Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Qupperneq 38
50 LAUGARDÁGUR 14. NÓVEMBER 1992. Skák Flestir efnilegustu skákmenn landsins undir tvítugu tóku þátt í unglingameistaramóti íslands sem fram fór í húsakynnum Taflfélags Kópavogs, Hamraborg 5, um síö- ustu helgi. Keppendur voru alls 28 og tefldu stuttskákir - umhugsun- artími var 1 klst. á fyrstu 30 leikina og síðan 20 mínútur á mann til aö ljúka skákinni. Þátttökurétt áttu skákmenn fæddir einvigisárið 1972 eða síðar. H-in þrjú - Helgi, Héðinn og Hannes - eru óumdeilt fremstir ís- lenskra skákmanna í þessum ald- ursflokki og verulega hefði komið á óvart ef einhverjum öðrum hefði tekist að skjóta þeim ref fyrir rass. Leikar fóru enda svo að þeir þre- menningar röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Hannes Hlífar og Héðinn Steingrímsson fengu 6 vinninga af 7 mögulegum en Helgi Áss Grétars- son fékk 5 vinninga og var hærri á stigum en Kristján Eðvarðsson, sem jafn honum var að \dnningum. Fimmta sæti hreppti Páll Agnar Þórarinsson með 4,5 v. en 4 vinn- inga fengu Snorri Karlsson, Bragi Þorfinnsson, Magnús Öm Úlfars- son, Ólafur B. Þórsson, Guðmund- ur Daðason, Bjöm Þorfinnsson, Jón Viktor Gunnarsson og Hlíðar Þór Hreinsson. í 14.-15. sæti urðu Stefán Andrésson og Eyjólfur Gunnarsson með 3,5 v. og 3 vinn- inga fengu Guðmundur Sverrir Jónsson, Torfi Leósson, Arinbjörn Þann 20. þessa mánaðar hefst í Debrecen í Ungverjalandi Evrópumót landsliða í skák. Þeir sem taka þátt í þvi fyrir íslands hönd eru Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason, Margeir Pétursson, Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson. Fararstjóri með þeim verður Gunnar Eyjólfsson en með þeim á myndinni er einnig Guð- mundur G. Þórarinsson, forseti Skáksambands íslands. Mótið stendur í tíu daga. DV-mynd GVA skipa fimm stórmeisturum en alls munu yfir 80 stórmeistarar tefla í keppninni. Mótið verður því síst lakar skipað en ólympíumótin og róðurinn verður án efa þungur. Heimsmeistarinn Garrí Kasp- arov er skráður á fyrsta borð Rússa og síðan Bareev, Kramnik, Dreev og Vyzmanavin. Eina breytingin frá sigurliðinu frá Manila er að Bareev kemur inn í stað Khalif- mans og Dolmatovs. En athyglis- vert er að Alexei Dreev skuli fá annað tækifæri en hann stóð sig áberandi verst í Manila. Úkrainumenn stilla upp fvant- sjúk, Beljavskí, Eingorn, Novikov og Romanishin; Vaganjan teflir á fyrsta borði með Armenum og Gelf- and með Hvít-Rússum. Þá hafa Bosníumenn, Króatar, Ungverjar og Svíar stórmeistara í öllum sæt- um. Með Svíum tefla Ulf Anders- son, Ernst, Hellers, Pia Cramling og Lars Karlsson og með Ungveij- um Ribli, Portisch, Tsjernín, Judit Polgar og Csom. Stórmeistarinn Sax er á fyrsta borði með B-sveit Ungveija, sem líklega má skýra með stirðu samkomulagi milli ung- versku skákmannanna. Adorjan er hvergi á blaði. Englendingar hafa endurheimt gamlan liðsmann og mæta fílefldir til leiks. Nigel Short teflir á fyrsta borði, þá Jonathan Speelman, Mic- hael Adams á þriðja borði, John Nunn á fjórða og Tóny Miles, sem Einvígi Héðins og Hannesar Hlífars: Hannes varð vmglinga- meistari íslands - Evrópukeppni landsliða að hefjast í Ungverjalandi Hannes Hlífar er unglingameistari íslands 1992, lagði Héðin Steingrímsson í einvigi um titilinn. DV-mynd GVA Barbato, Bergsteinn Einarsson og Lárus Knútsson. Skákstjórar voru Haraldur Baldursson og Ólafur H. Ólafsson. Helgi Áss heltist úr lestinni er hann tapaði tveimur skákum í 4. og 5. umferð, fyrir Magnúsi Emi Úlfarssyni og Héðni. Helga tókst hins vegar að bjarga andlitinu með því að vinna Hannes í síðustu um- ferð. Héðinn tapaði fyrir Hannesi í fjórðu umferð en vann aðrar skák- ir sínar. Hannes Hlífar og Héðinn þurftu því að tefla einvígi um titilinn „unglingameistari íslands" 1992. Auk nafnbótarinnar er komin hefð fyrir þvi að Skáksamband íslands styrki sigurvegara mótsins til farar á skákmót erlendis, svo að til mik- ils var að vinna. Fyrri skákina tefldu þeir sl. mánudagskvöld og hafði Hannes tiltölulega auöveldan sigur, eftir að Héðinn hafði ratað út í endatafl með hrók, biskup og fjögur peð, gegn hróki, riddara og fimm peðum Hannesar. Seinni skákin var tefld á fimmtudagskvöld. Héðinn náði betri stöðu en tókst ekki að nýta sér frumkvæðið. Eftir 31 leik höfðu orðið mikil uppskipti og Hannes stóð ögn betur að vígi. Sýnilegt var að Héðinn átti engin vinningsfæri og hann tók þvi þann kostinn að bjóða jafntefli, sem Hannes vita- skuld þáði. Hannes Hlífar er því unglingameistari íslands 1992. Skákir mótsins voru misjafnar að gæðum, eins og gengur og gerist og raunar má eðlilegt teljast miðað við skertan umhugsunartíma. Mér hefur raunar ávallt fundist ein- kennilegt hvers vegna unglingun- um er gert að tefla styttri skákir á mótum sem þessum en fá ekki að spreyta sig í hefðbundnum kapp- skákum. Lítum á stutta skák frá mótinu, sem ber nokkur merki þess hve umhugsunartími er af skomum skammti. Hvítt: Ólafur B. Þórsson Svart: Ingi Fjalar Magnússon Frönsk vörn. 1. d4 e6 2. e4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Rf3 Dc7 Óvenjulegur leikmáti. Algengast er 5. - Db6. 6. Be2 f6 7. (M)!? Hvítur býður upp á peðsfórn sem svartur gerir líklega best með að Umsjón Jón L. Árnason þiggja. Eftir 7. - fxe5 8. Rxe5 Rxe5 9. dxe5 Dxe510. Bb5 + missir svaij- ur hrókunarréttinn en það er vafa- mál hvort færi hvíts séu nægileg. 7. - Bd7 8. Bf4 f5? Liðskipan situr á hakanum og nú nær hvítur mjög hættulegu fmm- kvæði. 9. c4! Rge"7 10. Rc3 Rg6 11. Bg5 Rxd4 12. cxd5 Rxe5 13. dxe6 Rexf3+ 14. Bxf3 Rxf3 + ? Riddarinn stendur vel á d4 og því hefði 14. - Bxe6 verið betra. En svarta kóngsstaðan er hættuleg. 15. Dxf3 Bxe6 16. Hfel Kf7 Engu betra er 16. - Dd7 17. Dxí5, eða 16. - Df717. Dd5 og vinnur bisk- upinn. I A X úii A ii A A A A A neq H a * ABCDEFGH 17. Hxe6! og svartur gaf, því að 17. - Kxe6 18. Dd5 er mát. Evrópukeppni landsliða Nú er loks orðið ljóst að íslend- ingar verða meðal þátttakenda á Evrópumeistaramóti landsliða sem hefst í bænum Debrecen í Ung- verjalandi 20. nóvember. Stjórnar- menn í Skáksambandi íslands hafa unnið að því hörðum höndum síð- ustu vikur að reyna að láta enda ná saman og útlit er fyrir að það ætli að takast með stuðningi fjöl- margra fyrirtækja. Teflt er á fjórum boröum og er hverri sveit heimilt að hafa fimmta mann til skiptanna. Skáksveit ís- lands skipa stórmeistararnir Jó- hann Hjartarson, Margeir Péturs- son, Jón L. Árnason og Helgi Ólafs- son auk Hannesar Hlífars Stefáns- sonar sem vantar 20 stig upp á að hljóta stórmeistaranafnbót. Farar- stjóri og liðsstjóri verður Gunnar Eyjólfsson leikari sem var skák- sveitinni til halds og trausts á ólympíumótunum í Novi Sad 1990 og Manila í sumar. Liðsmenn hafa æft daglega öndun og einbeitingu undir hans stjóm og ættu að vera vel hlaðnir fyrir slaginn. Fjörutíu og tvær sveitir hafa til- kynnt um þátttöku í Debrecen, þar af níu frá fyrrverandi Sovétlýð- veldum. Sex sveitanna hafa á að er aftur snúinn til heimalandsins, er fimmti maður. Timman teflir á fyrsta borði með Hollendingum (síðan Piket og van der Wiel), Kortsnoj með Sviss, Agdestein leið- ir norsku sveitina og Dönum tókst að telja stórmeistarann Lars Bo Hansen á að tefla á fyrsta borði. Mótið er aðeins níu umferðir og í raun og veru getur því allt gerst. íslenska sveitin er í hópi þeirra sterkustu en þetta mun vera í fyrsta skipti sem landslið fslands er eingöngu skipað atvinnuskák- mönnum. Möguleikará verðlauna- sæti ættu því að vera fyrir hendi - ef vindátt verður hagstæð. Jóhann á millisvæðamót Stórmeistararnir Jóhann Hjart- arson og Ferdinand Hellers deildu 2. sæti á svæðismótinu í Östersund í Svíþjóð í sumar og ætlunin var að þeir myndu heyja einvígi um sæti á millisvæðamóti, sem fram fer í Biel í ágúst á næsta ári. Nú hefur Alþjóðaskáksambandið tilkynnt að þrjú efstu sætin í Öster- sund gefi þátttökurétt á milli- svæðamóti í stað tveggja sæta sem teflt var um. Jóhann og Hellers komast því báðir áfram og þurfa ekki að heyja einvígi. Þessum tíðindum fagna vitaskuld íslenskir skákunnendur. En þau eru um leið staðfesting á því hvílík firra það var að standa að svæðis- mótinu á þessum tíma, a.m.k. hálfu ári of snemma. Hætt er við að kepp- endur á mótinu hefðu gjarnan vilj- að vita fyrirfram um hve mörg sæti á miílisvæðamóti'var teflt. Þess má geta að íslensku keppend- umir í Östersund - Jóhann, Mar- geir, Helgi og Jón - tefldu „under protest" á mótinu, m.a. vegna þess hve tímasetning þess var vanhugs- uö. Enn ein „rósin“ í hnappagat norræna skáksambandsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.