Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1990, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1990, Page 26
38 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1990. Fréttir dv Isaflörður: Bátahöf nin er ónýt Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirði: Nú er komiö fram sem menn hafa óttast um skeið aö bátahöfnin á ísafirði er óbrennanlegt rusl. Stál- þiliö á henni er orðið þunnt og kom- in illyrmisleg göt á það víða. Við blas- ir að ekki verður hægt að nota höfn- ina til löndunar öllu lengur, því þekj- an er farin að gefa sig og orðin við- sjárverð þyngri ökutækjum. í núver- andi ástandi er kanturinn einungis hæfur sem viðlegupláss. „Við héldum fyrst að þetta væri bara ákveðinn kafli en nú blasir við að þetta er öll bátahöfnin,“ segir Hermann Skúlason, formaður hafn- arstjómar. „Þilið er einfaldlega kom- ið á aldur, yfir 50 ára gamalt og meö elstu stálþiljum á landinu. Menn átt- uðu sig einfaldlega ekki á þessu. Það verður aö skipta um allt stálþiiið í höfninni, yfir 200 metra, sennilega framkvæmd upp á 150 millj. kr. Við vorum búnir að gera ítarlega könnun á því hvort hægt væri að gera við þilið en það er útilokað.“ Stefnt er að því að hefja fram- kvæmdir næsta vor. Hafnarsjóður ísafjarðar er þokkalega í stakk búinn til að takast á við þessi verkefni. Sá bögull fylgir 'þó skammrifi að fram- lag ríkisins hefur verið lækkað úr 75% í 65% sökum þess að afkoma hafnarinnar var talin það góð að hún ætti að geta staðið undir því. „Við viljum fá þetta hækkaö aftur í ljósi þessarar nýju stöðu. Þetta er brýnt mál, ekki síst með tilliti til þess aukna álags sem verður með tilkomu jarðganganna," sagði Hermann. Efri hluti heymetisturninn á Grund í Svínadal var fjarlægður. DV-mynd Magnús Húnaþing: Heymetisturn Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi: Heymetisturninn á Grund i Svínadal var rifinn í síðustu viku. Var það gert að kröfu byggingafull- trúa þar sem tahð var að hann gæti hvenær sem er fokið og valdið tjóni á mönnum og mannvirkjum. Stærðargat var komið á hann ofar- lega og þar blöktu járnplötur. Næstu nágrannar og skólabílstjórar skrif- uðu almannavörnum héraðsins bréf út af málinu og í framhaldi af því var ákvörðun tekin um að fjarlægja efri hluta turnsins. Þessi turn var 25 m hár og reistur fyrir nokkrum árum. Fljótlega fór að bera á því að hann væri ekki þétt- ur og verkaöist hey ekki í honum. Hefur hann því staðið tómur nokkur ár. Síðan fór að myndast dæld þar sem nú var komið stærðargat. Þá fóru gárungar að tala um að turninn væri í keng sem maður með maga- pínu. Bændur á Grund vildu aö inn- flytjandi og framleiðandi fjarlægðu turninn en þeir telja sig ekki bera ábyrgö, m.a. vegna þess hve slæm veður koma oft í Svínadal. Málaferli hafa nú sprottið af þessu og er dóms að vænta í vetur eða vor. Saga þessa turns hefur vakið at- hygli byggingafulltrúa á Norður- löndum en þar eru víða svipaðar byggingar í notkun. Myndband sem hefur verið tekið af turninum eftir því sem meira hefur séð á honum hefur verið sýnt á fundum bygginga- fulltrúanna. Austur-Húnavatnssýsla: Betri hrútar Magnús Ólaísson, DV, Húnaþingi: - Hrútar í Austur-Húnavatnssýslu hafa batnað verulega síðan fyrir átta árum þegar ég dæmdi hér síðast á hrútasýningum, sagði Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur hjá Bún- aðarfélagi íslands, þegar hann kynnti niðurstöður hrútasýninga sem haldnar voru í héraðinu í haust. Þakkaði Jón þennan árangur sauð- fjársæðingum, en árangur sæðing- anna jókst verulega eftir að mögulegt var að samstilla gangmál ánna og velja þannig bestu ærnar á hverju búi og láta sæða þær. í haust voru sýndir 258 hrútar og hlutu 85% tveggja vetra og eldri hrúta fyrstu verðlaun. Fyrir 8 árum fengu 62% hrútanna fyrstu verðlaun og 60% fyrir fjórum árum síðan. LOÐFELDIRNIR Á SKÓLAVÖRÐUSTÍGNUM ERU ALLS EKKI DÝRARI EN LOÐFELDIRNIR Á STRIKINU Það er útbreiddur misskilningur að loðfeldir og skinnavara frá þekktum alþjóðlegum hönnuðum sé dýrari á Skólavörðustígnum en hjá feldskerum'erlendis. Þeir vita betur, sem hafa kynnt sér hönnun og gæði loðfelda í nágrannalöndum okkar. * Alþjóðleg gæði efst á Skólavörðustígnum. Úrvalið hefur sjaldan verið fjölbreyttara en einmitt þessa dagana. Hjá Eggerti feldskera færðu m.a. loðfeldi frá Revillion, París, Gilles-Allard, Montreal, MontÍOCCÍ, Milano, og sérsaumaða loðfeldi hannaða af Eggerti feldskera, að ógleymdum loðfóðruðu tískukápunum frá Revillion. Við erum einnig með nýjungar í Beaverskinnum og Nutria fenjabjór. Verð sem skipta máli. Hér eru nokkur dæmi, sem tala sínu máli: Loðfóðraðar kápur frá kr. 56.000 ítalskir tískufeldir frá kr. 97.200 Revillion slár úr kasmír og reffrá kr. 89.600 Sérsaumaðir loðfeldir hannaðir afEggerti feldskera frákr. 186.000 Sérhannaðir loðfeldir frá Revillion frá kr. 272.000 Kanadískir minkafeldir frá kr. 252.10O Síðir loðfeldir frá ýmsum hönnuðum frá kr. 132.000 Allar loðskinnavörur hjá Eggerti feldskera eru seldar með þjónustuábyrgð. Greiðslukjör. EGGERT Efst ú Skólavörðustígnum, sími II121.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.