Dagur - 29.08.1962, Page 22

Dagur - 29.08.1962, Page 22
■ IROINGA V erzlunar- Lærinn AKUREYRI Jakob Frimannsson, framkvœmdastjóri KEA og formaður SÍS. ^KUREYRI er aðalmiðstöð verzlunar og sam- gangna á Norðurlandi. Bílvegir teygja sig út frá bænum í allar áttir til blómlegra héraða, höfnin er iðandi af lífi löngum stundum, og flugvöllur bæj- arins er ómissandi tengiliður í daglegum samgöng- um og viðskiptalífi, sem Akureyri og nágrannahér- uð eiga svo mikið undir. Lega Akureyrar og hafnarskilyrði skáru snemma úr um gildi Akureyrar sem verzlunarstaðar, enda , hefur verzlun blómgazt hér um langa hríð og náð yfir mörg Jrróunarstig, allt frá verstu einokun út- lendinga til fullkominnar samvinnuverzlunar fólks- ins. Sé gengið um miðbæinn á Akureyri, þ. e. a. s. Hafnarstræti norðanvert og nærliggjandi svæði, mun margur undrast fjölda og fjölbreytni verzlan- anna, sem þar eru staðsettar. En jafnframt þessu aðalverzlunarsvæði eru ýmsar verzlanir í úthverfum bæjarins, fyrst og fremst matvörubúðir. Byggð og atvinnustöðvar aukast stöðugt á Oddeyri, og m. a. hefur verzlunin flutzt þangað í vaxandi mæli und- anfarin ár. Sem að líkum lætur er viðskiptasvæði Akureyrar ekki bundið bæjarlandinu, heldur sækja utanbæjar- menn hingað verzlun sína engu síður en bæjarmenn. Einkum eiga bændur úr Eyjafirði og vesturhluta Þingeyjarsýslu tíða leið til Akureyrar í verzlunar- erindum. Kaupfélag Eyfirðinga hefur allar helztu stöðvar sínar á Akureyri, og skipar verzlunin öndvegið í starfsemi þess. Kaupfélag Eyfirðinga er langstærsti 20 D A G U R

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.