Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1993, Síða 38
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1993
Maður er aldrei of gamall fyrir jólasveinana. Því voru þau Anna Bára,
Ingvar, Helena íris og Inga Birna sammála þegar þau stöldruðu við hjá
jólasveininum í Kringlunni á laugardag.
Sviðsljós______________________DV
f hringiðu helgarinnar
Jólaball DV fyrir starfsmenn og
blaðsölubörn var haldið í Hinu
húsinu á sunnudag. Henni Júlíu
Óttarsdóttur þótti öruggara að
halda fast í pabba sinn, Óttar H.
Sveinsson blaðamann, á meðan
ljósmyndarinn smellti af henni
mynd.
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands voru haldnir a laugardaginn.
Þar las Elsa María Blöndal úr jólaguðspjallinu og Jóhann Ari Lárusson
söng einsöng. Tónleikarnir enduðu á því að allir sungu Heims um ból og
þá sneri Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri sér viö til að stjóma
salnum.
Ásatrúarfélagið gekkst fyrir ýmsum uppákomiun á laugardag til að minna
á það að jólahátíðin á rætur að rekja til heiðni. Gengið var með logandi
kyndla um miðbæinn en dagskráin, sem átti að vera á Ingólfstorgi, var
flutt inn í hlýjuna á Bóhem vegna kulda.
Uppi’ á stól, stendur ... sungu ungir og gamlir í Perlunni á laugardag. En þá lauk kóramóti sem hefur staðið yfir í þijár helgar. Lokaatriðið var
samsöngur bamakóra og kóra eldri borgara.
Þær Björg Birgisdóttir og Jóna
Sigrún Sigurðardóttir vom í jóla-
skapi á jólatónleikum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar enda segjast
þær vera famar að hlakka mikið
til jólanna sem em um næstu helgi.
Viðskiptavinum Laugavegarins hefur undanfarið verið boðið upp á marg-
víslega skemmtun um leið og verslað er. Þessi hópur, sem kemur úr
Versló, flutti á laugardag atriði úr söngleiknum Jesus Christ Superstar,
sem hann er að æfa fyrir nemendamótið sem verður í febrúar nk. I fremri
röð em þau Valgerður Guðnadóttir sem leikur Maríu, Guðmundur Aðal-
steinsson sem leikur Júdas og Heródes sem Jón Svanur Jóhannsson leik-
ur. í aftari röð em svo dansaramir Ágústa Steinarsdóttir, Ásdís Péturs-
dóttir, Erla Kristín Bjarnadóttir og Berglind Helgadóttir.
Skógræktarfélag Mosfellsbæjar
slær tvær flugur í einu höggi fyrir
jólin með því að grisja „skóginn" í
Úlfarsfelh á þeim tíma því að þá
geta íbúar MosfeUsbæjar og ná-
grennis vaUð sér jólatré og feUt það
sjálfir. Hér er það Gunnar Þór
Reykdal sem hjálpar til við að feUa
jólatréð sitt.
í ár hefur mikfll fjöldi þurft að leita
til Mæðrastyrksnefndar eftir að-
stoð til að halda upp á jóUn. Á
sunnudag vom haldnir stórtón-.
leikar í Perlunni til styrktar
Mæðrastyrksnefnd, þar sem KK-
band kom meðal annars fram auk
„landsUðsins” í poppinu og Mögu-
leikhússins, en alUr Ustamennimir
gáfu vinnu sína.