Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 21

Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 21
AKUREYRAR var pLUGBJORGUNARSVEIT AKUREYRAR stofnuð árið 1953 og var Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Akureyrar, lielzti hvatamaður þess. Stofnendurnir voru flestir áhuga- menn um ferðalög og flugmál. Skömmu áður hafði verið stofnuð flugbjörgunarsveit í Reykjavík og er skipulag beggja sveitanna svipað. Sveitin liefur ráð á mörgum mjög góðum tækjum svo sm sjúkrabíl, snjóbíl, góðum fjallabíl, sleðum, tjöldum og margs konar sjúkragögnum og útbúnaði A síðari árum hefur sveitin fengið ríflega fjár- styrki frá ríkinu, Akureyrarbæ og nokkuð frá Eyja- fjarðarsýslu. Auk þess hefur hún fengið góðar gjafir frá Slysavarnadeild kvenna á Akureyri, K.E.A. og frá ýmsum einstaklingum. Ef slys ber að höndum, þá er gott til þess að vita að nú eru til á Akureyri mörg góð tæki, sem að gagni gætu komið. Þegar vegir eru ófærir venjuleg- um bifreiðum er sjúkrabifreið Flugbjörgunarsveit- arinnar jafnan til taks, og hefur hún töluvert verið notuð þegar svo hefur staðið á. Bragi Svanlaugsson, verkstæðisformaður á B.S.A. og félagar hans hafa séð um bílakost sveitarinnar og hafa annazt þessa flutninga. Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Flugfé- lagi íslands á Akureyri, hefur frá upphafi verið for- maður Flugbjörgunarsveitar Akureyrar, en Tryggvi Þorsteinsson, skátaforingi, er leitarstjóri. Sveitina skipa um 60 menn og er henni skipt í flokka. KONUR Á AKUREYRI IIÉR VERÐUR hvorki mælt fyrir minni kvenna á Akureyri eða þeim sungið það lof, sem þær hafa til unnið, sem mæður borgaranna, húsmæður heimil- anna, dætur, unnustur og eiginkonur. En utan heimilanna hafa þær lagt mörgum góð- um málum lið, sem vert er að minnast. Þær komu upp Lystigarði Akureyrar, Nonnahúsi, Bamaheimil- inu Pálmholti, stóðu fyrir kaupum á sjúkraflugvél og snjóbíl til sjúkraflutninga, reistu skipbrotsmanna- skýli, komu upp húsmæðraskóla, lögðu fjárfúlgur til kirkju sinnar og til elliheimilis Jress, sem nú er að taka til starfa, söfnuðu fé svo um munaði til Björgunarskútu Norðurlands, áttu mikinn þátt í að koma upp flugbjörgunarsveit og hafa auk Jress látið líknarmálin njóta starfskrafta sinna í ríkurn mæli, og styrkt kristniboð. Konur eru hættar að bera fisk, en þær taka vax- andi þátt í iðnaðar- og framleiðslustörfum í mörgum helztu iðngreinum, utan heimila sinna. Margar þær iðnvörur, sem þekktastar eru að gæðum og fram- leiddar eru á vkkureyri, liafa konur lagt hönd að. Þær eiga verulegan þátt í þeirri staðreynd, að Ak- ureyri er tiltölulega mesti iðnaðarbær á íslandi. Að sjálfsögðu er þó móðurhlutverkið þýðingarmest, hér sem annars staðar. Hinir starfsömu og heiðarlegu borgarar liöfuð- staðar Norðurlands, sem nú minnast 100 ára sögu kaupstaðar síns, bera mæðrunum bezta vitnið. DAGUR 19

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.