Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1992, Síða 25
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1992.
25
Grænlendingamir úr Ævintýrum á norðurslóðum:
Óskuðu sér
að leika í
fleiri
myndum
„Við komum hingað fyrst og fermst
tíl að sjá frumsýningu myndarinnar.
Á Grænlandi eru ekki kvikmynda-
hús af sömu stærð og hér og því var
ekki um annað að ræða,“ sagði Maar-
iu Olsen, leikstjóri grænlensku
myndarinnar Móðir hafsins, sem var
ein þriggja mynda sem saman kallast
Ævintýri á Norðurslóðum.
Myndin Ævintýri á norðurslóðum
var frumsýnd um síðustu helgi en
hún er afrakstur samstarfsverkefnis
íslendinga, Grænlendinga og Færey-
inga. íslenska myndin heitirHhestar
og huldufólk en sú færeyska Hannis.
Móðir hafsins er byggð á sam-
nefndri þjóðsögu um anda sem
stjómar hafinu og íbúum þess.
Græðgi nútímamanna og skortur á
virðiungu fyrir náttúmnni og um-
hverfinu hefur orsakað reiði andans
og er það hans sök að veiðimenn
snúa heim tómhentir. Börnin tvö í
sögunni hafa áhyggjur af fæðuleys-
inu og fara út á ísinn til að veiða fisk.
Þau hitta þar móður hafsins og er
hún mjög reið. Bömin lofa að skila
til fullorðna fólksins boðskap hennar
en spurningin er hvort nokkur vilji
hlusta á þau.
Aðalleikarar myndarinnar, Klara
Jaocobsen og Niels Thomassen hittu
DV að máli ásamt leikstjóra myndar-
innar, tæknimanni og dagskrárgerð-
armanni svæðissjónvarpsins í Nuuk.
Þau fara af landi brott í dag en hafa
notað tímann til að skoða sig um,
fara í laugarnar og hafa það náðugt.
Óskuðu sér
við Flosagjá
Leikstjórinn hrósaði börnunum
fyrir þolinmæði þeirra og dugnað við
upptökurnar sem gátu á stundum
dregist nokkuð á langinn. En skyldu
þau vilja leika í fleiri myndum? Því
er svarað á þennan hátt:
„Við vomm á Þingvöllum og
krakkarnir köstuðu pening í Flo-
sagjá og óskuðu sér. Eftir á sögðust
þau hafa óskað sér þess heitast á fá
að leika í fleiri kvikmyndum. Þeim
finnst það skemmtiiegt, ekki síst þar
sem þá gefast tækifæri til að ferðast
og skoða heiminn eins og nú,“ segir
leikstjórinn.
Talið berst að framtíð kvikmynda-
gerðar á Grænlandi. Þau segjast
binda vonir við samstarf eins og það
sem gerði Ævintýri á norðurslóðum
að veruleika. Að öðru leiti leita þau
tíl sjóða og stofnana um framkvæmd-
afé, sem er af skornum skammti.
Aðalleikarar í Móður hafsins, krakkarnir Klara og Niels, ásamt leikstjóranum Mariu Olsen (í Ijósum anorakk),
tæknimanni og dagskrárgerðarkonu frá sjónvarpinu í Nuuk. DV-mynd Hanna
i undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport
Endurtekið vegna fjölda áskorana
HEMtAEiAHB
MARKAÐSTORG
GRENSÁSVEGI 14, VIÐ HLIÐINA Á PIZZAHÚSINU
Opið laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 12-18.
Vefnaðarvara, 150 kr. metrinn.
Þú velur 10 notaðar flíkur, kr. 200.
Kexpakkinn 30 kr.
Kartöflur 60 kr.
Harðfiskur.
Kornflex 30 kr.
Áteknar videospólur, 350 kr.
stykkið, ef þú kaupir 3 saman.
Andri Lindberg mætir
kl. 14 sunnudag með
fjöldann allan af nýjum
töfrabrögðum
FORNBÓKAMARKAÐUR
800 TITLAR
SJALDGÆFAR BÆKUR
Tjöld og annar viðlegubúnaður,
Engir stórir
kvikmyndasalir
Sérstakir kvikmyndasalir eru ekki
í Grænlandi, aðeins kvikmyndaklúb-
bar þar sem sýndar eru 16 millimetra
myndir. í bígerð er að reisa stóra
menningarmiðstöð þar sem gert er
ráð fyrir kvikmyndasal. Hún kæmi
þó ekki i gagnið fyrr en eftir tvö ár.
„Á meðan horfa allir á vídeó," segir
Maariu.
Þau segja náttúruöflin hafa verið
með sér við gerð myndarinnar.
Margar tökur fóru fram á ís inni í
firði einum. Daginn eftir að þeim
lauk sáu þau úr flugvélinni á leiðinni
heim hvar ísinn á firðinum hafði all-
ur brotnað og var gjörsamlega ófær
yflrferðar. Má því segja að Móðir
hafsins hafi sýnt velþóknun sína á
stússi kvikmyndagerðarfólksins með
því að brjóta ekki ísinn fyrr en eftir
að tökum lauk. -hlh
undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport - undraport