Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 5

Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 5
arins munu auk þess vera 22 bændabý'li, þar sem bú- skapur er stundaður sem aðalatvinnugrein. Enn- fremur Tilraunastöðin, sem rekur stórt kúabú og Búfjárræktarstöðin á Lundi, sem á hálft annað hundrað gripi og stór ræktarlönd. Norðurtakmörk bæjarins eru talin við Lónsbrú og þaðan nokkurn veginn í austur, í sjó frarn, og vestur til fjalla. Eru því bæjartakmörkin mjög rúm enn sem kornið er. Jarðræktarfélag hefur starfað á Akureyri um langt skeið og telur það nú 50 félaga. Þetta félag hefur meðal annars staðið fyrir Bændaklúbbsfundunum í meira en háifan annan áratug, sem er einn kynleg- asti kvistur á meiði hinna fjölþættu félagsmála í okkar landi. Síðasta ár lögðu Akureyringar inn 646 þús. lítra mjólkur í Mjólkursamlag KEA og lóguðu 1700 fjár á sláturhúsi. Fara þessar framleiðslugreinar vaxandi mörg síðustu árin. Kartöflurækt er nrikil og hefur svo verið um langan a’ldur, til ómetanlegs hagræðis fyrir bæjarbúa. Síðasta vetur áttu bæjarbúar rúmlega 3 þúsund fjár á fóðrum, 355 kýr og 200 hross. Heyfengur á haustnóttum 1961 var samtals 19000 hestburðir. Búpeningur sézt nú ekki lengur á fjölförnum um- ferðagötum Akureyrar. En hér, sem a'lls staðar ann- ars staðar i vaxandi þéttbýli, verður búskapurinn að þoka, en er stundaður í útjöðrum bæjarins, auk hinna nefndu lögbýla, er meira svigrúm hafa. A liinu foma landi Stóra-Eyrarlands, þar sem mik- ill meiri hluti hinna 9000 Akureyringa á heimili sín, hverfa girðingar milli granna óðfluga, en í stað þeirra vaxa blóm og runnar. Búfjárrœktarstöðin að Lundi á Akureyri, sem Samband nautgriparœktarfél. við Eyjafjörð (SNE) stofnaði og starfrtekir, annast upppeldistilrawiir, kynbœtur og visindalegar rannsóknir á arfgeng- um eiginleikum nautgripa. — Merkar niðurstöður af starfserninni eru þegar fyrir hendi, sem vart verða til peninga metnar, og framundan eru ótœmandi verkefni, svo lengi sem landsmenn lifa á mjólk og mjólkurvörum. Hliðstceð starfsemi hlýtur að ltoma i öðrum greinum kvikfjár- rœkiarinnar. DAGUR 3

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.