Dagur - 29.08.1962, Side 4

Dagur - 29.08.1962, Side 4
Gjörvöll landsins fen og flóa fúakeldur, holt og móa á að láta grasi gróa gera að túni alla jörð, jafnvel holt og blásin börð. Drengir, sem að hjörðum hóa hlotið geta siðar óðalsrétt um yrktar dalahliðar. (Ur kvæði Guðmundar frá Sandi, er hann flutti á aðalfundi Ræktunarfél. Norðurlands 1905) ITINN aldni verzlunarstaður við lygnan Eyjafjörð, sem nú á að baki 100 ára sögu, byggðist á grös- ugu landi góðra bújarða, Stóra-Eyrarlands, Kjarna og Nausta. Gamla sýslumannssetrið og stórbýlið Kjarni hefur um mörg ár verið án ábúanda. En þar eru miklir töðuvellir, sem bæjarbúar hafa nytjað og þar er nú myndarleg skógræktarstöð Akureyringa og Eyfirð- inga, og búið að planta skógi í falleg belti og mikl- ar skákir, allt frá Eyjafjarðarbraut og upp að fjalls- klettum. Að sunnan skilur skógur lönd mil'li Akur- eyrarkaupstaðar og Hrafnagilshrepps og fer vel á jrví. Á Naustum var margbýlt. Góð ræktun hefur komið í stað þess lands, sem undan jörðinni hefur gengið til bæjarins. Þriðja gamla jörðin, Stóra-Eyr- arland, er nær öll komin undir byggð bæjarins. Af mikilli bújörð er nú aðeins eftir ibúðarhúsið á tak- markaðri lóð, rétt hjá Fjórðungssjúkrahúsinu. En því fer fjarri, að búskapur hafi lagzt niður á Akureyri. Akureyringum er búskapurinn í blóð borinn. Slíkir finna alltaf land til ræktunar, og geta þeir, sem leggja leið sína upp fyrir mesta þéttbýli 2 DAGUR bæjarins komizt að raun um það. Þar er í raun og veru heil sveit og feikna víðáttumikil ræktarlönd, sem skipt er í óteljandi skákir. Á túnunum eru smá- hús fyrir bripening, og þangað leggja fjölda margir bæjarbúar leið sína kvölds og morgna, vetur, vor og haust til að gefa fé á garða og hestum á stall. En tóm- stundabúskapurinn er bæði dægradvöl og til nokk- urra tekna fyrir heimilin. En innan takmarka bæj- Akureyringar eiga um 200 hross, og i þeim hópi tnarga úrvals- gœðinga. Og vonir um „hestefni“ eru bundnar hverju folaldi, sem fœðist. -ffcllfc........

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.