Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1992, Blaðsíða 41
LAUGARÐAGUR 14. NÓVRMBER 1992.
53.
Tjörvi læknir
við sjúkrabeð
Þórðar kakala
Heilablæöing varð honum að aldurtila enda alþekkt að yngri menn fái
heilablóðfall í kjölfar mikillar drykkju. Spikfeitt óniðurgreitt kindakjöt,
háþrýstingur í kjölfar mlkillar saltneyslu og alls konar ólifnaöur varð
honum að falli.
Stundum er Tjörvi læknir kaU-
aður að frægum sjúkrabeðum út
um allan heim á öllum tímum. Ein-
hvem tíma var Tjörvi fenginn til
að ræða við Martein Lúther um
afbrigðilega kynlífshegðun, hann
spjallaði við Sigmund Freud um
kvalafuUt kinnbeinskrabbamein
og EgU SkaUagrímsson um vaxandi
getuleysi í ellinni. Margir sagn-
fræðingar telja að Tjörvi gæti
breytt gangi heimssögunnar með
þessum sjúkravitjunum en ekkert
hefur þó sannast í þeim efnum.
Fyrir nokkru var Tjörvi fenginn tíl
að vilja Þórðar nokkurs kakala
sem skyndilega hafði veikst við
hirð Noregskonungs. Þórður þessi
var mikiU og vel ættaður höfðingi.
Hann hafði nýlega fengið leyfi og
umboð konungs tílað-fara tíl ís-
lands og verða þar mestur maður.
Hann varð að vonum kampakátur
við þessi tíðindi og settist að
drykkju á krá nokkurri ásamt fleiri
íslendingum. SkyndUega virtist
honum eins og „svifi yfir hann“ og
var honum sjúkum fylgt tíl rekkju.
Tjörvi kemur
ávettvang
Við komu tíl Noregs hraðaði
Tjörvi sér tíl hirðarinnar. Hann tók
bUuleigubU á okurkjörum á
FomebuflugveUi og ók aUt hvað af
tók enda skUdist honum að ástand
Þórðar væri mjög alvarlegt. Hann
gekk fyrir konung sem fagnaði
honum vel og innUega. „Gott að þú
ert kominn, Tiörvi minn,“ sagði
Hákon Noregskonungur, „þú verð-
ur að hressa upp á Þórð kakala.
Hann á nefnUega að verða mestur
maður á íslandi.“ „Það getur reynst
erfitt," sagði Tjörvi. „Á Islandi eru
ótal smákóngar sem telja sig þar
mesta menn. Þórður mun lenda í
harðri samkeppni við þá aUa. Ef
hann ætlar sér einhvem frama í
póhtík verður hann að vera hand-
genginn höfðingjunum Davíð eða
Jóni Baldvin. Án þess bíður hans
einmanaleg eyðimerkurganga í
stjómmálum án áhrifa eða bitlinga.
VUji hann komast til áhrifa í menn-
ingu verður hann aö vera vinur
Hrafns nokkurs Gunnlaugssonar
sem fengið hefur vafasama upphefð
við hirö Svíakonunga. Vilji hann
verða mikiU maður í fjölmiðlum
ber brýna nauðsyn til aö vingast
við þennan sama Hrafn eöa vin
hans Davíð. ÆtU hann sér fram-
gang í útgerð eða bisness er gjald-
þrota-voðinn vís.“ Konungur hlust-
aði á þessa ræðu undrandi á svip.
„Á hann þá enga möguleika á ís-
landi?" „Jú, ef hann hagar seglum
sírnun skynsamlega, klúðrar engu,
móðgar engan, er 1 réttu kalla-
klúbbunum og kemur sér vel við
ofantalda höfðingja," sagði Tjörvi
og skundaði tU sjúkrabeðs Þórðar.
Heilablóðfall
Þórður lá meðvitundarUtUl í
rekkju sinni þegar Tjörvi kom þar
að. Hann var þreklega vaxinn, 46
ára að aldri, klæddur að sið sinnar
samtíðar. Tjörvi sá strax að maður-
inn hafði greinUega fengið heUa-
blóðfaU. AUur kraftur virtist úr
honum farinn, hann gat vart talaö
og yfir augunum var Ufvana slikja.
„Þessi maður á ekki langt eftir,“
sagöiTjörvi. „HeUaskurðlæknar
Borgarspítala gætu ekki einu sinni
bjargað honum.“ Nærstaddir sam-
sinntu því og með tárvotum augum
sögðu þeir Tjörva frá miklum
veisluhöldum og drykkjuskap
Á læknavaktiimi
Þórðar dagana fyrir áfalUð.
Nokkru síðar lést Þóröur án þess
að komast tU meðvitundar. „Senni-
lega hefur hann dáið úr heUablóð-
falU vegna meðfæddrar bUunar á
heUaslagæð eða háþrýstings,“
sagði Tiörvi. „Mikið er vitað um
heUablóðfaU og framfarir hafa orð-
ið í meðferð þeirra sem veröa fýrir
slíku áfaUi. Yfirleitt hefur þó sjúk-
dómurinn einhverja lömun í fór
með sér, talerfiðleika eða skyn-
truflanir. Með nútíma endurhæf-
ingu má koma sumum til betri
heUsu en oft eru menn að beijast
viö alvarlega fótlun ævUangt eftir
heUablóðfaU. Best er að reyna að
koma í veg fyrir sjúkdóminn með
því að gæta vel að blóðþrýstingi og
sjá tíl þess aö hann verði ekki of
hár. Liðlega helmingur aUra þeirra
sem fá heUablóðfaU hefur háþrýst-
ing sem veldur óeðUlegum þrýst-
ingi á æðaveggina. Háar blóðfitur
geta hraðað æðakölkun sem gerir
fólki enn hættara við þessu. Hóg-
lífi, ofifita og mikU drykkja getur
auk þess leitt til heUablóðfaUs.
Reykingar eru auk þess áhættu-
þáttur.“ „Reykingar, hvað er nú
það?“ sögöu hirðmenn Hákonar
konungs sem hlustað höfðu agn-
dofa á þessa löngu ræðu Tjörva.
Hann áttaði sig skyndUega á því
að reykingar voru enn ekki þekkt-
ar við hirð Noregskonimgs árið
1266. „Þið munuð kynnast þeim eft-
ir nokkur hundruð ár,“ sagöi
Tjörvi og brosti vandræðalega.
TjörviogHákon
eigatal
Skömmu síðar átti Tjörvi langt
tal við konung. „Þórður kakaU er
dáinn,“ sagði hann, „og enginn
mannlegur máttur gat bjargaö hon-
um. HeUablæðing varð honum að
aldurtila enda alþekkt að yngri
menn fái heUablóðfaU í kjölfar mik-
Ulardrykkju. Spikfeitt óniðurgreitt
kindakjöt, háþrýstingur í kjölfar
mikUlar saltneyslu og aUs konar
ólifnaður varð honum aö falU.
Þetta verður með tímanum einn
frægasti dauödagi íslandssögunnar
því að Hannes nokkur Hafstein
mun yrkja mikið kvæði um Þórð
eftir ca 600 ár. Þar stendur m.a. 1
viðlaginu:
Svíkþúaldrei
ættland þitt í tryggðum;
drekkþúheldur,
drekk þig heldur í hel.
Hannes mun túlka dauða Þórðar
á skemmtilegan hátt. Hann drekk-
ur sig i hel og kemst þannig frá
þeirri skömm aö fleka Frón. Við-
lagið eiga íslendingar eftir að
syngja af stakri innlifun enda telja
þeir betra að drekka sig í hel en
svíkja ættjörð sína í tryggðum.
Hins vegar má velta því fyrir sér
hvort það séu ekki svik við ættjörð
sína að drekka sig í hel, en það er
önnur spurning." Tjörvi læknir
kvaddi konung og aðra hirðmenn.
Að skilnaði fékk hann sér krús af
innfluttum þýðverskum bjór, steig
upp í bflinn og þeysti af stað fram
í tímann. Hann raulaði fyrir munni
sér þessa vísu úr kvæði Hannesar:
Hans minning Ufði, leyst frá vömm,
lifir hún enn í dag.
En það, sem firrti hann þjóðar-
skömm
það var - brennivínsslag.
„Kannski fleiri ættu að drekka
sig í hel og bjarga þannig heiðri
landsins," tautaði hann annars
hugar.
Vigtarmenn
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verða haldin
á eftirtöldum stöðum ef næg þátttaka fæst.
í Reykjavík 25. og 26. nóv. nk.
Á Akureyri 3. og 4. des. nk.
Námskeiðunum lýkur með prófi.
Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar á Lög-
gildingarstofunni, síma 91-681122
Löggildingarstofan
Aukablað
Matur og kökur
fyrir jólin
Miðvikudaginn 25. nóvember nk. mun
aukablað um matartilbúning fyrir jólin
og jólasiði fylgja DV eins og
undanfarin ár.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að
auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega
hafi samband við Sonju Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið
að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 19. nóv.
ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
Innlausnardagur 15. nóvember 1992.
1. flokkur 1989 Nafnverð:
Innlausnarverð:
5.000 7.107
50.000 71.075
500.000 710.751
1. flokkur 1990 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 6.275 62.751 627.506
2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 12.379
100.000 123.795
1.000.000 1.237.949
2. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.507
100.000 115.070
1.000.000 1.150.703
Innlausnarstaður:
Veðdeild Landsbanka íslands *
Suðurlandsbraut 24.
■ <
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS \
LJ HÚSBRÉFAOEILD ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 666900 »