Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993
Útlönd_________________
Játvardurprins
kominnábiðils-
buxurnar
Játvarður
prins, yngsti
sonur Elísabet-
ar Englands-
drottningar, er
sagður vera
ástfanginnaf28
ára gmalli
stúlku, Sophie
Rhys-Jones, og er reiöubúinn aö
ganga að eiga hana á næsta ári.
Stúlkan starfar sem ráögjafi í
efnahag8málum.
Þetta kom fram i breska æsi-
fréttablaðinu News of the World
í gær. Þar sagði ennfremur aö
prinsinn heföi átt í leynilegu ást-
arsambandi við stúlkuna sem er
með Ijósrautt hár.
Skötuhjúin eru sögö óaöskiijan-
leg og hafa þau dvalið út af fyrir
sig.í íbúð prinsins i Buckingham-
höll og víðar.
Danirleitanýrra
markaðafyrir
jólatrénsín
Danir, sem flytja út mest allra
þjóða af jólatrjám, eru famir að
leita nýrra markaða og beina
sjónum sínum einkum að löndum
Austur-Evrópu og Suöur-Amer-
íku.
Asger Olsen, framkvæmda-
stjóri jólatijáadeildar danska
skógræktarsambandsins, ferðast
um heiminn í leit að mörkuðum.
„Viö teljum að um tíu prósent
íbúa í fyr rum kommúnistaríkjum
Austur-Evrópu séu í nægilegum
efnum til að kaupa vestrænar
vörur og þeir eru markhópur
okkar,“ sagöi Olsen.
Danir senda um tiu þúsund tré
á ári í austurveg nú en vonast til
að þeir veröi í yfirburðastööu
þegar markaðurinn stækkar.
Gamall apakött-
urtekinnfyrir
ölvunarakstur
Davy Jones, forsöngvari banda-
rísku sjónvarpsrokksveitarinnar
The Monkees eða Apakattanna,
frá sjöunda áratugnum, var færð-
ur í fangageymslur lögregiunnar
í Selinsgrove i Pennsyivaníu í
Bandaríkjunum fyrir helgi vegna
ölvunaraksturs. Hann mátti dúsa
þar eina nótt
Jones, sem nú er oröinn 47 ára
og fjögurra barna faðir, hefur
búið úti í sveit í nágrenni bæjar-
ins frá því á árinu 1987.
The Monkees var stofnuð sér-
staklega fyrir sjónvarpsþátt um
popphljómsveit en sveitin náði
því einnig aö koma nokkrum lög-
um hátt upp á vinsældalista eftir
miðjan sjöunda áratuginn.
Leikarinn
SamWanamak-
erlátinn
Bandarlski
leikarinn og
leikstjórinn
Sam Wana-
maker lést á
heimili sínu S
London á laug-
ardag eftir
fimm ára bar-
áttu viö
krabbamein. Hann var 74 ára.
Wanamaker lék á sviði, í kvik-
myndum og í sjónvarpi bæði í Eng-
iandi og Bandaríkjunum og stjóm-
aöi óperusýningum. Hann haföi
búiö í Englandi frá því á sjötta ára-
tugnum. Síðustu 25 árin helgaöi
hann þó byggingu eftirmyndar af
Globe-leikhúsi Shakespeares á
upprunalegum staö þess í London.
Hann náði því þó ekki að sjá draum
sinnrætast. Keuter
DV
Maðurinn, sem missti tippið í hjónaerjum, segir farir sínar ekki sléttar:
Asaumaði limurinn
reyndist ónothæfur
- sagði í sjónvarpsviðtali frá tilraunum til samfara með gamalli vinkonu
„Hann nær aðeins einum þriðja af
fyrri reisn og það dugar ekki,“ segir
John Wayne Bobbitt, Virginíumað-
urinn sem fyrr á árinu missti tippið
eftir erjur við Lorenu konu sína.
Læknar saumuðu liminn á og lét
Bobbitt vel af í fyrstu.
Nú um helgina var hann í viðtals-
þætti hjá NBC-sjónvarpsstöðinni og
þar sagði hann farir sínar ekki slétt-
ar. Viðtalið vakti gífurlega athygli
vestra enda var Bobbitt mjög bersög-
ull um vandræði sín.
„Hann er lítillega lengri en áður,“
sagði Bobbitt án þess að blikna. Hann
sagðist hafa reynt samfarir með gam-
alli vinkonu sinni en þær hefði mis-
tekist vegna máttleysis í limnum.
Þau hjón urðu heimsfræg í sumar
þegar hún skar undan honum með
eldhúshníf og flúði af heimilinu með
liminn. Hann fannst síðar í runna
nærri húsi þeirra og sagðist Lorena
hafa hent honum út um glugga á bO
sínum.
Læknar voru níu klukkustundir
að sauma liminn á og þótti aðgerðin
takast vel. Það er þó ekki fyrr en nú
að endanlegt mat hefur verið lagt á
verk þeirra.
Bobbitt sagði í sjónvarpsviðtalinu
að kona sín hefði gripið til þessa ör-
þrifaráðs til aö halda honum heima
og koma í veg fyrir skilnað. Hún
hefði ímyndað sér að hann leitaði
ekki til annarra kvenna ef tippiö
vantaði. Sambúð þeirra hjóna lauk
við afskurðinn.
Bæði hafa fengið tilboð frá kvik-
myndafyrirtækjum í Hollywood um
einkarétt á sambúðarsögunni. Hann
var lengi tregur til að korna fram
opinberlega en hefur nú síðustu vik-
ur reifað mál sitt í ýmsum viðtölum.
Lorena var afitur á móti strax óspör
á lýsingar á handbragði sínu með
eldhúshnífinn. Reuter
Virginíumaðurinn John Wayn Bobbitt greindi í sjónvarpsviðtali um helgina frá vandræðum sinum við samfarir
með ásaumuðu tippinu. Hann hefur ekki áður greint í smáatriðum frá sinni hlið á erjum sínum og eiginkonunn-
ar, Lorenu, og lífi sínu eftir limlestinguna. Simamynd Reuter
Enskur biskup hneykslar landa sína:
Sagan um fæðingu frelsarans
uppdiktuð í árdaga kirkjunnar
David Jenkins, biskup af
Durham á Englandi, sem trúir
ekki á helvíti, olli enn einu
uppnáminu í gær þegar hann
sagðist ekki lengur trúa á
jólasöguna.
Biskupinn sagði í viötaii við
breska sjónvarpið að hann
hefði efasemdir um söguna
um fæðingu Jesú Krists, eins
og sagt er frá henni í bibl-
íunni, hann sagðist efast um
að Kristur hefði fæðst í jötu í
Betlehem eftir að foreldrum
hcuis hafði verið meinuð gist-
ing á krá í bænum.
„Eg tel að þessar sögur séu
svo stórkostlega táknrænar
og endurspegli svo margt úr
spádómsbókinni og gamla
testamentinu aö ég held aö
menn hafi samið þær af trúar-
hita á árdögum kirkjunnar,"
sagði Jenkins biskup.
Hann sagðist ekki lengur
trúa tveimur grundvaUar-
þáttum jólasögunnar, að Mar-
ía hefði veriö mey þegar hún
Breski biskupinn David Jenkins trúir ekki á að frelsarinn hafi verið lagður í jötu
í Betlehem.
fæddi Jesú og að vitringarnir
þrír hefðu fært guðssyni gull,
reykelsi og myrru.
Jenkins lagði þó ríka
áherslu á aö hann drægi til-
vist Jesú Krists ekki í efa en
sagöi um leið að hann tryöi
ekki á líkamlega upprisu
Krists eftir krossfestinguna.
Orð biskupsins ollu mikilli
hneykslan meðal stjómmála-
manna sem hafa kvartað und-
an því að enska þjóðkirkjan
sé ekki nógu góður vegvísir í
siðferðilegum efnum.
„Þaö verður mikill léttir
þegar biskupinn af Durham
og auglýsingavél hans hætta
að ræna hinum mikiu hátíðis-
dögum kristninnar," sagði
John Gummer, umhverfis-
ráðherra Bretlands, sem sagði
sig úr kirkjuráði ensku þjóð-
kirkjunnar þegar það ákvað
að konur gætu teldð prests-
vígslu.
Reuter