaflöll: Umferðin eins og á Laugavegi MagnÚ3 Ólaísson, DV, Húnaþingi: Þaö er svo mannmargt hérna aö það er svipað aö ganga hér um fjöllin og ganga Laugaveginn á Þorláksmessu, sagði viðmælandi biaðsins fyrir nokkru en þá var hann staddur í Þjófadalafjöllum vestan við Hveravelli. Grímur Sigurjónsson, veðurat- hugunarmaöur á Hveravöllum, sagðí að lengi eftir að rjúpnaveiöi hófst hefði fjöldi manns komið á Hveravelli um hverja helgi. Færð hefði líka verið góö alveg fram um 20. nóv. Þá versnaði færð. Veiði er minni nú en í fyrra en þó er algengt að hver veiðimaður komi með 8-10 rjúpur eftir dag- inn. Aðallega er veitt í Þjófadala- fjöllum. unáSelfossi Kiistjáii Einarssan, DV, Selibssi: Fyrir bæjarstjórn Selfoss liggur nú tiilaga að miklu tijáræktará- taki sem á að gilda til nokkurra ára. Þar er talað um markvissa ræktun tijáa og skjólbelta á opn- um svæðum og við aðkomuleiðir að bænum. Markmiö þessarar áætlunar byggist á því að fegra umhveríið, bæta möguleika til útivistar og efla unglingavinnuna á sumrin. Einstaklingum og fyrirtækjum verður boðiö að tengjast þessu trjáræktarverkefni með skipu- lagningu á lóðum sínum og leið- beiningu um kaup á tijám. Seifyssingar geta státað af því að þeir eru miklir áhugamenn um ræktun og hefur bærinn feng- ið hrós fyrir það og einnig snyrti- legt umhverfi. Þingeyingamir þóttugóðir Regína Thoiarensen, DV, SeKossi: Fljótamenn kaupalíflömb Öm Þóraiinsson, DV, Fljótum: Sauðfjárbúskapur í Fljótum er nú á uppleið aftur eftir mikinn niðurskurð vegna riöuveiki á ár- unum 1986-1988. í haust keyptu sex bændur 630 lömb í Kirkju- bólshreppi á Ströndum og Sval- barðshreppi í Norður-Þingeyjar- sýslu. Eftir þessi fjárkaup hafa verið keypt tæplega 1000 lömb í Fljótin á tveimur árum. Þrátt fyrir það er ekki líklegt að fjárbúskapur hér verði eins umfangsmikill og áður en niðurskurðurinn hófst. Dilkar voru ágætlega vænir eins og raunar oftast áður. Meðal- vigtin var víðast 16,5-18 kíló. Lúsin lífseig Kristján Einaisson, DV, Selfossi: Fljótlega eftir að skólar hófust í haust á Selfóssi varð vart við lús í hári nemenda barnaskólans og er reyndar enn. Foreldrum var þá sendur bækhngur um lúsina, atferli hennar og aðferðir til að útrýma henni úr hárinu. Svo iíf- seig hefur lúsin reynst að tvisvar hefur aðvörunin verið send á heimilin og í sumum bekkjar- deildum hefur sérstakur lúsahár- þvottur verið þrívegis. Selfyssingar eru staðráðnir í að losna við þennan ófögnuð og í apótekinu á Selfossi seljast lúsa- kambar um leið og nýjar birgðir koma. Karlakórinn Hreimur í Aöaldal í Suður-Þingeyjarsýslu söng ný- Iega í hátíöarsal fjölbrautaskól- ans hér á Selfossi. Pjölmenni var og hrifhing áheyrenda mikil - lófaklappi ætlaði aldrei að linna. Félagar í kómum fóru að heim- an frá sér á laugardagsmorgun, bændur og búalið, og sungu hér kl. 14 en um kvöldið söng kórinn i Laugarneskirkju í Reykjavík. Síðan var flogið heim aftur undir miðnætti. Það er með ólikindum hvað samgöngur eru góöar nú til dags - slíkt heföi þótt lygasaga fyrir 40-50 árum. Kórfélagar eru 21. Heilsugæslustöðina á ísafirði vantar flóra lækna: Enginn sótti um Hlynui Þói Magnússon, DV, ísafiiöi: Umsóknarfrestur um allar fjórar læknisstöðurnar á Heilsugæslustöð- inni á ísafirði er runninn út og er skemmst frá því að segja að enginn sótti um. Læknar liggja ekki á lausu sem stendur, að sögn Fylkis Ágústs- sonar, formanns stjórnar Fjórðungs- sjúkrahússins og Heilsugæslustöðv- arinnar. Taldi hann að íjöldatak- markanir í læknadeild Háskóla ís- lands væru nú farnar að segja til sín með þessum hætti. „Meira að segja læknar, sem eiga eftir hálft ár eða meira í framhalds- námi, eru þegar búnir að ráðstafa sér. Svo gleypa stöðumar í Reykjavík allt.“ Fylkir telur æskilegt að tveir vænt- anlegra heilsugæslulækna heföu eitthvert sérsviö. Væri því fylgst með læknum sem væru í framhaldsnámi erlendis pn án áramnirc enn sem komið er. „Menn segja mér að það geti tekið um tvö ár að manna stöð- urnar. Það er út af fyrir sig ekkert vandræðaástand, en það er auðvitað ekki sniðugt, ef svo má að orði kom- ast, að hér séu tiltölulega ör skipti á læknum, að þeir séu ekki nema 4 til 5 mánuði í einu. Aðalatriðið er samt að hafa lækna og það eru læknar núna,“ segir Fylkir. Rauðir dagar Einar Már sýnir á sér nýja hlið í þessari skemmtilegu ástarsögu Rauðir dagar segja frá stúlku sem flyst að heiman til að hefja sjálfstætt líf í Reykjavík. Sögusviðið er höfuðborgin um 1970 umflotin þeim ókyrru straumum sem þá orkuðu á ungt fólk. Húsnæðisskortur, róttækni, uppreisnargirni og ekki síst ástin ráða hér ríkjum á tímum sem lítt hefur verið sinnt til þessa í bókmenntum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.