Dagur - 29.08.1962, Side 27

Dagur - 29.08.1962, Side 27
1947 hom Kaldbakur til Akureyrar, fyrsti togari Útgerðar- félags Akureyringa. FÉLAGSSTOFNANIR 1869 var 10. janúar stofnað Gránufélagið. Stofnendur 30— ■40. Framkvæmdastjóri var Tryggvi Gunnarsson. 1912 voru eignir Gránufélagsins seldar og félaginu slitið. 1873 gekkst Friðbjörn Steinsson fyrir stofnun iðnaðar- mannafélags, „til að styrkja dugnað og reglusemi og koma í veg fyrir ofdrykkju". 1879 var stofnað Framfarafélag Akureyrar. Starfaði það að sunnudagsskólalialdi, leikfimiskennslu og fyrirlestrum, alþýð- legum og vísindalegum. 1874 var stofnuð fyrsta Goodtemplarastúka íslands af Frið- birni Steinssyni. Stúkan heitir ísafold nr. 1. 1894 var stofnað Kvenfélagið „Framtiðin". „Það hefur verið hjálparhella og bjargvættur margra fátæklinga í bæn- um.“ 1906 skiptir Pöntunarfélag Evfirðinga um starfsfyrirkomu- lag og nafn og heitir nú Kaupfélag Eyfirðinga. Heimili þess og varnarþing er á Akureyri. 1906 var stofnað Verkamannafélag Akureyrar. Formaður þess var Jón Kristjánsson. 1911 var Stúdentafélagið stofnað. 1915 var stofnað Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands. Form. Halldóra Bjarnadóttir. Stofnað Verkakvennafélagið Eining. Form. Guðlaug Benjamínsdóttir. Stofnað Kaupfélag Verka- manna. Forstjóri Erlingur Friðjónsson. BANKAR OG SPARISJÓÐIR 1884 var endurstofnaður sparisjóður, sem legið hafði niðri undanfarin 4—5 ár. En nú bauðst skemmtifélagið „Gaman og alvara" til að leggja fram hundrað krónur sem ábyrgðarfé sjóðsins. Safnaðist þá í þessu skyni alls kr. 1600.00 frá bæjar- búum, og sparisjóðurinn gat tekið til starfa. 1902 var stofnað útibú Landsbanka íslands. Forstöðumað- ur var Júlíus Sigurðsson. 1904 var stofnað útibú íslandsbanka h.f. Forstöðumaður var Þorvaldur Davlðsson. 1932 tók til starfa Sparisjóður Akureyrar. ÞJÓÐHÁTÍÐIR OG SJÓNLEIKIR 1874 var haldin 2. júli þjóðhátíð Eyfirðinga og Þingeyinga í tilefni af 1000 ára byggð íslands. Þar fóru fram ræðuhöld, söngur, kappreiðar, glímur og dans. Danska herskipið Fylla skaut 21 fallbyssuskoti í heiðursskyni. Um 2000 manns sóttu samkomuna. 1877 var sýndur sjónleikurinn Útilegumennirnir eftir sr. Matthías Jochumsson. 1884 sýnir Gaman og alvara tvo sjónleiki eftir Matthías Jochumsson: Vesturfarana og Þjóðviljann. 1890 var héraðshátíð á Oddeyri í minningu um 1000 ára byggð Eyjafjarðar. Var skotið 21 fallbyssuskoti frá frönsku herskipi, sem lá á höfninni, til heiðurs samkomunni. Fram fóru mikil ræðuhöld, söngur, kappreiðar, kappróður, íþróttir og dans. Sýndur var sjónleikurinn „Helgi magri" eftir séra Matthías. Talið var, að um 4—5 þúsund manns hefði sótt há- tíðina, sem stóð í þrjá daga. 1894 var leikir „Ævintýri á gönguför" eftir Hostrup. 1880 var haldin gripasýning fyrir Akureyri og nágranna- hreppana. Sýningin var opnuð með fallbyssuskotum. Verð- laun veitt fyrir beztu gripi: sauðfé, hross og nautgripi. Þá fóru og fram ræðuhöld og söngur. H. Þ. Hátíáai i bla 17LESTIR Akureyringar hafa tekið einhvern þátt í undirbúningi hinnar miklu hátíðar, sem þeir nú halda í tilefni af 100 ára afmæli bæjar síns. Þetta hátíðablað Dags, sem nú kemur fyrir sjónir almennings, er viðleitni í sömu átt. Vegna þess hve seint var ákveðið að gefa út þetta hátíða- eða af- mælisblað, og efnið yfirgripsmikið, varð efnisval meiri tilviljunum háð, en annars hefði orðið. En leitast er við að kynna Akureyi í nokkrum megin- dráttum, eins og hún er nú, á 100 ára afmælinu — í máli og myndum. Hátíðablaðið þakkar þeim mörgu, sem studdu að útkomu þess. Dagur óskar bæjarbúum til hamingju með hið merka afmæli og samgleðst yfir mörgum sigrum á sviði atvinnuhátta, uppbyggingar og menningar. Og um leið þakkar blaðið bæjarbúum fyrir góða sam- leið í hálfan fimmta áratug. Heill og hamingja fylgi höfuðstað Norðulands og íbúum hans á ókomnum árum. Erlingur Davíðsson. Ráðgert er að gera hluta af Fjörunni að byggðasafni. D A G U R 25

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.