Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Page 28
28 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993 VERSLUN í REKSTRI Til sölu verslun með sérvörur, eiginn innflutningur, góðir möguleikar fyrir duglegan mann. Svarþjónusta DV, sími 632700. H-4715. ELDSMIÐJU 8110-20 ÓDÝRI SKÓMARKAÐURINN Opið mánud.-föstud. 12-18 Frábært verð - Góðir skór SKÓMARKAÐUR RRskór JL EURO SKO Skemmuvegi 32 - s. 75777 Á NÆSTA SÖLUSTAÐ »» A|) AA , EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA U<> Auglýsing um aðalskipulag Mosfellsbæjar 1992-2012 Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að endur- skoðuðu aðalskipulagi Mosfellsbæjar. Skipulagstillaga þessi nær yfir núverandi byggð og fyrirhugaða byggð á skipulagstímabilinu. Tillaga að aðalskipulagi Mosfellsbæjar 1992-2012, ásamt greinargerð, liggur frammi á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar frá 22. desember til 2. febrúar á skrif- stofutíma alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofu Mosfells- bæjar, og skulu þær vera skriflegar, fyrir 16. febrúar 1994. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar Skipulagsstjóri ríkisins Einstök móðurumhyggja. Lambgimbrin Hetja fær sér mjólkurdreitil hjá Búbót. Annað lamb og kálfurinn fylgjast með. DV-mynd Þórhallur KýríBlönduhlíð: Gekk gimbur og kálf i í móður stað Þórhallui Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Búbót, fyrsta kálfs kvíga á Borgar- hóli í BÍöndudal, hefur síöur en svo vanrækt móðurhlutverkið á þessu ári. Hún bar sínum fyrsta kálfi í jan- úar sl. og síðasta vetur sá hún einnig öörum kálfi fyrir mjólk. í vor tók hún tvílembing í fóstur og gekk hann undir henni allt sumariö. Tvílemb- inginn kallar Soffía Jakobsdóttir, húsfreyja á Borgarhóli, Hetju. Hún var vanin undir kind í vor sem síðan drapst frá henni. „Við vorum búin að gefa gimbrinni einu sinni úr pela þegar við urðum vör við að hún var farin aö sjúga kvíguna. Ég varð áþreifanlega vitni að umhyggju kvígunnar fyrir lamb- inu eitt sinn, þegar ég kom þar að sem lambið var lokað inni í hey- plássi. Þegar það losnaði gekk það fram til kvígunnar þar sem hún lá. Lambið ætlaði að labba frá en kvígan stóð þá á fætur og leyfði því að fá sér mjólkursopa," sagði Soffía. Einstök dæmi eru um dýr sem tek- ið hafa afkvæmi annarrar tegundar í fóstur en móðurtilfinning Búbótar verður að teljast einstök. Seyðf irsk jólatré ífyrstasinn Pétur Kristjánsson, DV, Seyðisfirði: Jólaljósin hafa verið tendruð á þeim jólatrjám sem sett hafa verið upp við opinbera staði hér í bæn- um. Fjöldi fólks safnaðist saman við sjúkrahúsið þegar rafljósin voru tendruð þar á eina trénu að þessu sinni sem ekki er úr Seyðis- firði. Þar var ýmislegt til skemmt- unar og Lúðrasveit Seyðisijarðar, sem alltaf er að verða betri og betri, spilaði. Grenitrén að þessu sinni eru dá- lítið sérstök - þau hafa vaxið hér í firðinum og er það í fyrsta skipti sem tré frá skógræktinni hér eru notuð sem jólatré, svo vitaö sé. Skógrækt hefur annars verið stunduð hér i um 50 ár og eins og gerist hefur veriö mismikill kraftur í skógræktarmönnum þó bæjarbú- ar hafi almennt ræktað garða sína vel. Síðustu árin hefur starfið verið mikið og mörg tré gróðursett í og við bæinn. Að sögn Emils Emilssonar, for- manns Skógræktarfélags Seyðis- fjarðar, hafa 40 þúsund plöntur verið gróöursettar á svæði félags- ins síðan 1990. Stóru grenitrén, sem nú voru höggvin, eru tekin til þess að grisja í eldri löndum félagsins, jafnframt því að vera hluti af fjár- öflun til að standa straum af kostn- aði við kaup tijáa til gróðursetn- ingar. Hveravellir: Ekki orðið jólalegt og lítið um gesti ÞórhaBur Ásmundsson, DV, Sauðárkrólá: Nei, það er ekki orðið jólalegt hérna efra. Snjóalög eru heldur ræfilsleg, varla nema svona holufylling, og það hefur verið fremur lítið um gesti hjá okkur að undanfórnu," sagði Krist- inn Gunnarsson, veðurathugunar- maður á Hveravöllum, í samtali ný- lega. Kristinn sagði að minna en venju- lega hefði verið um mannaferðir í haust og vetur sökum þess aö gæsa- vertíðin hefði brugðist. Þá hefði ijúpnavertíðin verið styttri en áður og færri ijúpnaskyttur nú en í fyrra. Von var á jólavarningnum um helgina með Hafþóri Hveravallas- kreppi eins og venjulega. Þetta er annað árið þeirra Kristins Gunnarssonar og Jónu Bjarkar Jónsdóttur á Hveravöllum. Þau eru bæði Reykvíkingar en Jóna Björk á ættir að rekja í Vestur-Skaftafells- sýslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.